Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 143
143. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, þriðjudaginn 12. maí 2009 kl. 16:00 í ráðstefnusal Nýheima.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar, 458. fundur, 14. apríl 2009.
Björk byrjaði á því að óska okkur öllum til hamingju með nýju sundlaugina. Lagði til að gerð verði könnun meðal notenda hennar. Hún spurðist fyrir um fund með íbúum á Leirusvæði og spurði einnig um hvenær lóðir á Leirusvæði verði tilbúnar. Hún spurði um hvenær mætti sjá nýjan þjónustusamning um heilbrigðismál. Einnig spurt um hreinsivirki vegna skólps og um Vinnuskóla sveitarfélagsins.
Sigurlaug tók undir árnaðaróskir með nýja sundlaug. Þá ræddi hún hönnun á hreinsivirkjum og nýjar lausnir í því sambandi. Einnig ræddi Sigurlaug friðlýsingu á landsvæðum í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð. Sagði að það ylli henni vonbrigðum með að sameina eigi alla þjóðgarða undir eina stofnun, sbr. nýjan stjórnarsáttmála. Sigurlaug sagði veginn að Jöklaseli vera meginleið inn í Vatnajökulsþjóðgarð og því þurfi að halda á lofti.
Halldóra tók undir ábendingu Sigurlaugar um þjóðgarðinn og lagði til að samþykkt verði bókun á þessum fundi um málið.
Reynir sagðist ekki hafa kynnt sér þetta ákvæði í stjórnarsáttmála um þjóðgarðinn.
Hjalti svaraði fyrirspurnum sem fram voru bornar. Benti m.a. á að ný drög að þjónustusamningi um heilbrigðismál hafi borist fyrir viku. Sumt í þeim drögum væri gott og annað síðra. Hann greindi frá tillögum Bólholts að hreinsum skólps og því samstarfi sem verið hefur við fyrirtækið. Hjalti sagði aukinn áhuga vera á vinnu ungmenna við Vinnuskólann. Hjalti taldi að umræða og hugsanleg bókun um þjóðgarðinn fari fyrst fyrir bæjarráð, menn þurfi að kynna sér málið áður en engra verður haldið.
Árni tók undir orð bæjarstjóra um meðferð málsins. Hann sagði að undir niðurskurðarhníf ríkisstjórnar lægi allt en ástæðu þess taldi hann ekki mega rekja til núverandi stjórnar, þar bæru aðrir ábyrgð.
Halldóra sagðist geta fallist á að málefni þjóðgarðsins fari fyrst fyrir bæjarráð. Þá ræddi hún staðsetningu höfuðstöðva Vatnajökulsþjóðgarðs í Reykjavík sem hún sagði hafa verið á ábyrgð Samfylkingarinnar. Hún ræddi sjávarútvegsmál og áform um breytingar á þeim málaflokki, undirstöðu okkar byggðarlags. Þau mál þurfi að taka aftur fyrir í bæjarráði.
Hjalti las upp úr stjórnarsáttmála það sem sagt er um þjóðgarða landsins. Hjalti sagði sátt hafa verið um bókun bæjarráðs um sjávarútvegsmál. Þá verði óskað eftir fundi með útvegsmönnum hér um stöðu málaflokksins og eftir það óskað eftir fundi með forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra.
Árni sagði pólitíska skipan landsmála hafa riðlast, þess bæri fundurinn greinilega merki. Hann sagðist taka undir orð Halldóru um þjóðgarðinn og staðsetningu aðalstöðva hans enda hafi hann lagst gegn þeirri ráðstöfun og hlotið bágt fyrir hjá Samfylkingunni. Hann ræddi sjávarútvegsmál og mikilvægi greinarinnar fyrir samfélagið. Hann sagði nauðsynlegt að sköpuð verði sátt um sjávarútvegsmál en ósátt væri í landinu um málaflokkinn. Sátt og varanlegur stöðugleiki hlyti að vera markmiðið.
Sigurlaug óskaði nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum, ekki veitti af enda verkefnin mörg og erfið. Við þurfum öll að taka höndum saman um að leysa vanda þjóðarbúsins. Sigurlaug taldi að reynt verða að færa allt á suðvesturhornið sem hægt verði og gegn því þurfi að berjast.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 459. fundur, 20. apríl 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 460. fundur, 27. apríl 2009.
Elín ræddi skólaakstur og tómstundir barna í dreifbýli. Hún taldi mikilvægt að öll börn geti stundað þær tómstundir sem í boði eru. Þá ræddi hún markaðssetningu á nýju sundlauginni sem hún taldi mjög mikilvæga.
Björk ræddi atvinnuleysi og spurði hvort sveitarfélagið væri með aðgerðaráætlun þess vegna. Þá tók hún undir orð Elínar um sundlaugina.
Hjalti greindi frá vinnu sem fram hefur farið vegna atvinnuleysis. Hann sagði það niðurstöðu Vinnumálastofnunar að ástandið væri ekki alvarlegt hér. Telji menn að ástandið verði alvarlegt muni verða brugðist við. Menn væru vakandi í þessu máli.
Árni þakkaði frumkvæði Elínar og skólanefndar með könnun á akstri vegna tómstunda barna í sveitarfélaginu.
Sigurlaug sagði það hljóma vel í sínum eyrum að jafna aðstöðu barna í sveitarfélaginu hvað tómstundir varðar. Þá ræddi hún störf sem ferðaþjónustan skapar, ekki síst fyrir ungt fólk. Benti á að gallinn væri sá að þau hyrfu mörg hver í skóla upp úr miðjum ágúst. Taldi skólana þurfa að koma til móts við ungt fólk. Þá óskaði Sigurlaug þeim til hamingju sem kynntu frumkvöðlaverkefni sín í Nýheimum sl. föstudag. Taldi Vinnumálstofnun mega leggja slíkum verkefnum lið.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 461. fundur 4. maí 2009.
Björk ræddi samning um sorpurðunarsvæði og óskaði eftir upplýsingum um þau mál. Þá ræddi hún um fyrirhugað kynningarmyndband fyrir sveitarfélagið og spurði hvort aðdragandi þess væru eðlileg vinnubrögð.
Hjalti greindi frá núverandi samningi um sorpurðun í Lóni og óska landeigenda um endurskoðun á honum. Þá greindi hann frá aðdraganda þess kynningarmyndbands sem fyrirhugað er að gera. Taldi hann þetta vera góðan samning og höfundur muni skila góðu verki. Sagðist hann sannfærður um að það muni nýtast vel, ferðaþjónustu og sveitarfélagi.
Halldóra ræddi fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar þar sem fjallað er um umsókn um að reka kaffihús að Hafnarbraut 2. Hún ræddi skort á bílastæðum við húsið og taldi að skoða hefði mátt málið betur áður en það var afgreitt. Óskaði hún eftir því að farið yrði yfir málið. Fannst að nefndin hafi afgreitt málið frá sér í hálfgerðu fljótræði.
Hjalti fór yfir málið. Sagði skipulagið gera ráð fyrir að á svæðinu færi fram atvinnustarfsemi. Sýslumaður gæfi út leyfi til rekstrar. Þá greindi hann frá tilurð málsins að öðru leyti. Hann lagði áherslu á að sveitarfélagið þurfi að vanda sig við þessa vinnu sem aðra. Fagnaði hann því að frumkvöðlar vildu hefja slíka starfsemi í húsinu.
Árni sagði rétt vera að málið hafi borið brátt að. Byggingar- og skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við starfsemina enda samrýmdist hún skipulaginu. Þá ræddi hann gerð bílastæða og framkvæmda við þau.
Sigurlaug spurðist fyrir um hver staðan væri í viðræðum um menningarsamning. Þá fagnaði hún fyrirhuguðum rekstri kaffihúss að Hafnarbraut 2.
Hjalti greindi frá því að menningarsamningur með sveitarfélögum á Austurlandi yrði kláraður en hann rennur út í árslok 2010.
Halldóra ræddi kaffihús að Hafnarbraut 2. Sagðist ekki hafa fengið skýr svör. Sagði að bæjarfélagið eigi ekki að sjá um bílastæði fyrir atvinnurekstur. Þá taldi hún það ekki tryggja samkeppni að gera bílastæði fyrir sum fyrirtæki en ekki önnur. Kallaði hún eftir reglum um þau mál. Halldóra sagði að auðvitað hefðu Austfirðingar ekki samþykkt að Sveitarfélagið Hornafjörður ætti ákv. hlut í menningarsamningnum og komið hafi í ljós að sveitarfélagið tapi 9 milljónum á að snúa sér að samskiptum suður.
Hjalti greindi frá samskiptum við Austfirðinga um menningarsamninginn en sagði allt tal um 9 milljóna tap ekki vera svaravert. Þá sagði hann að menn hefðu séð ákveðinn kost í því að tryggja bílastæði fyrir Hafnarbraut 2 en ekki síður fyrir allt hafnarsvæðið.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 142. fundur 2. apríl 2009, fundargerð áður samþykkt.
2. Ársreikningar 2008 – fyrri umræða
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningum úr hlaði. Kom fram í máli hans að tekjur hafi verið hærri en áætlun gerði ráð fyrir en heildargjöld sveitarfélagsins samkvæmt áætlun. Útkoman væri því jákvæð. Fjárfestingar í A hluta voru 366,5 m.kr. og samstæðunnar alls 413,6 m.kr. Alls voru tekin lán hjá A og B hluta að upphæð 147,3 m.kr. og afborganir voru 105,9 m.kr.. Í máli bæjarstjóra kom fram að staða sveitarsjóðs væri góð en ljóst að tekjufall á árinu 2009 verði umtalsvert. Það hjálpi til að engir fjármunir glötuðust í bankahruninu og greiðslugeta sveitarfélagsins er traust. Í endurskoðunarskýrslu hafi komið fram að allar kennitölur beri með sér trausta fjárhagsstöðu og rekstur. Í máli bæjarstjóri kom fram að rekstrargjöld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði hafi ekki vaxið nærri eins mikið eins og almennt gerðist hjá sveitarfélögum á árunum 2003-2008. Komi það sér vel í því árferði sem nú ríkir.
Bæjarstjóri þakkaði bæjarstjórn, framkvæmdastjórum,forstöðumönnum og starfsmönnum öllum fyrir vel unnin störf og þakkaði þeim þann árangur sem ársreikningar bæru með sér.
Halldóra B. Jónsdóttir sagði að staða sveitarfélagsins er sterk og lagði hún fram eftirfarandi bókun sjálfstæðismanna við afgreiðslu ársreikninga sveitarfélagsins fyrir árið 2008.
Fjárhagsstaða Sveitarfélagsins Hornafjarðar er sterk sem kemur sér vel í þeirri niðursveiflu sem nú er. Umhugsunarvert er hvort sveitarfélagið eigi að vera með digra sjóði eða nýta meira fé til uppbyggingar samfélagsins. Eftir hrun fjármálakerfisins síðastliðið haust tóku mörg sveitarfélög sig til og endurskoðuðu reksturinn. Framlag úr jöfnunarsjóði jókst umtalsvert síðustu ár. Nú má gera ráð fyrir að það framlag muni lækka til muna. Því teljum við sjálfstæðismenn að sem fyrst þurfi að endurskoða rekstur sveitarfélagsins til að mæta þeim breytingum sem óhjákvæmilegar verða á næstu mánuðum eða árum. Því mikilvægt er að eðlilegt hlutfall sé milli rekstur og framkvæmda.
Ljóst er við skoðun á ársreikningi ársins 2008 að fjárhagsáætlun er ekki notuð sem það stýritæki sem hún á að vera eins og við sjálfstæðismenn höfum áður bent á. Enn eitt árið eru framkvæmdir og fjárfestingar aðeins 66% af áætlun auk þess er farið í fjárfestingar á vegum sveitarfélagsins án þess að fyrir liggi samþykki bæjarstjórnar fyrirfram.
Halldóra benti á að ársreikningar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands væru ekki komnir til afgreiðslu, taldi hún það óforsvaranlegt, taldi hún að þeir ættu að vera tilbúnir í mars.
Las hún síðan upp úr endurskoðendaskýrslu varðandi ávöxtun á handbæru fé. Þakkar hún starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir þeirra starf við uppgjör ársins.
Árni Rúnar Þorvaldsson tók til máls og talaði um stjórnkænsku, telur hann mikilvægt að staða sveitarfélaga væri sterk þegar kreppir að. Sagði hann að við verðum að vera viðbúin að verja þau störf sem hér eru. Hjalti Þór Vignisson ræddi um ársreikninginn og stöðu sveitarsjóðs. Sigurlaug Gissurardóttir sagði að ekki mætti eyða um efni fram eins og sum sveitarfélög hafa gert. Taldi hún að hér væri sterkt samfélag. Björk Pálsdóttir talaði um einelti og algert virðingarleysi. Hjalti Þór sagði að hann tæki allri gagnrýni ef hún væri málefnaleg. Árni taldi að ekki væri um neitt einelti að ræða heldur svar við ómálefnalegri gagnrýni.
Halldóra B. Jónsdóttir talaði um ótrúleg viðbrögð meirihlutans og vonaðist hún til að meirihlutinn komi með málefnalega umræðu um ársreikninginn. Sigurlaug Gissurardóttir lýsir yfir ánægju yfir stöðunni. Elín Magnúsdóttir tók til máls undir þessum lið og gerði athugasemdir við málflutning Halldóru.
Forseti gerði tillögu um að ársreikningum yrði vísað til annarrar umræðu.
Samþykkt samhljóða.
3. Breytingar á aðalskipulagi vegna nýs hringvegar yfir Hornafjarðarfljót – seinni umræða
Forseti fylgdi málinu úr hlaði. Kom fram í máli hans að skipulagstillagan hafi verið auglýst eins og lög gera ráð fyrir og bárust tvær athugasemdir. Byggingar- og skipulagsnefnd hefur fjallað um athugasemdirnar og tekið afstöðu til þeirra. Forseti gerði það að tillögu sinni að auglýst aðalskipulagstillaga stæði óbreytt þrátt fyrir þessar athugasemdir með þeim röksemdum sem fram koma í svörum byggingar- og skipulagsnefndar og bæjarráðs. Árni gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið og las upp svörin eins og þau koma frá bæjarráði og gerði það að tillögu sinni að bæjarstjórn gerði þau að sínum. Forseti lagði til að framangreind svör verði staðfest.
Halldóra ræddi breytingar á vegstæðum frá núgildandi aðalskipulagi sem hún taldi minni háttar. Hún óskaði þess að þar sem flugvöllurinn er tekinn út úr þessari tillögu að aðalskipulagi samþykki hún þessa breytingu með þeim fyrirvara að það sé ekki endanleg ákvörðun bæjarstjórnar og verði tekin upp við vinnu að nýju aðalskipulagi sem samþykkja á í desember nk.
Forseti bar upp tillögu að svörum vegna athugasemda við aðalskipulag. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða af öllum bæjarfulltrúum..
Forseti bar upp tillögu um að skipulagstillagan verði samþykkt og send til Skipulagsstofnunar til meðferðar og afgreiðslu og eins og lög gera ráð fyrir.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða af öllum bæjarfulltrúum.
4. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fundi slitið kl. 19:10


