Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 32

32. fundur

32. fundur atvinnumálanefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 8.ágúst 2007 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu: Lilja Hrund Harðardóttir, Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Hjalti Þór Vignisson, Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

Dagskrá:

1. 200706044 - Fundarg. 31. fundar atvinnumálanefndar

Engar athugasemdir.

2. 200706008 - Staða atvinnumála

Kom fram að fjórir eru á atvinnuleyfisskrá. Undir þessum lið sköpuðust miklar umræður um stöðu sjávarútvegsins vegna ákvörðunar um niðurskurð aflaheimilda. Atvinnumálanefnd lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu sjómanna, fiskverkunarfólks og fyrirtækja í sjávarútvegi. Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að ríkið leggi til umtalsverða fjármuni í menntun, rannsóknir og þróun á svæðinu til að vega á móti þeim samfélagsbreytingum sem hljótast af niðurskurði aflaheimilda.

3. 200705034 - Drög að samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu Hornafirði

Ólafur Páll Vignisson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, sat á fundinn undir þessum lið. Ólafur fór yfir drögin og benti sérstaklega á 3. tl. 2.gr. er varðaði bótaábyrgð á tjóni sem búfé veldur. Taldi hann að sveitarfélagið hefði ekki heimild til að skilgreina bótaábyrgð í þessu tilfelli. Í kjölfarið var rætt um fyrirliggjandi drög. Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að fjöldi fjár sem frístundabændur halda sé innan ákveðinna marka. Atvinnumálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti.

4. 200705035 - Samningur um friðun vegsvæðis fyrir ágangi búfjár í sveitarfélaginu Hornafirði

Ólafur Páll Vignisson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, sat á fundinn undir þessum lið. Ólafur gerði grein fyrir rannsóknarverkefni sem hann vann um tjón af völdum lausagöngu búfjár og ábyrgð hlutaðeigandi aðila. Hann greindi frá því að þar sem ekki væri sérstakur samningur um viðhald girðinga að þá væri landeigandi ábyrgur fyrir viðhaldi girðinga en kostnaður greiðist að jöfnu úr vasa landeiganda og Vegagerðar. Sveitarfélagið hafi eftirlitsskyldu með því að girðingar séu fjárheldar. Þá fór hann yfir fyrirliggjandi drög að samningi. Taldi hann að frá sjónarhóli sveitarfélagsins séð væri jákvætt að Vegagerðin lýsti því yfir að hún tæki að sér uppsetningu og viðhald girðinga. Sagði hann að Vegagerðinni bæri ekki skylda til þess samkvæmt lögum. Helsta breytingin fyrir sveitarfélagið frá þeirri stöðu sem nú er uppi er að kosta búfjáreftirlitsmann. Benti hann á að oft væri sami aðilinn sem sinnti eftirliti á þjóðvegunum og forðagæslu. Að lokum gerði hann grein fyrir því að eitt af tíu áhersluátriðum í nýrri umferðaröryggisáætlun væri að draga úr tjónum af völdum lausagöngu búfjár. Í kjölfarið varð töluverð umræða í nefndinni um fyrirliggjandi samning. Meðal annars var rætt um hvort lausagöngu bann hefðu áhrif á bændur, m.a. hvort þeir fengu bætur fyrir fé sem ekið væri á. Kom fram að hagur bænda vegna samningsins fælist fyrst og fremst í því að losna við kostnað vegna viðhalds girðinga og draga úr tjónum á búfé þeirra. Atvinnumálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög fyrir sitt leyti en leggur áherslu á að samningurinn fái góða kynningu meðal bænda á því svæði sem á að friða fyrir ágangi búfjár. Ennfremur telur atvinnumálanefnd mikilvægt að fleiri svæði verði friðuð sem allra fyrst.

5. 200706043 - Framtíðarsýn

Atvinnumálanefnd er sammála um að í vetur verði unnið að framtíðarsýn fyrir samfélagið. Starfsmanni falið að vinna drög að verkáætlun og leggja fram á næsta fundi.

6. 200706045 - Landbótáætlun fyrir Laxárdal

Fulltrúar Landgræðslunnar mæta á fundinn

7. 200705114 - Önnur mál

Atvinnumálanefnd lýsir ánægju með sýninguna Atvinna - mannlíf - menning á Hornafirði sem haldin var um Verslunarmannahelgina.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica