Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 52
52. fundur
Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 1. september 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hjalti Þór Vignisson, Herdís Waage,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Rætt um undirbúning að úthlutun úr atvinnu- og rannsóknasjóði. Starfsmanni falið að gera drög að auglýsingu og einnig að leggja fram yfirlit um framgang verkefna sem stutt var við þetta árið.
2. 200908053 - Vatnsmál - staða 1. sept 2009
Hjalti gerði grein fyrir framgangi verkefnisins um undirbúning að vatnsverksmiðju.
3. 200908052 - Samstarf við Listaháskóla Íslands
Hjalti gerði grein fyrir fundi með starfsmönnum hönnunardeildar. Næsta skref er að hönnunardeild Listaháskólans útfæri hugmyndir um samstarf.
4. 200908051 - Staða í atvinnumálum 1. september 2009
Skv. upplýsingum frá Vinnumálastofnun þann 31. ágúst 2009 voru 10 á skrá, 8 konur og 2 karlar. Þar af eru þrír í hlutastarfi.
5. 200705114 - Önnur mál
Spurt um fjallskil. Upplýst að sami háttur verði hafður á og í fyrra.
6. 200810080 - Útflutningur vatns
Hjalti gerði grein fyrir framgangi verkefnisins um undirbúning að vatnsverksmiðju.


