Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 145
145. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 20. ágúst 2009 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Sigurjónsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar, 467. fundur, 8. júní 2009.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við Fjarskiptafélag Öræfa og fjallaði um drög að samningi við félagið. Hann sagði lagningu ljósleiðara vera mikið hagsmunamál fyrir íbúana. Þá gerði hann grein fyrir samskipum við Fjarska ehf. um sama mál.
Björn Ingi fjallaði um Fjarskiptafélagið og sagði þarna vera stórhuga menn sem beri að fagna. Einnig ræddi hann aðkomu sveitarfélagsins sem hann var með ákv. efasemdir um. Þá ræddi hann skýli í Hrossabitahaga fyrir útileikskólann. Hann benti á að þeir sem eldri eru, einkum unglingar, hefðu í huga yngri börnin sem notuðu skýlið.
Árni fjallaði um Fjarskiptafélagið og forsendur þær sem bæjarráð legði áherslu á að þyrftu að vera til staðar ef sveitarfélagið ætti að koma að þessu verkefni. Þá tók hann undir orð Björns Inga um skógarhýsi í Hrossabithaga.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 468. fundur, 22. júní 2009.
Guðrún gerði fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs að umtalsefni og þá einkum dvalarheimilið. Þá las hún upp bókun þar að lútandi sem hún lagði fram á fundi heilbrigðis- og öldrunarráðs í júlí sl. Guðrún bauð velkomna íbúa frá Djúpavogi sem búa muni á dvalarheimilinu.
Hjalti þakkaði Guðrúnu fyrir hennar orð um heilbrigðis- og öldrunarmál. Greindi frá fjölda sem eru í dvalarheimili og hjúkrunar- og sjúkradeild.
Árni spurðist fyrir um sauðfjarveikivarnalínu um Hornafjarðarfljót og fund sem haldinn var í Mánagarði um fyrirhugaðar breytingar Matvælastofnunar á þeirri línu.
Björn Ingi ræddi skólamáltíðir í Grunnskólanum og benti á að skólamáltíðir væru að lækka sem væri væntanlega með öðrum hætti en víða annars staðar. Sagði hann sjálfur hafa viljað sjá meiri lækkun en varð.
Hjalti greindi frá fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og sagði heimamenn hafa verið ósátta við ákvörðun Matvælastofnunar um sauðfjárveikivarnarlínu sem komið hafi eins og þruma úr heiðskíru lofti. Sagði að með því að opna leið á milli fyrrum varnarhólfa væri verið að auka hættu á útbreiðslu sauðfjárveiki. Þá greindi hann frá fundi í Mánagarði. Hjalti ræddi skólamáltíðir sem hafi lækkað úr 310 kr. í 250 á máltíð og var sáttur við þá lækkun.
Árni þakkaði bæjarstjóra fyrir svörin og tók undir orð hans um ákvörðun Matvælastofnunar. Þá þakkaði hann Birni Inga fyrir að vekja máls á lækkun skólamáltíða til grunnskólanema. Þá taldi hann matsal í Hafnarskóla muni eiga eftir að nýtast vel.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 469. fundur, 6. júlí 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 470. fundur, 20. júlí 2009.
Hjalti ræddi fund tveggja starfsmanna sveitarfélagsins í félagsmálaráðuneytinu um málefni fatlaðra. Hann gerði að umtalsefni fyrirhugaðan flutning málaflokksins til sveitarfélaga 2011. Benti hann á að mikilvægt væri fyrir okkur að sveitarfélagið verði eitt þjónustusvæði en væri ekki hluti af stærra svæði. Góð rök væru fyrir slíku enda reksturinn gengið vel undir formerkjum þjónustusamnings.
Árni greindi frá fundi í velferðarnefnd SASS og umræðum um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga 2011. Hann ræddi þjónustusvæðin og benti á að 8000 þúsund manna þjónustusvæði hentaði okkur ekki og reynslan af þjónustusamningnum væri með þeim hætti að við þyrftum ekki að vera hluti af stærri heild.
Björn Ingi ræddi hækkun tryggingagjalds og þær álögur sem þeirri hækkun fylgir fyrir sveitarfélagið. Benti á að þetta yki útgjöld sveitarfélagsins um 15 milljónir á ári.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 471. fundur, 4. ágúst 2009.
Guðrún ræddi gerði að umtalsefni auglýsingu á sundlauginni á vegamótum við þjóðveg 1. Þá skoraði hún á Vegagerðina að setja upp umferðarteljara á Hafnarveg.
Björn Ingi ræddi endanlegt uppgjör fyrir byggingu sundlaugar og stöðu á kostnaði við endurbætur á grunnskólanum. Sagðist bíða eftir þessum upplýsingum.
Hjalti sagði að það hafi verið rætt að auglýsa sundlaugina o.fl. á gatnamótum við þjóðveg 1. Þá greindi hann frá vinnu við uppgjör sundlaugar og stöðu við endurbætur á grunnskólanum
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 144. fundur 11. júní 2009, fundargerð áður samþykkt.
2. Bréf Stefáns B. Jónssonar f.h. Martölvunnar ehf. vegna tölvukaupa sveitarfélagsins
Hjalti greindi frá málinu og fór almennt yfir innkaup sveitarfélagsins. Lagði hann áherslu á að opinberir aðilar, s.s. sveitarfélagið, þurfi að gæta jafnræðis. Hann ræddi innkaupareglur sveitarfélagsins og tilgang þeirra. Hann sagði innkaup sveitarfélagsins almennt vera í traustu lagi og fátt við þau að athuga enda almennt ekki gerðar athugasemdir við þær. Hjalti þakkaði að lokum fyrir þær ábendingar sem fram koma í umræddu bréfi.
Björk fór yfir bréfið og lagði áherslu á að sveitarfélagið þurfi ávallt að temja sér vönduð vinnubrögð við innkaup á þess vegum. Spurði húnn hvort sveitarfélagið færi almennt eftir þessum reglum.
Björn Ingi fór yfir málið og gerði að umtalsefni fullyrðingu í bréfinu um vanhæfi hans til að taka þátt í afgreiðslu á tölvukaupum. Lagði hann áherslu á að hann væri ekki starfsmaður Hátíðni eins og fram kemur í bréfinu.
Árni sagðist vilja fjalla um þetta mál með almennum hætti. Sagði þó umrædd tölvukaup til grunnskólans á þessu sumri standast alla skoðun. Þá fór hann yfir innkaupamál og lög og samþykktir sem sveitarfélög sem aðrir opinberir aðilar þurfi að starfs eftir. Hann benti á innkaupareglur sveitarfélagsins sem undirstrikuðu að sveitarfélagið starfaði ekki í lagalegu tómarúmi. Lagði hann áherslu á að innkaup sveitarfélagsins væru almennt í góðum farvegi. Þá velti hann upp þeirri spurningu hvort tölvu- og upplýsingamál væru á einhvern hátt undanskilin almennum innkaupareglum. Ef svo væri þurfi að liggja fyrir því gild rök og menn þurfi að svara því hvort svo sé.
Hjalti þakkaði umræðuna. Sagði að sveitarfélagið hafi aldrei verið kært vegna innkaupa eftir að reglurnar hafi verið settir en vissulega hafi komið fram athugsemdir og ábendingar.
Björn Ingi sagðist í stórum dráttum vera sammála Árna. Hann lagði þó áherslu á að bæjarfulltrúar þurfi ávallt að horfa til þess að reka sveitarfélagið með sem hagkvæmustum hætti. Sé sveitarfélagið með samning sem almennt er ekki kvartað undan, svo sem tölvuþjónustu, sé ekki endilega ástæða til að bjóða út bara vegna þess að menn telji nauðsynlegt að bjóða eitthvað út.
Árni þakkaði málefnalegar umræður um brýnt mál. Fór hann yfir málið og staldraði einkum við útboð á tölvuþjónustu og hvort með einhverjum hætti væri ástæða til bjóða ekki út. Þá tók hann undir orð Björns Inga um hagkvæman rekstur bæjarsjóðs.
Björn Ingi spurði hvort reglur gætu verið afturvirkar. Sagði núverandi samning um tölvuþjónustu vera ótímabundinn og ekki útrunninn.
Hjalti sagði sveitarfélagið geti sett sér reglur en benti einnig á siðferði og réttlætiskennd. Það væru fleiri viðmið en lög og reglur.
Árni sagðist biðjast forláts á því hafi hann valdið einhverjum misskilningi um gildistíma núverandi samnings um tölvuþjónustu. Lagði jafnframt áherslu á almennt siðgæði í viðskiptum opinberra aðila.
3. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fundi slitið kl. 17.40


