Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 29
29. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 15. janúar 2007 kl. 16:00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Lilja Hrund Harðardóttir, formaður, Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Eiríkur Sigurðsson og Gauti Árnason. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Staða atvinnumála
Kom fram að 22 eru á atvinnuleysisskrá.
3. Greinargerð um atvinnumál.
Hjalti kynnti drög að greinargerð til ríkisins um hugmyndir til atvinnusköpunar og önnur samfélagsverkefni sem áhugi er fyrir að vinna með ríkinu. Þær hugmyndir sem rætt er um eru t.d. rekstur betrunarheimilis, rekstur meðferðarheimilis, störf á vegum Hagstofu Íslands, flutning starfa í tengslum við þjóðgarða og stofnun lýðháskóla. Næsta skref er að koma þessum hugmyndum á framfæri við þingmenn og ráðherra.
4. Styrkir til atvinnusköpunar
Hjalti fór yfir styrkjaumhverfi til atvinnusköpunar. Farið í gegnum það sem Impra nýsköpunarmiðstöð, atvinnuþróunarsjóður austurlands og fleiri aðilar bjóða upp á.
Fundarmenn samála um að gott væri að hafa yfirlit aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins um mögulega styrki til atvinnusköpunar og hvernig standa beri að þróun atvinnutækifæra.
5. Sauðfjárveikivarnir
Kjartan Hreinsson mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir hvernig staðið er að garnaveikisbólusetningu. Kom fram að tekið hafi verið mikið af sýnum í sláturhúsinu sem sanna að garnaveiki er til staðar í héraðinu. Umræður sköpuðust um hvort hægt er að útrýma veikinni.
6. Framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins
Hjalti fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins eins og óskað var eftir á 26. fundi nefndarinnar þann 18. september sl. Rakti hann áform um uppbyggingu sundlaugar, íþróttavallar, knattspyrnuhúss og 100 metra stálþils við höfnina.
7. Gagnahvelfing
Stefán Brandur Jónsson mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti hugmynd sína um sérhæfða afritunarstöð fyrir tölvugögn. Kynnti hann muninn á hýsingu og afritun og hvernig öryggismál eru hugsuð. Þá kynnti Stefán að hann hafi tekið húsnæði Símans í Hafnarneslandi á leigu enda hentar það mjög vel fyrir þessa starfsemi. Stefán Brandur taldi staðsetninguna vera góðan kost. Atvinnumálanefnd fagnar framtaki Stefáns og hvetur hann til að halda áfram að þróa hugmyndina.
8. Vatnsölufyrirtæki
Hjalti fór yfir viðræður við landeigendur, fjárfesta og lögfræðinga og fleira er málið varða. Eiríkur gerði grein fyrir því að slík hugmynd hafi verið komin langt um miðjan 9. áratuginn en ekki orðið af henni þá. Taldi hann að markaðssetningin væri mjög stór þáttur í þessu. Miklar umræður sköpuðust um málið. Atvinnumálanefnd fagnar hugmyndinni og hvetur til þess að málið verði skoðað áfram.
9. Önnur mál
· Lilja spurðist fyrir um vaxtarsamning og óskaði eftir kynningu á honum. Stefnt að því að halda kynningu í febrúar.
· Gauti vakti máls á verslunarmálum. Atvinnumálanefnd fagnar því að óvissu um verslunarmál er nú aflétt og lýsir yfir ánægju með komu Nettó í Miðbæinn.
Fundi slitið kl. 18.20


