Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 30
30. fundur
Mætt voru: Lilja Hrund Harðardóttir, formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Eyjólfur Guðmundsson, Eiríkur Sigurðsson og Gauti Árnason. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Þekkingarnet Austurlands
Ragnhildur Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti starfsemi Þekkingarnets Austurlands. Kynnti hún framboð af námskeiðum á vegum ÞNA og hugmyndafræðina Markviss sem hún telur að gagnast geti bæði fyrirtækjum og opinberum stofnunum sem áhuga hafa á að efla starfsmenn sína. Kom fram að 47 aðilar væru núna skráðir í háskólanám á staðnum.
Spurt var um framtíðaruppbyggingu Þekkingarnetsins hér á staðnum. Kom fram í svari Ragnhildar að þekkingarþorsti íbúa Hornafjarðar væri mikill og fólk mjög opið í að skoða menntunarmöguleika. Þá ræddi hún um þörf fyrir fleiri námsráðgjafa á staðinn vegna þessa mikla áhuga íbúa.
3. Vaxtarsamningur fyrir Austurland
Kynnt útgefin skýrsla um Vaxtarsamning Austurlands. Farið yfir hugmyndafræði samningsins og megináherslur. Mikil umræða skapaðist um aldurskiptingu á Suðausturlandi í samanburði við mið-Austurland. Einnig sköpuðust umræður um leiðir til byggðaþróunar.
4. Lausaganga búfjár
Kynnt drög að samningi á milli Vegagerðar og sveitarfélagsins um friðun þjóðvegar nr. 1 frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljótum og þjóðvegi nr. 99.
Spurt um ábyrgð aðila ef lausaganga verður samþykkt. Eins spurt um í hvaða röð eigi að gera hlutina, þ.e. hvort lýst er yfir lausagöngubanni áður en girt er.
Atvinnumálanefnd felur starfsmanni að ganga úr skugga um þessi atriði áður en samningur er undirritaður.
5. Önnur mál
· Lilja gerði grein fyrir fundi sem hún sat undir yfirskriftinni Á að vera landbúnaður á Íslandi?. Umræður sköpuðust um landbúnaðarstefnu á Íslandi.
· Spurt um stöðu atvinnumála. Kom fram að upplýsinga hefur ekki verið aflað frá síðasta fundi.
Fundi slitið kl. 17.40


