Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 169
169. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinn í Fundarhúsi Lónmanna, 9. júní 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir varamaður
Valdemar Einarsson varamaður
Guðrún Ingimundardóttir varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. | 1105011F - bæjarráð Hornafjarðar - 544 (útsending) | |
|
Björn Ingi gerði deiliskipulagsvinnu við Hafnarvík Heppu verkefnið að umtalsefni. Ræddi sérstaklega um nýtingu á Pakkhúsinu og hvort ekki væri rétt að taka húsið af sölu og skoða nýtingu þess eftir að deiliskipulagsvinnunni lýkur. Þá ræddi hann um starfsmannamál og ákvörðun bæjarráðs um tímabundna ráðningu starfsmannastjóra. Sagði mikilvægt að ef sú staða verði til langs tíma þyrfti að auglýsa þá stöðu. Reynir ræddi um málefni Pakkhússins. Sagði fulla ástæðu til að fara yfir málefni Pakkhússins en ljóst væri í sínum huga að það yrði ekki selt í sumar. Þá tók Reynir undir orð Björns Inga um mikilvægi þess að auglýsa stöðu starfsmannastjóra ef um langtímastöðu væri að ræða. |
||
| 2. | 1105001F - bæjarráð Hornafjarðar - 545 | |
|
Björn Ingi ræddi um sorpbrennslustöðina í Öræfum. Sagðist sakna upplýsinga um mælingar á díóxíni í umhverfi hennar og vísaði til upplýsinga á vef landlæknis. Spurði hann um hvort von væri á meiri upplýsingum. Hjalti ræddi um sorpbrennslustöðina í Öræfum. Einnig gerði hann svæði fyrir Skotveiðifélagið að umtalsefni. |
||
| 3. | 1105003F - bæjarráð Hornafjarðar - 546 | |
|
Hjalti ræddi um dýpkun í Hornafjarðarhöfn. Sagði frá samtölum sínum við Siglingastofnun og innanríkisríkiráðuneytinu um málið. Sagði frá ákvörðun hafnarstjórnar um dýpkunarmál. Björn Ingi ræddi um dýpkunarmál. Sagði að sér virtist sem Siglingastofnun hafi ekki beitt sér sem skyldi í málinu. Reynir fór jafnframt yfir dýpkunarmál. Sagði að gengið hafi verið eftir svörum um hvenær von er á Skandíu til Hafnar og hvernig ástand skipsins er. Sagði það grundvallaratriði í huga hafnarstjórnarmanna að dýpkað yrði sem fljótt sem verða má. Guðrún spurði um opnunartíma upplýsingamiðstöðvar og Jöklasýningar. Hjalti svaraði fyrirspurn. |
||
| 4. | 1105007F - bæjarráð Hornafjarðar – 547 | |
|
Hjalti ræddi um sjávarútvegsmál og setti ýmsa fyrirvara um framkominn frumvörp til fiskveiðistjórnunar. Björn Ingi lýsti áhyggjum sínum af framkomnum frumvörpum í fiskveiðistjórnun. Sagðist styðja að fá KPMG til að taka út áhrifin en réttara hefði verið að ríkisstjórnin myndi gera það.
Reynir ræddi um sjávarútvegsmál og lagði fram eftirfarandi bókun:
Vorið 2009 varaði bæjarráð og bæjarstjórn Hornafjarðar við öllum ákvörðunum sem skaðað gætu sjávarbyggðir landsins og hvatti til þess að ekki verði ráðist í illa ígrundaðar ákvarðanir um breytingar á stjórnun fiskveiða.
Í janúar 2011 samþykkti bæjarstjórn bókun þar sem segir að ef sú sátt sem boðuð var í nýársávarpi forsætisráðherra um fiskveiðistjórnun myndi byggja á niðurstöðu starfshóps, sem var settur á laggirnar í júlí 2009 til þess að endurskoða lög um fiskveiðistjórnun og skilaði niðurstöðu í september 2010, bæri að fagna því.
Augljóst er að frumvörp þau sem nú eru komin fram byggja ekki á niðurstöðu starfshópsins og eru ekki til þess fallin að eyða óvissu fyrir sjávarbyggðir né skapa sátt um nýtingu auðlindarinnar. Bæjarstjórn Hornafjarðar telur mikilvægt að vandað verði til verka í þessum efnum, bæði er lýtur að breytingum á fiskveiðistjórnun til skamms tíma sem og langs tíma.
Bæjarstjórn Hornafjarðar vill benda á að bæjarráð Hornafjarðar hefur þegar ákveðið að gerð verði sjálfstæð könnun á áhrifum frumvarpanna fyrir Hornafjörð. Það er slæmt fyrir umræðu um málið að hvorki liggi fyrir greining á áhrifum frumvarpanna fyrir þjóðina í heild né starfsfólk í sjávarútvegi og íbúa í einstökum byggðarlögum sem eiga mikið undir sjávarútvegi komið áður en frumvörpin eru lögð fram á Alþingi. Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur því til að afgreiðslu beggja frumvarpa verði frestað og næstu mánuðir nýttir í samráð um mótun framtíðarskipulags fiskveiðistjórnunar sem almenn sátt geti tekist um.
Guðrún sagðist sitja hjá við afgreiðslu bókunarinnar. Las hún upp bókun áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar sem lögð var fram í bæjarráði. Hjalti ræddi um þjóðaratkvæðgareiðslur. Benti á að mikilvægt væri að leita að sátt. Guðrún sagði það sína bjargföstu trú að á Alþingi væru menn að vinna að því að skapa sátt um fiskveiðistjórnun. Reynir sagði að umræða á fiskveiðistjórnun væri byggð á vanþekkingu. Sagði frá reynslu sinni í sjávarútvegi sem spanni bæði tímann fyrir og eftir kvótasetningu og að í dag væri mikil óvissa, sennilega sú mesta frá því að síldin hvar í lok sjöunda áratugarins. Bókun borin upp til atkvæða. Samþykkt með sex atkvæðum, einn sat hjá. |
||
| 5. | 201104011F - bæjarstjórn Hornafjarðar – 168 | |
| Lögð fram. | ||
| 6. | 201010079 - Kosningar (útsending) | |
|
Borinn upp eftirfarandi tillaga um um kjör forseta bæjarstjórnar og tveggja varaforseta til eins árs.
Forseti bæjarstjórnar verður Ásgerður K. Gylfadóttir 1. varaforseti verður Reynir Arnarson 2. varaforseti verður Björn Ingi Jónsson Tillagan samþykkt samhljóða. Borinn upp eftirfarandi tillaga um kjör í bæjarráð til eins árs: Frá B lista : Reynir Arnarson og Ásgerður Gylfadóttir Til vara : Kristján Sigurður Guðnason og Ásgrímur Ingólfsson Frá D lista : Björn Ingi Jónsson Til vara : Guðrún Ása Jóhannsdóttir Samþykkt samhljóða.
Þá bar upp forseti upp tillögu um að Samfylking yrði heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa í bæjarráð. Samþykkt samhljóða. Kom fram að Árni Rúnar Þorvaldsson verði áheyrnarfulltrúi og Guðrún Ingimundardóttir til vara.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um skrifara : Kristján Sigurður Guðnason, til vara Ásgrímur Ingólfsson. Guðrún Ása Jóhannsdóttir, til vara Árni Rúnar Þorvaldsson Tillagan samþykkt samhljóða.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um fulltrúa á aðalfund SASS: Reynir Arnarson til vara Ásgrímur Ingólfsson Ásgerður K. Gylfadóttir til vara Arna Ósk Harðardóttir Kristján Guðnason til vara Hugrún Harpa Reynisdóttir Björn Ingi Jónsson til vara Guðrún Ása Jóhannsdóttir Árni Rúnar Þorvaldsson til vara Guðrún Ingimundardóttir Tillagan samþykkt samhljóða.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um kosningu í ritnefnd Skaftfellings Frá B lista: Hugrún Harpa Reynisdóttir, formaður Frá D lista: Bryndís Hólmarsdóttir Frá S lista: Guðrún Ingimundardóttir Tillagan samþykkt samhljóða. |
||
| 7. | 200812072 - Nýtt kirkjugarðsstæði – deiliskipulag (útsending) | |
|
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. Í máli hans kom fram að með þessu deiliskipulagi er mörkuð framtíðarnotkun kirkjugarðsstæðisins á Höfn til 40-50 ára. Gert er ráð fyrir að deiliskipulagið verði unnið í tveim áföngum. Með þessu er núverandi kirkjugarður færður inn í deiliskipiulag og afmarkað er svæði til stækkunar á núverandi garði. Bæjarstjóri lagði til að málinu yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn og til lögformlegrar meðferðar á milli umræðna. Tillagan borinn upp og samþykkt samhljóða.
|
||
| 8. | 201105037 – Leikskólamál (útsending) | |
|
Hjalti ræddi um þá vinnu sem fram hefur farið í leikskólamálum. Ásgerður lagði fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn felur bæjarráði að hefja undirbúning að viðbyggingu við Krakkakot þannig að frá og með haustinu 2012 verði tveir þriggja deilda leikskólar á Höfn. Tillagan er sett fram í kjölfar ítarlegrar vinnu þar sem kannað var viðhorf starfsfólks og stjórnenda á leikskólum auk foreldra leikskólabarna. Í kjölfar skýrslu um viðhorf og þróun í leikskólamálum var settur á fót sérstakur rýnihópur á vegum skólanefndar. Í rýnihópnum sátu fulltrúar þeirra þriggja framboða sem sæti eiga í bæjarstjórn, fulltrúar foreldra leikskólabarna, fulltrúar starfsfólks leikskóla og stjórnenda. Í niðurlagskafla skýrslu rýnihópsins segir m.a.: „Niðurstaða hópsins er að forgangsatriði sé að auka leikskólapláss sem samsvarar einni leikskóladeild. Næsta skólaár verður bætt við einni deild á Krakkakot í samvinnu við leikskólastjóra og starfsfólk en samtímis unnið að framtíðarlausn með nýbyggingu.“ Með þessari niðurstöðu verður betur tryggt en áður að öll börn sem orðin eru eins árs gömul eigi möguleika á leikskólavistun.
Guðrún Ingimundardóttir lagði fram eftirfarandi bókun um leikskólamál:
„Samfylkingin styður það meginsjónarmið rýnihóps um leikskólamál að æskilegt sé að fjölga um eina deild á leikskólum Hornafjarðar þannig að sex deildir séu starfræktar. En um leið og Samfylking styður þá tillögu að sú deild verði byggð við Leikskólann Krakkakot, þá lítur Samfylkingin svo á að sú leið útiloki ekki að starfræktur verði einn sex deilda leikskóla á Höfn frá og með næsta skólaári.“
Björn Ingi ræddi um leikskólamál. Sagði að margt hafa verið rætt og ágæt vinna hafi farið fram í vetur í leikskólamálum. Taldi hann að málið hefði þurfti meiri umræðu í bæjarráði áður en það hefði komið fram í bæjarstjórn. Einnig greindi hann frá orðum sínum á fundi bæjarráðs að stefnan ætti að vera með einn sex deilda leikskóla, annað hvort að byggja nýjan leikskóla á nýjum stað eða með því að reisa viðbyggingu við annan skóla. Lagði hann fram eftirfarandi bókun:
,,Við Bæjarfulltrúar Sjálstæðisflokksins teljum skynsamlegra væri að skoða betur kost þess að fara strax í uppbyggingu eins 6 deilda leikskóla í sveitarfélaginu frekar en rekstur tveggja 3 deilda leikskóla. Við teljum einsýnt að um leikskólana ná ekki sátt nema með einum leikskóla í sveitarfélaginu Hornfirði. Hin aukna þörf sem nú er fyrir hendi á leikskólaplássum verður afstaðin haustið 2012, ekkert í kortunum bendir til annars en að sú þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár haldi áfram. Það er að segja að áfram komi börnum á leikskólaaldri til með að fækka í sveitarfélaginu. Með rekstri eins 6 deilda leikskóla er einfaldar að bregðast við sveiflum í eftirspurn eftir leikskólaplássum. Staðreynd er að viðvera barna á leikskóla er að lengjast þetta er að hluta til vegna breitra viðhorfa í samfélaginu en einnig vegna þess að skipulagt hópastarf leikskóla fer einungis fram á morgnanna. Við teljum nauðsynlegt að við hönnu viðbyggingar við Krakkakot nú verði horft til þess að hann verði 6 deilda leikskóli“
Reynir ræddi um orð sín á bæjarráðsfundi um leikskólamál. Hjalti ræddi leikskólamál. Tillagan borinn upp til atkvæða. Samþykkt með fjórum atkvæðum, þrír sátu hjá.
|
||
| 9. 200901107 - Fyrirspurnir – bæjarstjórn | ||
| Engar. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30


