Gamla - Atvinnumálanefnd

Fudnargerð atvinnumálanefndar 53

53. fundur

 

Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar, haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 20. október 2009 og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu:

Eyjólfur Guðmundsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hjalti Þór Vignisson,  

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

Dagskrá:

1.      200910038 - Matvælaverkefni

Guðmundur H. Gunnarsson kom á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir hvernig unnið hefur verið að þróun matvæla í samræmi við styrkveitingu atvinnumálanefndar fyrr á þessu ári. Í máli Guðmundar kom fram að framvindan hafi verið góð. Lagði hann fram yfirlit yfir öll verkefni sem komið hafa á hans borð undanfarna 12 mánuði, alls 29 verkefni en þ.a. studdi sveitarfélagið 14 verkefni. Sagði hann að ýmis verkefni hafi verið óvænt sem sýndi gildi þess að koma upp matvælasmiðjunni. Þá lagði hann fram drög að tveimur vöruþróunarskýrslum um afurðir sem studdar voru af sveitarfélaginu.
Um framhaldið sagði Guðmundur að myndast hafi ákveðinn kjarni smáframleiðenda sem hafa áhuga á samvinnu um markaðssetningu og sölu. Ræddi hann um ýmsar leiðir en taldi mikilvægast að styðja áfram við framleiðsluferlið eins og gert var síðasta haust. Taldi að greinin þyrfti enn að fá að efla sig á sviði framleiðslu og vöruþróunar áður en haldið verður lengra.
Guðmundur greindi frá verkefni sem hann veitir forstöðu og heitir "matur og sjálfbær ferðaþjónusta" sem gengur út á að reyna að selja sem mest af matvöru sem framleitt er í héraði í héraðinu sjálfu í tengslum við ferðaþjónustu.

2.      200910018 - Markaðsstofa Suðurlands

Hjalti greindi frá samtali við forsvarsmenn markaðsstofunnar og forsvarsmanna Ríki Vatnajökuls.. Kom fram að ef sveitarfélagið taki þátt sé heildarkostnaður um 700 þús. Atvinnumálanefnd telur að markaðssetning með stærra svæði sé mikilvægt í kynningarstarfi. Atvinnumálanefnd leggur því til að gengið verði til samstarfs við önnur svæði á Suðurlandi um rekstur Markaðsstofu en önnur framlög sveitarfélagsins í auglýsingar verði skertar sem því nemur.

3.      200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður

Atvinnumálanefnd samþykkir að auglýsa styrki úr sjóðnum og veita á árinu 2010 alls kr. 4.4 m.kr. sem er 20% af eftirstöðvum atvinnu- og rannsóknasjóðs.

4.      200705114 - Önnur mál

Hjalti gerði grein fyrir stöðu í orkuverkefni.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   17.00


Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica