Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 48
48. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar í ráðhúsi, fimmtudaginn 19. febrúar 2009 og hófst hann kl. 12:00Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200902060 - Fræðaþing landbúnaðarins
Guðmundur H. Gunnarsson hjá Matís mætti á fundinn kl. 12.00.
Hjalti gerði grein fyrir erindum og umræðum á Fræðaþingi landbúnaðarins fyrr í mánuðinum. Kom fram að aukinn áhersla sé á smáframleiðslu í matvælum og nýsköpun í landbúnaði. Sagði að margt benti til þess að auknir möguleikar væru að skapast í landbúnaði. Nefndi Hjalti að sveitarfélagið gæti beitt sér fyrir að kortleggja sveitarfélagið með tilliti til gæði ræktunarlands, auka grunnrannsóknir í náttúrufari til að bæta jarðgæði og setja af stað stefnumótun fyrir smáframleiðslu á matvælum o.s.frv.
Mikil umræða skapaðist í framhaldi um mikilvægi þess að gæta vel að skipulagi á jörðum og samþykkti nefndin að taka landnýtingu í sveitarfélaginu fyrir sem sérstakan lið á næstu fundum nefndarinnar. Upplýsti Guðmundur að á Slow Food ráðstefnu sl. haust hafi eitt megiðumræðuefni verið skortur á landi.
2. 200902061 - Smáframleiðsla á matvælum - stefnumótun
Guðmundur sagði frá því að á fræðaþingi landbúnaðarins hafi mikið verið skírskotað til Hornafjarðar um árangur í smáframleiðslu matvæla. Sagði Guðmund að skorti á heildarstefnumörkun fyrir landið í heild og fyrir sveitarfélagið sérstaklega. Sagði Guðmundur að stefnumótun hér þyrfti að setja fram skýr mælanleg markmið, t.d. um fjölda starfa í þessari atvinnugrein, aukinni framlegð og hlutdeild staðbundrar framleiðslu í heildarneyslu á svæðinu. Ræddi Guðmundur um verkefni sem stutt voru af atvinnumálanefnd núna í byrjun árs sem væri mikilvægt framlag í að hefja þessa stefnumótun. Það kæmi í ljós hversu raunhæfar þessar hugmyndir eru í haust og þá væri hægt að ljúka við stefnumótun. Guðmundur upplýsti að nú væru þrír aðilar utan héraðs að velta fyrir sér að koma í matarsmiðjuna til að vinna vörur.
Atvinnumálanefnd samála um að hefja vinnu að stefnumótun í smáframleiðslu matvæla núna í vor sem lyki í haust þegar reynsla væri kominn á þau verkefni sem studd voru af atvinnumálanefnd. Guðmundur samþykkti að taka þátt í þessari vinnu með nefndinni.
Guðmundur vék af fundi kl. 12.40
3. 200804056 - Staða á atvinnuleysisskrá
Hjalti upplýsti um stöðu atvinnumála frá því í byrjun febrúar en þá voru 30 á atvinnuleysiskrá. Upplýsti einnig að hann hafi fundað með yfirmanni Vinnumálastofnunar á Austurlandi. Á þeim fundi var falið vel yfir ástandið og niðurstaðan sú að ekki sé enn tímabært að grípa til sérstakra ráðstafana í atvinnumálum.
Eyjólfur ræddi um mikilvægi þess að sveitarfélagið tengdist atvinnuleysiskránni með beinum hætti til að geta staðið undir ábyrgð sinni að halda vörð um fjölskyldur á svæðinu. Taldi mikilvægt að til að fylgjast með þróuninni og var því velt upp hvort félagsmálastjóri gæti ekki tengst skránni með beinum hætti.
4. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Lagt fram drög að endurskoðun. Samþykkt að ljúka við greinargerðina á næsta fundi.
5. 200705114 - Önnur mál
Stephen ræddi um nauðsyn þess að ráðast í úrbætur á fjarskiptamálum í dreifbýli.


