Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 156
156. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, þriðjudaginn 15. júní 2010, kl. 16.00 í Nýheimum.Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Arna Ósk Harðardóttir, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig:Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Reynir Arnarson, sá bæjarfulltrúi sem hefur lengstan starfsaldur í bæjarstjórn,setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fyrsta fundar á nýju kjörtímabili. Reynir Arnarson las upp fundargerð yfirkjörstjórnar frá 9. júní 2010.
1. Kjör forseta bæjarstjórnar og 2ja varaforseta
Reynir Arnarson bar upp eftirfarandi tillögu um kjör forseta bæjarstjórnar og tveggja
varaforseta til eins árs.
Forseti bæjarstjórnar verður Ásgerður K. Gylfadóttir
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu.
1. varaforseti verður Reynir Arnarson
Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum, 1 sat hjá.
2. varaforseti verður Björn Ingi Jónsson
Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum, 1 sat hjá.
Nýkjörinn forseti, Ásgerður K. Gylfadóttir, tók við fundarstjórn.
2. Kosning í bæjarráð
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um kjör í bæjarráð til eins árs:
Frá B lista : Reynir Arnarson og Ásgerður Gylfadóttir
Til vara : Kristján Sigurður Guðnason og Ásgrímur Ingólfsson
Frá D lista : Björn Ingi Jónsson
Til vara : Guðrún Ása Jóhannsdóttir
Samþykkt með 6 atkvæðum, 1 sat hjá.
Þá bar upp forseti upp tillögu um að Samfylking yrði heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa í bæjarráð.
Samþykkt með 6 atkvæðum, 1 sat hjá.
Kom fram að Árni Rúnar Þorvaldsson verði áheyrnarfulltrúi og Guðrún Ingimundardóttir til vara.
3. Kosning tveggja skrifara og tveggja skrifara til vara
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um skrifara :
Kristján Sigurður Guðnason, til vara Ásgrímur Ingólfsson.
Guðrún Ása Jóhannsdóttir, til vara Árni Rúnar Þorvaldsson
Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum, 1 sat hjá.
4. Ráðning bæjarstjóra
Forseti lagði fram tillögu meirihlutans í Bæjarstjórn Hornafjarðar þess efnis að Hjalti Þór Vignisson verði ráðinn bæjarstjóri til næstu fjögurra ára.
Tillaga um ráðningu bæjarstjóra borin undir atkvæði og samþykkt með 4 greiddum atkvæðum, 3 sátu hjá.
Árni kvaddi sér hljóðs og las upp eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna ráðningar bæjarstjóra:
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar harmar þá ákvörðun Framsóknarflokksins að gera ópólitískan bæjarstjóra sveitarfélagsins, Hjalta Þór Vignisson, að sérstöku kosningamáli í aðdraganda sveitarstjórnakosninga 29. maí sl. Sú ákvörðun hefur án efa átt stóran þátt í sigri flokksins í kosningunum og stuðlað að hreinum meirihluta hans í bæjarstjórn. Framsóknarflokkurinn er því í lykilaðstöðu til að efna það kosningaloforð sitt að atkvæði greitt Framsóknarflokknum tryggði Hjalta Þór Vignisson áfram sem bæjarstjóra. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar telur rétt að veita Framsóknarflokknum svigrúm til þess efna þetta kosningaloforð.
Af þessum sökum situr bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar hjá við atkvæðagreiðslu um ráðningu bæjarstjóra.
Hjalti þakkaði það traust sem honum væri sýnt með því að ráða sem bæjarstjóra næstu fjögur árin. Sagðist hlakka til næstu fjögurra ára og um leið góðs samstarfs við alla bæjarfulltrúa.
5. Samþykkt um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar - síðari umræða
Hjalti greindi frá vinnu við samþykktirnar á milli umræðna. Litlar breytingar hafi átt sér stað, fyrst og fremst orðalagsbreytingar. Þá greindi Hjalti frá þeim breytingum sem orðið hefur á nefndaskipun frá fyrri samþykktum sveitarfélagsins. Lagði hann til að samþykkt um stjórn og fundarsköp verði samþykkt og send til undirskriftar samgöngu- og sveitarstjórnarmálaráðherra.
Björn Ingi óskaði forseta til hamingju með kjörið sem og nýkjörnum bæjarfulltrúum. Þá ræddi hann um breytingar sem orðið hafa á nefndaskipan. Menn þurfi að hafa það í huga við störf sín, bæði í nefndum og bæjarstjórn. Lagði áherslu á að þetta væri ábending en hann styddi þessar breytingar.
Samþykktirnar bornar undir atkvæði og þær samþykktar samhljóða.
6. Kosning í nefndir
Árni las upp eftirfarandi yfirlýsingu:
Yfirlýsing um samstarf D – lista Sjálfstæðisflokks og S – lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hornafjarðar kjörtímabilið 2010 – 2014
Lögð fram á 1. fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar
þriðjudaginn 15. júní 2010
Aðal– og varabæjarfulltrúar D – lista Sjálfstæðisflokks og S – lista Samfylkingarinnar eru sammála um að leggja fram sameiginlegan lista minnihluta bæjarstjórnar Hornafjarðar vegna kosninga í fastanefndir bæjarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2010 – 2014.
Fulltrúar framboðanna eru sammála um að D – listi Sjálfstæðisflokks fái átta aðalmenn í fastanefndum sveitarfélagsins og S – listi Samfylkingarinnar fái fjóra aðalmenn. Einnig eru fulltrúar framboðanna sammála um að skipta varamönnum fastanefndanna jafnt á milli framboðanna. Fulltrúar framboðanna eru sammála um að varamaður af S – lista Samfylkingarinnar sé 1. varamaður hins sameiginlega framboðs D – lista Sjálfstæðisflokks og S – lista Samfylkingarinnar í þeim nefndum þar sem S – listi Samfylkingarinnar hefur ekki aðalmann.
Aðal– og varabæjarfulltrúar D – lista Sjálfstæðisflokks og S – lista Samfylkingarinnar eru jafnframt sammála um að sami háttur verði viðhafður af hálfu minnihluta bæjarstjórnar Hornafjarðar í öllum hlutfallskosningum á vegum bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar, þ.e. að boðinn verði fram sameiginlegur listi.
Þessu til staðfestingar undirrita aðal– og varabæjarfulltrúar D – lista og S – lista yfirlýsingu þessa:
F.h. D – lista Sjálfstæðisflokks F.h. S – lista Samfylkingarinnar
Björn Ingi Jónsson Árni Rúnar Þorvaldsson
Guðrún Ása Jóhannsdóttir Guðrún Ingimundardóttir
Valdemar Einarsson
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Forseti greindi frá því að ekki væri gert ráð fyrir að skipa nýja ritnefnd fyrir Skaftfelling á þessum fundi. Sagði að málefni Skaftfellings yrðu tekin fyrir á fundi bæjarráðs á næstunni til þess að fara yfir áframhaldandi útgáfu. Ekki væri stefnan að leggja af útgáfuna heldur miklu frekar að efla starfið.
Forseti lagði fram og las upp tillögu yfir þá sem eru í kjöri til nefnda til fjögurra ára.
Til 4ra ára
Atvinnu- og menningarmálanefnd
Aðalmenn Varamenn
Kristján Sigurður Guðnason, formaður (B) Björn Sigfinnsson (B)
Gunnhildur Imsland, varaformaður (B) Hólmfríður B. Þrúðmarsdóttir (B)
Valdimar Ingólfsson (B) Gunnar Örn Reynisson (B)
Maríanna Jónsdóttir (D) Herdís I. Waage (D)
Árni Rúnar Þorvaldsson (S) Katarzyna Irena Thomas Wegiel (S)
Umhverfis- og skipulagsnefnd
Aðalmenn Varamenn
Ásgrímur Ingólfsson, formaður (B) Sigurlaug Gissurardóttir (B)
Hugrún Harpa Reynisdóttir, varaformaður (B) Friðrik Þór Ingvaldsson (B)
Gunnar Páll Halldórsson (B) Aðalsteinn Aðalsteinsson (B)
Björn Ingi Jónsson (D) Lars Jóhann Andrésson (S)
Guðrún Ása Jóhannsdóttir (D) Björn Þórarinn Birgisson (D)
Félagsmálaráð
Aðalmenn Varamenn
Snæfríður H. Svavarsdóttir, formaður (B) Elísabet Einarsdóttir (B)
Ásdís Ólafsdóttir, varaformaður (B) Sólrún Sigurjónsdóttir (B)
Óskar Arason (B) Guðmundur Ingi Sigbjörnsson (B)
Sigurður Guðmundsson (D) Grétar Már Þorkelsson (D)
Anna María Ríkharðsdóttir (S) Ragnheiður Sigjónsdóttir (S)
Hafnarstjórn
Aðalmenn Varamenn
Reynir Arnarson, formaður (B) Hannes Ingi Jónsson (B)
Sigurður Ægir Birgisson, varaformaður (B) Ester Þorvaldsdóttir (B)
Nína Sybil Birgisdóttir (B) Örn Arnarson (B)
Valdemar Einarsson (D) Stephen Róbert Johnson (S)
Páll Ólafsson (D) Gísli Karl Ágústsson (D)
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Aðalmenn Varamenn
Ásgeir Gunnarsson, formaður (B) Eyrún Unnur Guðmundsdóttir (B)
Guðmundur Gunnarsson, varaformaður (B) Íris Heiður Jóhansdóttir (B)
Guðbjörg Garðarsdóttir (B) Örn Eriksen (B)
Guðrún Ása Jóhannsdóttir (D) Lovísa Rósa Bjarnadóttir (D)
Guðrún Ingimundardóttir (S) Berglind Steinþórsdóttir (S)
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Aðalmenn Varamenn
Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður (B) Gunnar Sigurjónsson (B)
Arna Ósk Harðardóttir, varaformaður (B) Elínborg Baldursdóttir (B)
Ásgeir Ásgeirsson (B) Ottó Marvin Gunnarsson (B)
Lovísa Rósa Bjarnadóttir (D) Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir (D)
Matthildur Ásmundardóttir (S) Torfi Friðfinnsson (S)
Almannavarnarnefnd
Aðalmenn Varamenn
Björn Ingi Jónsson formaður (D) Árni Rúnar Þorvaldsson (S)
Reynir Arnarson, varaformaður (B) Ásgerður Gylfadóttir (B)
Kjörstjórn
Jón Stefán Friðriksson, formaður (D) Friðrik Jónas Friðriksson (D)
Anna Halldórsdóttir, varaformaður (B) Hermann Stefánsson (B)
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir (S) Ástríður Sveinbjörnsdóttir (S)
Tillagan samþykkt samhljóða.
Forseti lagði fram og las upp tillögu yfir þá sem eru í kjöri til nefnda til eins árs.
Til eins árs
Skoðunarmenn reikninga bæjarsjóðs
Aðalmenn Varamenn
Guðbjartur Össurarson (B) Hermann Hansson (B)
Unnsteinn Guðmundsson (D) Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (S)
Heilbrigðisnefnd Austurlands
Sigurlaug Gissurardóttir (B) Haukur Ingi Einarsson
Guðrún Ingimundardóttir (S)
Fulltrúar á Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga
Aðalmenn Varamenn
Reynir Arnarson (B) Ásgerður Gylfadóttir (B)
Björn Ingi Jónsson (D) Árni Rúnar Þorvaldsson (S)
Fulltrúar á aðalfund SASS
Aðalmenn Varamenn
Reynir Arnarson (B) Ásgrímur Ingólfsson (B)
Ásgerður Gylfadóttir (B) Arna Ósk Harðardóttir (B)
Kristján Sigurður Guðnason (B) Snæfríður Hlín Svavarsdóttir (B)
Björn Ingi Jónsson (D) Guðrún Ása Jóhannsdóttir (D)
Árni Þorvaldsson (S) Valdemar Einarsson (D)
Fulltrúi í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
Reynir Arnarson Hjalti Þór Vignisson
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Árni las upp eftirfarandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
“Samfylkingin hefur nú sitt annað kjörtímabil í bæjarstjórn Hornafjarðar. Eftir að hafa starfað í meirihluta á síðasta kjörtímabili urðu niðurstöður kosninganna þær að Samfylkingin starfar minnihluta á nýhöfnu kjörtímabili.
Nýkjörin bæjarstjórn tekur við góðu búi. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er sterk og rekstur sveitarfélagsins er traustur. Þessa stöðu verður að verja með öllum tiltækum ráðum og það krefst samstillts átaks bæjarstjórnar vegna erfiðra efnahagsaðstæðna á Íslandi.
Harkalegur niðurskurður ríkisútgjalda er hafinn og mun vera viðvarandi á fjárlögum næstu ára. Bæjarstjórn Hornafjarðar verður að berjast fyrir því að niðurskurður stjórnvalda fækki ekki opinberum störfum í sveitarfélaginu. Í atvinnumálum almennt verður sveitarfélagið að leita leiða til þess að koma í veg fyrir einsleitni í atvinnulífinu.
Á kjörtímabilinu mun Samfylkingin leggja áherslu á að bæjarstjórn forgangsraði í þágu velferðarþjónustunnar í sveitarfélaginu. Á tímum minnkandi tekna er forgangsatriði að velferðin verði varin, þar sem þarfir fjölskyldunnar eru í fyrirrúmi.
Samfylkingin mun nú sem fyrr leggja öllum góðum málum lið í bæjarstjórn en mun jafnframt veita nýjum meirihluta Framsóknarflokksins kröftugt aðhald í öðrum málum. Það er von Samfylkingarinnar að samstarf nýkjörinnar bæjarstjórnar verði farsælt og að málefnaleg umræða verði áfram megineinkenni bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar og að því mun Samfylkingin vinna.”
Reynir tók undir orð Árna um að samstarf þeirra eigi eftir að vera gott áfram. Einnig þakkaði hann góðar óskir. Sagði að framsóknarmenn muni leggja sig fram um að gera sitt besta. Sagðist hann trúa því að samstarf við minnihlutann eigi eftir að verða gott. Þá óskaði hann nýkjörnum nefndarmönnum til hamingju og óskaði þeim velfarnaðar í starfi.
Björn Ingi ítrekaði fyrri ábendingar um að nýkjörnir nefndarmenn kynni sér vel öll erindisbréf. Hann sagði að margt í stefnuskrá framsóknarmanna væri auðvelt að styðja um annað væri erfiðara að segja. Hann sagði sjálfstæðismenn hafa setið hjá við atkvæðagreiðslu um ráðningu bæjarstjóra þar sem sjálfstæðismenn teldu hann hafi verið gerður pólitískur bæjarstjóri í aðdraganda kosninganna.
Björn Ingi las upp eftirfarandi bókun Sjálfstæðismanna:
“Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ætlum að styðja við öll góð mál á komandi kjörtímabili, auk þess ætlum við að veita meirihlutanum gott aðhald. Við munum leggja ríka áherslu á að bæjarfulltrúa hafi í heiðri hæfisreglur í einstökum málum þar sem tengsl þeirra við einstaka stofnanir og fyrirtæki í sveitarfélaginu eru mikil.
Við Sjálfstæðismenn munum hafa það að leiðarljósi að vinna að heilindum fyrir samfélagið okkar á komandi kjörtímabili.”
Björn Ingi Jónsson
Guðrún Ása Jóhannsdóttir
Hjalti sagði unnið að aðgerðaráætlun sem byggði á stefnuskrá Framsóknarflokksins. Lagði hann áherslu á að hann hafi átt gott samstarf við forystumenn allra framboða sem nú eiga fulltrúa í bæjarstjórn. Hjalti sagðist undirstrika það að hann verði pólitískur þegar hann ákveður það sjálfur. Lagði áherslu á að hann verði bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Árni sagði að bókun Samfylkingar bæri það með sér að framsóknarmenn hafi gert Hjalta að pólitískum bæjarstjóra, það hafi ekki verið hans ákvörðun.
Björn Ingi tók undir orð Árna um að það hafi verið ákvörðun framsóknarmanna að gera Hjalta að pólitískum bæjarstjóra.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl.17:05


