Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 142
142. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 2. apríl 2009 kl. 16:00 í fundarhúsi Lónmanna.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Gunnar I. Valgeirsson, Guðrún Ingimundardóttir, Einar Karlsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. Tæknisviðs.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar, 454 fundur, mánudaginn 9. mars 2009.
Bæjarstjóri vakti athygli á þremur málum í þessari fundargerð, það er sölu á íbúðum í eigu sveitarfélagsins, í öðru lagi vakti hann athygli á gjöf úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur þ.e. verk eftir Svavar Guðnason og í þriðja lagi heimsókn framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarð um svæðið.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 455. fundur, mánudaginn 16. mars 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 456. fundur, mánudaginn 23. mars 2009.
Bæjarstjóri ræddi um jarðhitaleit og sagði að það væri ánægjulegt að heitt vatn fannst í Skaftafelli í öðru lagi greindi hann frá stöðu mála við Grjótbrú, taldi að málið væri á góðri leið. Árni R. Þorvaldsson tók til máls og gerði grein fyrir nýtingu tómstundakorts. Björn I. Jónsson gerði að umtalsefni byggingu á nýju sundlauginni og taldi að passar þurfi vel upp á kostnað á þessum síðustu metrum en samt að vanda til verksins. Einnig ræddi hann um sölu á gömlu lauginni og lýsti yfir ánægju með fyrirætlanir hæstbjóðenda varðandi nýtingu en sagði líka að hugmyndir Jóns Björnssonar væru áhugaverðar. Elín Magnúsdóttir tók til máls og tók undir með Birni Inga varðandi gömlu sundlaugina en taldi að hin hugmyndin væri spennandi. Hún spyr bæjarstjóra um útibú Lyfju á Höfn. Hjalti Þór Vignisson upplýsti um stöðu mála varðandi útibú Lyfju. Hann vekur athygli á að það liggja fyrir drög að byggðaáætlun á netinu og hvetur fólk til að kynna sér vel málið.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 457. fundur, 30. mars 2009.
Guðrún Ingimundardóttir ræddi um fundargerð Menningar- og tómstundarnefnd og umræður um Álaugarey á þeim fundi. Hjalti Þór Vignisson talar um smáframleiðslu á matvælum og aðkomu bæjaryfirvalda að málinu. Árni R. Þorvaldsson ræddi um breytingu á menningarsamningi og flutningi yfir í Suðurkjördæmi, einnig ræddi hann um gömlu sundlaugina og taldi að báðar hugmyndir um nýtingu hennar væri góðar en bæjarráð hafi á endanum tekið afstöðu á grundvelli verðs. Hjalti Þór Vignisson óskar Ásbirni og Vigdísi til hamingju með gömlu sundlaugina, en taldi að hugmynd Jóns Björnssonar væri afar spennandi og til þess fallinn að bæjaryfirvöld ættu að leita allra leiða að greiða götu hennar. Sagði hann að um ungan Hornfirðing væri að ræða sem nýkominn væru úr hönnunarnámi og fyrirhuguð starfsemi væri rík viðbót við samfélagið okkur. Einnig ræddi hann um nýjan menningarsamning. Björn I. Jónsson taldi að til væri hús fyrir Jón Björnsson sem væri Pakkhúsið. Árni R. Þorvaldsson þakkaði bæjarstjóra fyrir upplýsingar um menningarsamninginn.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 141. fundur 11. mars 2009, fundargerð áður samþykkt.
2. Fyrirspurnir
Engar
Fundi slitið kl. 16.50


