Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 31
31. fundur
Mætt voru: Lilja Hrund Harðardóttir, formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Eyjólfur Guðmundsson, Eiríkur Sigurðsson og Gauti Árnason. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Staða atvinnumála
Kom fram að níu eru á atvinnuleysiskrá.
3. Beint frá býli
Kom fram að nú þegar séu bændur að vinna í anda þessarar hugmyndafræði og var dæmi tekin frá bleikjueldi og markaðstorgi Hornafjarðar. Rætt um hvernig sveitarfélagið geti tekið þátt í þróun á verkefninu. Hugmynd kom fram um að tengja verkefnið við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Starfsmanni falið að kanna vilja Búnaðarsambandsins, Þróunarfélags Austurlands, Frumkvöðlaseturs og hugsanlega fleiri aðila um að taka þátt í að setja á málþing um framleiðslu matvæla sem eru einkennandi fyrir svæðið.
4. Náttúrustofa Suðausturlands
Farið yfir drög að greinargerð um stofnun náttúrustofu Suðausturlands, dags. 6. mars 2006. Fram kom að hugmyndin á sér langan aðdraganda. Eyjólfur lýsti ánægju sinni með framkomnar tillögur. Nefndin styður framkomna hugmynd heilshugar og hvetur til þess að henni verði unnin framgangur.
5. Atvinnulífssýning
Lilja gerði grein fyrir hvernig vinnu við atvinnulífssýningu miðar áfram.
6. Fjallskil
Eiríkur gerði grein fyrir vinnu varðandi endurskoðun á fjallskilasamþykkt.
7. Önnur mál
· Kom fram hugmynd um að atvinnumálanefnd hefji vinnu við að skilgreina stöðu og framtíð sveitarfélagsins. Í kjölfarið skapaðist mikil umræða þar sem m.a. var rætt um lífsgæði, fólksfjölda og tækifæri í samfélaginu.
· Atvinnumálanefnd fagnar stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Rætt um atvinnusköpun í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð. Kom fram að fyrirhugað er málþing um þjóðgarðinn á næstu mánuðum. Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að þar verði fjallað um möguleika til atvinnusköpunar í tengslum við þjóðgarðinn.
Fundi slitið kl. 17.30


