Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 34

34. fundur

 

Fundur atvinnumálanefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, föstudaginn 2. nóvember 2007 og hófst hann kl. 12:00

Fundinn sátu: Ásgrímur Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson, Gauti Árnason, Gunnar Ingi Valgeirsson, Hjalti Þór Vignisson, Stephen Róbert Johnson,

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

 

 

Dagskrá:

 

1.      200710012 - Atvinnuástand - eftirlit

Þann 31. október 2007 voru 7 á atvinnuleysiskrá, 4 konur og 3 karlar. Rætt um fólksfjöldabreytingar.

2.      200711002 - Flatey á Mýrum

Reynir Sigursteinsson mætti á fundinn undir þessum lið og sagði frá áformum um uppbyggingu í Flatey á Mýrum. Í máli hans kom fram að ræktað hafi verið um 300 ha og girðingarvinnu fyrir ofan veg væri lokið. Einnig miðaði vel að girða landið fyrir neðan veg. Nú stendur yfir átak í að verja land og græða það upp. Á þessum dögum er verið að vinna að uppsetningu netsambands og öflun neysluvatns. Það sé mikilvægt vegna fyrirhugaðrar starfsemi sem byggir á mikilli tækni og lagði áherslu á að sveitarfélagið hefði hlutverki að gegna í þessum málum. Taldi hann að þessi vinna gæti nýst öðrum bæjum í sveitinni. Reynir sagði að í fyrsta áfanga væri gert ráð fyrir að halda 250 kýr og framleiða um 1,2 miljónir lítra af mjólk. Þá taldi hann að starfsemi gæti hafist seinni part vetrar ef allt gengur eftir og komi til með að skapa 5-6 ársstörf og að auki hlutastörf. Gert er ráð fyrir að nýtt fjós rísi fyrir neðan veg en núverandi skemmu fyrir ofan veg verði breytt og nýtt fyrir geldneyti. Reynir sagði að á hverju ári yrðu slátrað um 150 nautkálfum frá búinu í Flatey.
Reynir sagði að líkur væri á að finna mætti heitt vatn á Mýrum sem hefði mikla þýðingu fyrir landbúnað og ferðaþjónustubændur á svæðinu. Aðgengi að heitu vatni gæti einnig skipt máli um hvernig búskapur í Flatey þróaðist á næstu árum.
Reyni þakkað fyrir komuna og óskað velfarnaðar.


3.      200710057 - Framtíðarsýn

Atvinnumálanefnd leggur til að eftirfarandi atriði verðir grunnur að frekari umræðu um stefnu og framtíðarsýn Sveitarfélagsins Hornafjarðar í sókn til frekari lífsgæða á Hornafirði:

Framtíðarsýn:
Markmiðið er að skapa aðstæður og andrúmsloft sem einkennist af sjálfstrausti þannig að fólk geti nýtt hæfileika sýna til fullnustu og aukið þannig lífsgæði sín og samborgara. Um leið er markmið að rækta upp frjósaman jarðveg fyrir komandi kynslóðir og gera samfélagið í stakk búið að takast á við sífelldar breytingar.

Áhersluatriði atvinnumálanefndar til ársins 2011:
1. Leggja fjármagn í rannsóknar- og þróunarstarf til að kynda undir hreyfiaflinu í samfélaginu. Slíkt starf leysir úr læðingi hugmyndir skapar aukna möguleika á að koma á fót nýjum fyrirtækjum og verkefnum.
2. Að samfélagið verði atvinnulega og félagslega sjálfbært. Það verði gert með því að haga innkaupum sveitarfélagsins og stofnana þess á þann hátt að það stuðli að vexti og viðgangi atvinnulífs á svæðinu.
3. Efla tengsl Hornafjarðar við önnur svæði. Hornafjörður er smátt samfélag og í fjarlægð frá öðrum svæðum. Það er því mikilvægt að efla tengsl samfélagsins við önnur svæði á Íslandi og alþjóðlega, bæði til hagsbóta fyrir atvinnulíf og opinberar stofnanir.
4. Að tryggja að rödd samfélagsins berist þingmönnum og ráðherrum. Mikilvægt er að gæta í sífellu hagsmuna Hornafjarðar hjá ríkisvaldinu. Það verður gert með auknu framlagi.
5. Að bæjaryfirvöld einbeiti sér að brúa bilið á milli fyrirtækja, rannsóknaaðila og opinbera aðila. Samvinna fyrirtækja getur skapað aukna möguleika til vöruþróunar og markaðssetningar og skapað þannig ný störf og aukið fjölbreytni í atvinnulífinu.
6. Hlúa að og styrkja félagasamtök og hópa til að efla íþrótta – og menningarlíf í samfélaginu sem er mikilvægur hlutur að lífsgæðum í hverju samfélagi.
7. Að auka umræðu um náttúruvernd og hvernig náttúruvernd hún geti stuðlað að auknum lífsgæðum.
8. Halda áfram að efla menntunarmöguleika í samfélaginu í samstarfi háskóla í landinu, Þekkingarnets Austurlands og Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu. Slíkt eykur sjálfstraust og styrkir hæfileika einstaklinga.
9. Styrkja velferðarþjónustu á Hornafirði þannig að samkeppnishæfni svæðisins að þessu leiti sé með sambærilegum hætti og það sem best þekkist á Íslandi.
10. Að auka framboð af húsnæði fyrir fólk með fjölbreyttu lóðarvali og valkostum til búsetu. Í þessu sambandi verði m.a. kannaðir kostir þess að stofna húsnæðissamvinnufélag á Hornafirði.

Í framhaldi af þessu var rætt um að halda málþing eða spástefnu um atvinnumál á þessum vetri. Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við forstjóra Byggðastofnunar og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga um að halda ráðstefnu um byggðamál á Hornfirði. Atvinnumálanefnd er sammála um að taka þetta mál fyrir sem eina mál á dagskrá á næsta fundi nefndarinnar.


4.      200708066 - Skógeyjarsvæðið

Starfsmanni falið að skoða þetta mál og koma með minnispunkta á næstu fundum.

5.      200710025 - Fyrirspurn um framkvæmd við lögrétt í Laxárdal

Hjalti gerði grein fyrir fjallskilum í haust. Í framhaldi var nokkur umræða um hvernig hægt sé að skipuleggja fjallskil.
Starfsmanni falið að svara erindinu.

6.      200710086 - Frístundabændur

Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að komið verði á föstu skipulagi varðandi frístundabúskap í sveitarfélaginu og að fjöldi fjár verði takmarkaður. Einnig er mikilvægt að bændur haldi búfé í góðu húsnæði og að það sé á skipulögðu svæði.

7.      200705114 - Önnur mál

Gauti spurði um vatnsútflutning. Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum sem uppi eru um vatnsútflutning.
Ásgrímur ræddi um háhraðateningar og lagði áherslu á að þeim hugmyndum yrði fylgt fast eftir.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   13:40

 

 

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica