Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 50
50. fundur
Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi mánudaginn 20. apríl 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804056 - Staða á atvinnuleysisskrá
Kom fram að 35 voru skráðir þann 14. apríl, 18 karlar og 17 konur. Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við forsvarsmenn Vinnumálastofnunar á Austurlandi og starfsmenn Þekkingarnets Austurlands. Hjalti upplýsti um átak sem sveitarfélagið hefur ákveðið að ráðast í í samvinnu við skógræktarfélagið.
2. 200901057 - Byggðaáætlun 2010-2013
Greint frá drögum að byggðaáætlun 2010-2013. Lagt fram minnisblað um stöðu Suðausturlands í byggðamálum, dags. 15. apríl 2009.
3. 200904066 - Skapandi atvinnugreinar
Rætt um skilgreiningu á skapandi atvinnugreinum. Rætt um hönnun, listir, menningarstarfsemi, hugbúnaðargerð og fleira í þeim anda. Hjalti greindi frá fundi sínum með framkvæmdastjóra Íslenska dansflokksins sem er tilbúinn að koma að þessari uppbyggingu. Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að fá til liðs við þessa hugmynd fólk sem hefur reynslu og þekkingu á þessu sviði og tengsl bæði innan lands og utan. Stefnt að því að halda fund um málefnið á Hornafirði í maí.
4. 200705114 - Önnur mál
Ásgrímur greindi frá fundi með bændum um heimafóður. Greindi frá umræðum á fundinum þar sem rætt var um þurrkun og kögglun á korni.


