Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 36

36. fundur

36. fundur

atvinnumálanefndar Hornafjarðar

haldinn í ráðhúsi,

miðvikudaginn 30. janúar 2008 og hófst hann kl. 17.00

 Fundinn sátu:

Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Eiríkur Sigurðsson, Hjalti Þór Vignisson,

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

 Dagskrá:

 1.                        Ráðstöfun styrks vegna samdráttar í aflamarki þorsks.

Hjalti lagði fram eftirfarandi tillögu um ráðstöfun á úthlutun félagsmálaráðuneytisins vegna samdráttar í aflamarki þorsks, dags. 30. janúar 2007:

Í bréfi dags. 28. desember 2007 frá félagsmálaráðuneytinu kemur fram að Sveitarfélaginu Hornafirði sé úthlutað 8,8 m.k.r til að bregðast við samdrætti í aflamarki þorsks.  Bæjarráð Hornafjarðar fól atvinnumálanefnd á 404. fundi ráðsins, dags. 10. janúar 2007, að gera tillögu um nýtingu þessa fjár. 

Á 35. fundi atvinnumálanefndar Hornafjarðar samþykkti nefndin framtíðarsýn til næstu þriggja ára og leit á það sem hlutverk sitt að tryggja sérstaklega þremur verkefnum brautargengi, þ.e. verkefnum sem tengjast vinnslu og útflutningi á vatni, uppbyggingu matvælaklasa og að greina atvinnutækifæri í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Tillögur atvinnumálanefndar um nýtingu ofangreindra fjármuna taka því mið af þessari stefnumörkun.

Tillaga atvinnumálanefndar er því eftirfarandi:

1.       Að lagðar verði fram 2 miljónir króna til að undirbúa vinnslu og útflutning á vatni í héraðinu.  Frumkvöðlasetur Austurlands hefur unnið verkefna- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem gerir ráð fyrir kostnaði upp á 2 miljónir.  Atvinnumálanefnd telur rétt að leitað verði til setursins að vinna verkefnið.

2.       Að lagðar verði allt að 1,8 miljónir krónur í atvinnuuppbyggingu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Að mati atvinnumálanefndar er þessi vinna á frumstigi og telur nefnd mikilvægt að gerð verði nákvæm verk- og kostnaðaráætlun um verkið áður en fjármunir verði greiddir út.  Þá leggur nefndin til að leitað verði til Háskólasetursins á Hornafirði, Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. og Ríki Vatnajökuls ehf. til að finna verkefninu réttan farveg.

3.       Að lagðar verði 5 miljónir króna í verkefni sem tengjast matvælaferðamennsku.  Atvinnumálanefnd leggur að þessu sinni áherslu á að verkefni á sviði sjávarútvegs.  Matís ohf. og Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. hafa verið í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki um slík verkefni og leggur atvinnumálanefnd til að þessir aðilar verði fengnir til að vinna þetta verkefni.

Gauti lagði fram eftirfarandi tillögur vegna úthlutunar á styrkjum vegna samdráttar í aflamarki þorsks, dags. 30. janúar 2007:

·        Þeir fjármunir sem ríkið hefur lagt sveitarfélaginu til renna inn í sameiginlegan rekstur þess vegna skerðingar á skatttekjum vegna minnkandi kvóta.

·        Þeir fjármunir sem ríkið hefur lagt sveitarfélaginu fara eingöngu til verkefna sem tengd eru fiskveiðum/fiskvinnslu.  Hvort það séu verkefni sem er nú þegar hafin eða verkefni sem þarfnast frekari vinnslu.  Að þessi peningar verði nýttir til frekari verðmætasköpunar á sjávarfangi, eða til styrktar verkefnum sem skapa störf í sjávarútvegi.

Eftir nokkrar umræður varð atvinnumálanefnd sammála um eftirfarandi tillögu:

1.       Að lagðar verði allt að 2 milljónir króna til að undirbúa vinnslu og útflutning á vatni í héraðinu.  Frumkvöðlasetur Austurlands hefur unnið verkefna- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem gerir ráð fyrir kostnaði upp á 2 miljónir.  Atvinnumálanefnd telur rétt að leitað verði til setursins að vinna verkefnið en leggur jafnframt áherslu á að aðrir hagsmunaaðilar leggi fram fjármuni í verkefnið.

2.       Að lögð verði allt að 1 milljón króna  í atvinnuuppbyggingu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Að mati atvinnumálanefndar er þessi vinna á frumstigi og telur nefndin mikilvægt að gerð verði nákvæm verk- og kostnaðaráætlun.  Þá leggur nefndin til að leitað verði til Háskólasetursins á Hornafirði, Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. og Ríki Vatnajökuls ehf. til að finna verkefninu réttan farveg.

3.       Að lagðar verði 5,8 miljónir króna í verkefni sem tengjast matvælaframleiðslu.  Atvinnumálanefnd leggur að þessu sinni áherslu á að verkefni á sviði sjávarútvegs verði styrkt sérstaklega.  Matís ohf. og Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. hafa verið í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki um slík verkefni og leggur Atvinnumálanefnd til að þessir aðilar verði fengnir til að vinna þetta verkefni.

2.                        Erindi Bestfisks um ósk um hlutdeild í styrk vegna samdráttar í aflamarki þorsks.

Atvinnumálanefnd telur að ekki sé hægt að verða við ósk Bestfisk en bendir forsvarsmönnum fyrirtækisins á að leita eftir samstarfi við Matís ohf. og Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. um samstarf um verkefni á sviði sjávarútvegs sbr. tillögu atvinnumálanefndar um ráðstöfun styrks vegna samdráttar í aflamarki þorsks.

3.                        Fjallskil.

Lögð fram bréfaskipti á milli Sæmundar Jóns Jónsonar, bónda í Árbæ, og Hjalta Þórs Vignissonar um framkvæmd fjallskila sl. hausts.  Miklar umræður sköpuðust um bréfin og m.a. rætt um skyldur landeigenda og fjáreigenda.  Í umræðunni kom einnig fram að kominn væri tími til að Alþingi endurskoði lög um afréttarmál og fjallskil.  Hjalti gerði grein fyrir hugmynd sinni um framkvæmd fjallskila næsta haust. Atvinnumálanefnd sammála um að taka málið fyrir í vor.

Eyjólfur ræddi um að skýra þyrfti betur hlutverk atvinnumálanefndar og bæjarstjórnar í fjallskilasamþykkt.

4.                        Önnur mál.
Engin.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   18.00

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica