Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 47
47. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefndar Hornafjarðar ráðhúsi, fimmtudaginn 29. janúar 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Gunnar Sigurjónsson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Lagt fram erindi frá starfshópi um endurskoðun á aðalskipulagi, dags. 5. janúar 2009. Mikil umræða skapaðist og gert uppkast að greinargerð. Samþykkt að taka erindið fyrir aftur á næsta fundi og ljúka við tillögugerð.
2. 200901072 - Samstarfsverkefni um rannsókn og þróun á sviði jarðefna, líftækni og orku
Atvinnumálanefnd fagnar hugmyndinni og hvetur til að skrifað verði undir samning.
3. 200812057 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla - umsókn Sigurður Hannesson
Samþykkt leyfi fyrir 15 fjár.
4. 200812058 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýlis - umsókn Ingólfur Vopni Ingvason
Samþykkt leyfi fyrir 15 fjár.
5. 200812059 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla - umsókn Haukur Sveinbjörnsson
Samþykkt leyfi fyrir 15 fjár.
6. 200812060 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla - umsókn Jóhann Karl Arnarson
Samþykkt leyfi fyrir 15 fjár.
7. 200901083 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla- umsókn Einar Þórólfsson
Samþykkt leyfi fyrir 15 fjár.
8. 200901084 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla - umsóknSvava Gunnarsdóttir
Samþykkt leyfi fyrir 15 ær.
9. 200901085 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla - umsókn Anna Guðmundsdóttir
Samþykkt leyfi fyrir 15 ær og bent er á að húsið er ekki á skipulagi. Atvinnumálanefnd gefur þriggja ára aðlögunartíma.
10. 200901086 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla - umsókn Helgi Karlsson
Samþykkt leyfi fyrir 15 ær. Atvinnumálanefnd gefur þriggja ára aðlögunartíma.
11. 200901087 - Leyfi til búfjárhalds utan lögbýla-umsókn Gunnar Páll Halldórsson
Samþykkt leyfi fyrir 15 ær.
12. 200901095 - Sérstakur hagur atvinnulausra
Atvinnumálanefnd tekur undir sjónarmiðin sem koma fram í bréfinu.
13. 200901096 - Bótaréttur vegna framkvæmda í almannaþágu og framkvæmda eignarnáms
Til kynningar.
14. 200901102 - Atvinnuástand á Hornafirði í janúar 2009
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að Vinnumálastofnun gefi sem bestar upplýsingr um bakgrunn þeirra sem eru á atvinnuleysiskrá, t.d. hvað varðar menntun þeirra, úr hvaða atvinnugrein þau koma, óskir viðkomandi um starf eða menntun og fleira sem gagnast getur til að móta úrræði fyrir þennan hóp.
Lagt fram minnisblað dags. 29. janúar 2009 um atvinnuástand á Hornafirði. Þar eru settar fram níu hugmyndir um úrræði sem grípa má til. Vísað til bæjarráðs
15. 200705114 - Önnur mál
Rætt um virkjunaráform við Hof í Öræfum. Gunnar Sigurjónsson upplýsti um stöðu mála.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00


