Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 146
146. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 3. september 2009 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Sigurlaug Gissurardóttir, Elín Magnúsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar, 472. fundur, 17. ágúst 2009.
Björk ræddi gangbrautarvörslu vegna barna á leið í skólann. Einnig ræddi hún möguleika á gangbrautarljósum. Björk sagðist ánægð með þær breytingar sem gerðar hafa verið á grunnskólanum og lýsti sérstakri ánægju með ávaxtabita að morgni og nýtt mötuneyti. Þá ræddi hún álit Skipulagsstofnunar vegna Hringvegar um Hornafjarðarfljót.
Elín ræddi öryggi barna á leið í skóla og taldi mikilvægt að það sé í góðu lagi og minntist þar á meðal á gangbrautarvörslu. Einnig ræddi hún hugmyndir um akstur innan bæjar á Höfn og vitnaði jafnframt í átakið “Göngum í skólann” og lagði út af því. Tók hún undir þær hugmyndir sem þar eru settar fram, mikilvægi hreyfingar, minni umferð og minni mengun. Þá spurði hún um fyrirhugaðan fund heimamanna með Vegargerðinni og spurði hvort komin væri dagsetning á hann.
Guðrún greindi frá gangbrautarvörslu sem nú væru á gatnabrautum Víkurbrautar og Hafnarbrautar sem hún sagði þyngstu gatnamót bæjarins hvað umferð varðar.
Hjalti ræddi álit Skipulagsstofnunar. Taldi hann að tilmæli stofnunarinnar um samráðshóp vart verða íþyngjandi. Hann sagði að Vegagerðin væri að fara yfir álit Skipulagsstofnunar. Hann sagði og að starfsmenn Vegagerðarinnar teldu að ekki yrði mikið um nýframkvæmdir á vegum á næstu mánuðum og jafnvel misserum. Fyrirhugaðan fund með Vegagerðinni og þingmönnum taldi hann að yrði í lok september í tengslum við ferð bæjarráðs til Reykjavíkur.
Reynir lýsti yfir mikilli ánægju með breytingar á Hafnarskóla. Sagði hann vel hafa verið að þessu verki staðið og að það muni nýtast okkur vel.
Hjalti ræddi einbreiðar brýr. Sagði að þar sem fyrirhugaðar breytingar væru á veglínum verði ekki farið í að setja upp tvíbreiðar brýr, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar,
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 473. fundur, 1. september 2009.
Guðrún ræddi vatnsmál, sbr. 3. lið í fundargerð bæjarráðs. Lýsti hún ánægju með það mál og þær fyrirætlanir sem uppi væru.
Björk óskaði upplýsinga um lausagöngu búfjár á vegsvæðum og hvers vegna bændur hafi ekki verið með í ráðum þegar lausagöngubann var ákveðið.
Sigurlaug fagnaði orðum Bjarkar og spurði hvenær mætti vænta aðgerða meðfram vegum utan hins forna Nesjahrepps.
Árni ræddi frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna. Ræddi hann um lýðræðið og það að traust almennings til Alþingis o.fl. stofnana væri nú í lágmarki vegna þeirra áfalla sem yfir okkur hafa dunið. Hann sagði að með þessu frumvarpi væri verið að opna fyrir möguleika á persónukjöri til sveitarstjórna. Árni fjallaði einnig um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins og hugmynda um að endurskoða þau. Viðarði hann ýmsar hugmyndir sem þar ættu að vera hafðar að leiðarljósi.
Hjalti sagði það sinn skilning að halda áfram vinnu við að banna lausagöngu búfjár á fleiri svæðum en nú eru að komast á. Huga þurfi að girðingum í því sambandi og að þetta byggist á samvinnu við Vegagerðina. Þá gerði hann að umtalsefni bréf frá bónda í Nesjum til sveitarfélagsins vegna girðinga meðfram þjóðvegi 1 og hver eigi að bera kostnað af þeim. Sagði hann að sveitarfélagið hafi fengið lögfræðiálit vegna þessa máls og á næstunni yrði bréfi bóndans svarað.
Björn Ingi ræddi lýðræðið og sagði mikið um það rætt. Hann sagði það jákvætt að stefna að persónukjöri en sagði ákv. ókosti vera í hinu nýja frumvarpi. Hann taldi m.a. að erfitt gæti orðið að fá fólk til að taka sæti á listum til sveitarstjórna ekki síst ef þeir verði allir óraðaðir, t.d. 7 manna óraðaður listi í 7 manna sveitarstjórn. Taldi hann réttara að raða hluta af listanum. Þá gerði hann kjör sveitarstjórnarmanna að umtalsefni og taldi að þau mætti bæta.
Árni sagði að það að skapa kjörnum bæjarfulltrúum kjör og aðstæður sem gerðu öllum kleift að gefa kost á sér til sveitarstjórna, sama hvaða starfsstétt þeir tilheyrðu, væri mikilvægt mál.
Sigurlaug þakkaði bæjarstjóra svar hans um lausagöngu búfjár meðfram þjóðvegum. Lagði hún áherslu á að þetta væri brýnt mál. Taldi hún bændur almennt vera jákvæða til þessa máls. Þá tók hún undir þau orð sem fallið hafa um kjör sveitarstjórnarmanna.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 145. fundur 20. ágúst 2009, fundargerð áður samþykkt.
2. Fyrirspurnir
Fundi slitið kl. 17:00


