Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 38

38. fundur

Fundur í atvinnumálanefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 14. apríl 2008 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Ásgrímur Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hjalti Þór Vignisson,

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

1.      200804061 - Staða á fasteignamarkaði apríl 2008

Snorri Snorrason hjá fasteignasölunni Inni kom á fundinn undir þessum lið og sagði frá stöðunni á fasteignamarkaði á Hornafirði. Sagði hann að leigumarkaður væri sterkur og að vöntun væri á leiguíbúðum. Sagði hann að þetta væri breytt staða frá því fyrir um einu ári síðan. Þá gerði hann grein fyrir eignum íbúðalánasjóðs á svæðinu sem eru átta talsins og eru tómar vegna reglna sjóðsins um að leigja ekki út eignir. Á sölumarkaði var lítil hreyfing frá byrjun árs og fram til páska. Sölumarkaður var líflegur fyrstu 9 mánuði ársins í fyrra og þá voru fáar eignir á sölu í lok þess tíma. Snorri gerði grein fyrir þeim eignum sem eru á söluskrá. Þá gerði hann grein fyrir eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði.

 Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að sveitarfélagið örvi fasteigna- og leiguíbúðamarkaðinn m.a. með því að kanna kosti þess að ganga til samninga við verktaka um að hefja byggingu á leiguíbúðum.

2.      200804056 - Staða á atvinnuleysisskrá

Kom fram að skv. upplýsingum í byrjun apríl eru 9 á atvinnuleysisskrá, 6 karlar og 3 konur.

3.      200804055 - Ráðstefna um byggðamál

Hjalti gerði grein fyrir yfirlýsingu formanns Sambands sveitarfélaga um hugmynd Sambandsins um að halda byggðamálaráðstefnu á Hornafirði í haust. Gerði Hjalti grein fyrir samskiptum sínum við framkvæmdastjóra Sambandsins og aðstoðarmenn ráðherra sem koma einnig að þessum undirbúningi. Sagði Hjalti að enn hafi ekki endanlega ákvörðun verið tekinn um hvort og hvar þessi ráðstefna verði haldin.
Atvinnumálanefnd fagnar áformum stjórnar Sambands sveitarfélaga um að halda ráðstefnu um byggðamál og þeim áhuga sem hefur komið fram um að halda hana á Hornafirði.

4.      200804058 - Ráðstefna um Þjóðgarða, atvinnulíf og nýsköpun

Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum um alþjóðlega ráðstefna um þjóðgarða, atvinnulíf og nýsköpun í samstarfi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, stofnana í Nýheimum og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs. Kom fram að markmið ráðstefnunnar er að kortleggja tækifæri í nýsköpun í atvinnulífi í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Fengnir verða erlendir fyrirlesarar á ráðstefnuna sem fjalla m.a. um markhópa og markaðssetningu.

5.      200804059 Hagtölur apríl 2008

Lagðar fram tölur um íbúaþróun, aldursamsetningu og stöðu á vinnumarkaði.

6.                  200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður (Stefán Ólafsson mætti á fundinn undir þessum lið). Bæjarráð ákvað á 414. fundi sínum að vísa tillögu bæjarstjóra um ráðstöfun þeirra fjármuna sem fást af sölunni af Nesjaskóla til atvinnumálanefndar. Hjalti gerði grein fyrir hugmynd að atvinnu- og rannsóknarsjóði. Stefán fór yfir drög að samþykktum fyrir slíkan sjóð. Nefndin ræddi um hlutverk, markmið, stjórn og vörslu sjóðsins. Atvinnumálanefnd fagnar hugmynd að stofnun sjóðsins og felur starfsmönnum að ljúka við tillögu að samþykktum sjóðsins og leggja fyrir nefndina á næsta fundi. Atvinnumálanefnd skorar á ríkisstjórn að leggja sjóðnum til jafn háa upphæð og söluandvirði þess af Nesjaskóla. Höfuðstóll sjóðsins verði því alls um 36 m.kr.

7.      200804062 - Erindi um málefni dreifbýlisins

Lagt fram erindi frá Sigurlaugu Gissurardóttur um málefni dreifbýlisins, dags. 18. mars 2008. Í erindinu er hvatt til fundarhalda í dreifbýli sveitarfélagsins. Atvinnumálanefnd fagnar hugmyndinni og hyggst efna til funda í sveitum veturinn 2008-2009.

8.       200705114 - Önnur mál

Engin.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   17:40

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica