Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 148

148. fundur

 

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 5. nóvember 2009 kl. 16:00 á Hrollaugsstöðum.

Mætt voru:    Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Björk Pálsdóttir og Björn Ingi Jónsson.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

1.        Fundargerðir

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 479. fundur, 12.október 2009.

Björk spurðist fyrir um tjón af yfirborðsvatni af götum og lóðum í Nesjahverfi.  Hjalti greindi frá því sem gerðist í þessum miklu rigningum og fundum með íbúum eftir þessi óhöpp. Hann greindi og frá því að stefnt sé að frekari framkvæmdum á holræsakerfi svæðisins.

Fundargerð samþykkt. 

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 480. fundur, 19.október 2009.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 481. fundur, 28.október 2009.

Hjalti ræddi nýhafna útgáfu Eystrahorns og óskaði þeim sem að því standa til hamingju með það framtak. Blaðið geti bæði orðið góð fréttaveita úr samfélaginu og staður til skoðanaskipta.

Björk tók undir orð Hjalta og var einnig með hamingjuóskir. Þá furðaði hún sig á að haldinn skyldi fundur í atvinnumálanefnd þrátt fyrir að aðeins 2 af 5 nefndarmönnum hafi mætt. Hún fagnaði verkefnum sem Matís hefur stuðlað hér að og stutt. Einnig spurðist hún fyrir um sorpmál í Öræfum.

Hjalti greindi frá því að fundurinn í atvinnumálanefnd hafi ekki síst verið haldinn vegna þess að starfsmaður Matís á Hornafirði var mættur. Fundurinn hafi hins vegar verið ólögmætur. Ýmsir liðir sem taka átti til umræðu á fundinum verði settir á dagskrá bæjarráðs.  Þá svaraði hann fyrirspurn um sorpmál í Öræfum og fyrirhugaðar endurbætur á brennsluofninum sem þar er til staðar. Minnti á að það skipti miklu máli fyrir sundlaugina og starfsemi hennar. Tíminn sem viðgerð á ofninum skapaði gæti verið nægur fyrir sundlaugina þar til heitt vatn fyndist hugsanlega á næstu árum.

Sigurlaug tók undir orð Hjalta um sorpmál í Öræfum. Einnig ræddi hún staðsetningu grenndargámastöðvar og mismunandi fjarlægð sumra fyrirtækja í dreifbýli frá þeim. Á þessu svið gætti því ekki jafnræðis. Hún ræddi gjaldskrá í sorpmálum og umbun til þeirra sem standa sig vel í flokkun. Sigurlaug greindi frá aðild okkar að Markaðsstofu Suðurlands og minnti á að einhverri markaðsstofu þyrftum við að tilheyra. Þá ræddi hún mikilvægi Ríkis Vatnajökuls fyrir svæðið sem gæfi ferðaþjónustunni hér forskot. Sagðist Sigurlaug fylgjandi því að sveitarfélagið gerðist aðili í Markaðsstofu Suðurlands.

Hjalti þakkaði Sigurlaugu fyrir orð hennar um sorpmál og málefni ferðaþjónustunnar. Sagði hann reynsluna af því sem gert hefur verið í sorpmálum gott skref í rétta átt. Þá fjallaði hann um ýmsa þætti í ferðaþjónustunni og gerði að umtalsefni kostnað við Jöklasýninguna sem upphaflega hafi verið ætlað að vera sjálfbær en langt væri frá að það hafi tekist. Jöklasýninguna þurfi því að taka til umræðu og ákvörðunar um framhald hennar og hvernig það geti orðið. Minnti m.a. á möguleika á samstarfi hennar við Ríki Vatnajökuls.

Sigurlaug tók undir orð Hjalta um sorpmál. Hún sagði að við höfum ekki haldið nægilega vel á lofti því sem hér hefur verið gert í flokkun sorps. Minnti á að hér væri mönnum umbunað fyrir að flokka sorp öfugt við það sem víða tíðkaðist þar sem sorpflokkun kalli á útgjöld þeirra sem flokka. Einnig gerði hún að umtalsefni þróun Ríkis Vatnajökuls og hugsanlegar breytingar á Jöklasýningu. Vildi hún tengja hana betur við jöklana en ekki hafa hana alla innan veggja. 

Fundargerð samþykkt. 

 ·         Bæjarráð Hornafjarðar, 482. fundur, 2. nóvember 2009 fundargerð send út í tölvupósti að fundi loknum.

Björk fjallaði um fundargerð skólanefndar. Ræddi hún 2. lið, rekstur sundlaugar. Var hún ánægð með þær upplýsingar sem fram koma og vildi sjá þær á heimasíðu sveitarfélagsins. Þá gerði hún að umtalsefni lengd dvalartíma barna í leikskóla. Velti upp hugmynd hámarkstíma 8,5 klst. og spurði hvaða áhrif það hefði á rekstur skólanna.

Hjalti fagnaði orðum Bjarkar um lengd dvalartíma barna í leikskóla og tók undir orð hennar um langan tíma í leikskóla. Benti hann m.a. á að sum sveitarfélög hafi hækkað til muna gjaldskrá leikskóla fyrir tímann umfram 8 klst.

Elín tók undir orð Bjarkar og Hjalta um lengd dvalartíma leikskólabarna og sagði umræðu um hana nauðsynlega. Þá benti hún á að ekki hafi allir verið sammála um þetta mál á fundi skólanefndar. Sagði hún þetta mál verða áfram til umræðu í skólanefnd.

Árni fagnaði umræðunni leikskólamálin og tengdi hana umræðu um rekstur sveitarfélagsins. Þá minnti hann á mismunandi aðstæður fólks og langan vinnudag margra sem hefði  þá áhrif lengd dvalartíma leikskólabarna. 

Fundargerð samþykkt.

 ·         Bæjarstjórn Hornafjarðar 147. fundur 8. október 2009, fundargerð áður samþykkt.

2.        Fjárhagsáætlun 2010  - fyrri umræða

Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun úr hlaði.  Sagði hann að við vinnu að fjárhagsáætlun hafi gengið vel og þakkaði bæjarráði og forstöðumönnum sérstaklega fyrir þeirra framlag.  Sagði að enn væri nokkur vinna eftir sem færi fram á milli umræðna, m.a. að ræða nánar um framkvæmdir, viðhald og óskir forstöðumanna, breytingar á rekstrarömmum og kaup á stofnbúnaði.   Hann greindi frá þeim niðurskurði sem verður til ríkisstofnana sem hér eru staðsettar. Það muni hafa áhrif á sveitarfélagið og íbúa þess.   Sagði Hjalti að markmið við gerð fjárhagsáætlunar árið 2010 hafi verið það sama og fyrir ári, það að verja eftir mætti stöðu fjölskyldna í sveitarfélaginu og starfsmanna.  Taldi hann að sveitarsjóður stæði traustum fótum nú um stundir.  Í máli bæjarstjóra kom m.a. eftirfarandi fram:

Útsvar og fasteignaskattar verða óbreyttir.  

Gjaldskrár sem snerta hag heimila með beinum hætti  verða ekki hækkaðar, s.s. leikskólagjöld, gjöld fyrir lengda viðveru, fæðisgjöld í skólum og tónskólagjöld. 

Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs verður ekki lækkaður. 

Viðhald húsa og framkvæmdir verða ákveðnar á milli umræðna en við fyrri umræðu er gert ráð fyrir 200 m.kr. framkvæmdum í A-hluta og 92 m.kr. í B-hluta.  Auk þess eru 20 m.kr. í viðhald á eignum sveitarfélagsins. 

Umfangsmiklar breytingar hafa orðið á rekstri Grunnskóla Hornafjarðar síðustu ár.  Fyrst voru allir þrír skólarnir, Nesjaskóli, Hafnarskóli og Heppuskóli, sameinaðir, en á síðasta ári var Hafnarskóli tekin til gagngerra endurbóta og skólahald flutt úr Nesjum á Höfn.  Þessar breytingar leiða til hagræðingar í skólaakstri, rekstri húsnæðis og heildstæðara skólastarfs.  Á næsta skólaári verður ráðist í ákveðnar breytingar á gæslu og fjölda kennslustunda.

Ákveðið hefur verið að ráðast í að skoða starfsemi tónskólans sérstaklega, m.a. í tengslum við að Sindrabær hefur verið gerður að tónlistarhúsi og móta verður framtíð skólans með það fyrir augum.

Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar yfir sumartímann mun einnig verða tekin til skoðunar.

Hjalti greindi einnig frá fyrirhugaðri endurskoðun á stjórn og fundarsköpum Tillögum að nýrri samþykkt verði skilað af fráfarandi bæjarstjórn í vor og eftir kosningar verði það nýrrar bæjarstjórnar að ákveða hvort fram komnar tillögur verði samþykktar.

Þrátt fyrir mikla óvissu um þróun efnahagsmála ber flestum heimildum saman um að uppgangur hefjist þegar líða tekur á árið 2010.  Fjárhagur sveitarfélagsins er traustur um þessar mundir sem kallar ekki á viðamiklar breytingar í rekstri.

 

Helstu niðurstöðutölur í fjárhagsáætlun eru eftirfarandi:

 

A-hluti - sveitarsjóður 2009 (útkomuspá) 2010
Tekjur 1.334.512 1.248.500
Gjöld -1.249.290 -1.210.447
Fjarmagnsliðir -11.191) -27.507
Rekstrarniðurstaða 74.031 10.546
Veltufé frá rekstri 171.176 104.422
Handbært fé í árslok 435.359 214.992

 

B-Hluti Hafnarsjóður Veitur Kaupleiguíbúðir
Tekjur 129.150 59.000 31.700
Gjöld -83.632 -29.352 -21.040
Fjarmagnsliðir -7.705 -26.904 -24.815
Rekstrarniðurstaða 37.813 2.744 (14.155)
Veltufé frá rekstri 51.214 24.790 9.735
Framkvæmdir 53.500 38.500  

 

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 2009
Framlög 403.900
Aðrar tekjur 15.393
Sameiginlegur kostnaður færður á deildir -25.927
Laun og launatengd gjöld -312.765
Annar rekstrarkostnaður -140.802
Niðurstaða -8.347

 

Að lokinni yfirferð bæjarstjóra yfir fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2010 lagði hann til að henni verði vísað til áframhaldandi vinnu í bæjarráði og annarrar umræðu í bæjarstjórn.

Tillaga bæjarstjóra um að vísa fjárhagsáætlun ársins 2010 til áframhaldandi vinnu í bæjarráði og annarrar umræðu í bæjarstjórn borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða

3.        Fyrirspurnir  

Engar fyrirspurnir hafa borist.

 

 

Fundi slitið kl. 17:45


Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica