Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 40
Fundur 40
Fundur atvinnumálanefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 26. júní 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson, Ingvar Þórðarsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 0609001 - Vatnajökulsþjóðgarður
Rætt um Vatnajökulsþjóðgarð og auglýsingu um starf skrifstofumanns í miðborg Reykjavíkur. Atvinnumálanefnd tekur heilshugar undir bókun bæjarráðs frá 23. júní sl.
Í framhaldinu sköpuðust umræður um þjóðgarðsmál almennt. Hjalti upplýsti um að ráðstefna um atvinnulíf og þjóðgarða væri í fullum undirbúningi. Eins ræddi hann um vinnu Háskólasetursins í tengslum við þjóðgarða.
2. 200705114 - Önnur mál
Hjalti greindi frá erindi frá nefnd um fjölskyldustefnu. Samþykkt að taka það fyrir í haust.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30


