Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 26

26. fundur

   

Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 18. september 2006 kl. 16:00 í fundarsal Ráðhúss.

 Mætt voru:  Ásgrímur Ingólfsson, varaformaður sem stýrði fundi, Eyjólfur Guðmundsson og Gauti Árnason.  Lilja Hrund Harðardóttir mætti á fundinn kl. 16:40.

 1.            Staða atvinnumála

Kom fram að 10 eru á atvinnuleysisskrá.

 2.            Skýrsla starfshóps um stöðu og möguleika lífrænnar framleiðslu á Íslandi

Töluverð umræða skapaðist um skýrsluna.  Nefndin taldi óljóst í hverju sóknarfæri við lífræna framleiðslu væri fólgið og hver ábati bændanna væri í raun.  Einnig kom fram að sveitarstjórn hafi takmörkuð áhrif á framgang verkefna á borð við lífræna framleiðslu í landbúnaði.

 3.            Skýrsla votlendisnefndar

Til kynningar.

 4.            Rannsókna- og þróunarsjóður

Miklar umræður sköpuðust um hugmyndina og ýmsir fletir ræddir.  Meðal annars var rætt um hvort skynsamlegra væri að efla faglega aðstoð í þróunarstarfi, t.d. með því að styrkja Frumkvöðlasetrið í Nýheimum.  Einnig að einstaklingar og fyrirtæki á Hornafirði þyrftu í auknum mæli að koma að rannsókna- og þróunarstarfi í héraðinu, þar sem það er hægt.  Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að leiðir verði skoðaðar til efla enn frekar rannsókna- og þróunarstarf í sveitarfélaginu.

 5.            Atvinnulífssýning í tengslum við ungmennalandsmót 2007

Lilja Hrund kynnti hugmyndina.  Hún felur í sér að fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu kynni starfsemi sína í tengslum við ungmennalandsmót 2007.  Það verði t.d. gert með opnu húsi hjá þessum aðilum eða með því að setja upp kynningarbása í hentugu húsnæði eða á landsmótssvæðinu. 

Í þessu samhengi spratt upp umræða um kynningarmál fyrir sveitarfélagið. Atvinnumálanefnd er sammála um að mikilvægi þess að efla kynningu á samfélaginu og beinir því til bæjarráðs að fjármunir verði lagðir til þessa verkefnis.

 6.            Seljum norðurljósin

Hjalti Þór gerði grein fyrir stöðunni í verkefninu.  Kom fram að unnið er hörðum höndum að markaðssetningu, rætt hafi verið við sendiráðin í Kína og Japan, sölufulltrúa Icelandair í norður Evrópu og farið á nokkrar sölusýningar.  Í framhaldinu skapaðist umræða um opnunartíma á fjölsóttum ferðamannastöðum í sveitarfélaginu.

 7.            Önnur mál

·        Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að safnað verði saman upplýsingum um atvinnumál í sveitarfélögum.  Ennfremur að þessar upplýsingar lýsi atvinnuástandi, uppbyggingu atvinnuvega og öðrum slíkum þáttum.  Nefndin felur starfsmanni að taka málið upp við hlutaðeigandi aðila, t.d. Hagstofu íslands og Byggðastofnun.

·        Umræða skapaðist um fjölgun opinberra starfa.  Atvinnumálanefnd beinir því til bæjarráðs að skoða möguleika á fjölgun opinberra starfa í samvinnu við ríkið.

·        Gauti lagði áherslu á að atvinnumálanefnd væri í meira mæli uppfrædd um framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins og verkefni sem það tekur þátt í varðandi atvinnuþróun.  Taldi hann mikilvægt að fá slíkar upplýsingar því þær gefa hugmynd um horfur í atvinnumálum.

 

Fundi slitið kl. 17.45

 




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica