Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 27

27. fundur

Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 16. október kl. 16:00 í Ráðhúsi.

 Mætt voru:  Lilja Hrund Harðardóttir, formaður, Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Eiríkur Sigurðsson og Gauti Árnason.

 Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 

1.                  Fundargerð síðasta fundar

Hjalti gerði grein fyrir fundi fulltrúa sveitarfélagsins með iðnaðar- og viðskiptaráðherra um byggðamál.  Þar var m.a. komið inn á fjarlægð til skilgreindra landshlutakjarna.

 2.                  Staða atvinnumála

Kom fram að samkvæmt samtali eru nú um 14 manns á skrá.

 3.                  Ferðamál – markaðsáætlun og vöruþróun

Mikil umræða skapaðist í nefndinni um ferðaþjónustu og möguleika til framþróunar.  Einnig skapaðist umræða um aðkomu atvinnumálanefndar og sveitarfélagsins að þessu málum.  Atvinnumálanefnd er sammála um að sveitarfélagið eigi að beita sér fyrir eflingu ferðamennsku á jaðartímum.    

 Mikil umræða skapaðist um hvað geti eflt ferðamennsku yfir jaðartímanum, t.d. menningartengdir viðburðir í líkingu við það sem Hornfirska skemmtifélagið hefur staðið fyrir, fjalla- og jöklaferðir yfir vetrartímann og fleira.  Til dæmis skapaðist mikil umræða um ráðstefnur og möguleika svæðisins til að efla þennan þátt í ferðaþjónustu.  Kom fram að sveitarfélagið geti vel stuðlað að aukningu á ráðstefnum, aðstaða til ráðstefnuhalds sé góð og gisting og önnur aðstaða vel til þess fallinn að taka á móti stórum ráðstefnum.  Rifjað var upp að fyrir nokkrum árum var stefna atvinnumálanefndar að standa fyrir a.m.k. einni ráðstefnu á ári.   Þá skapaðist umræðu um möguleika á því hvernig uppbygging þjóðgarðs geti stuðlað að aukningu á ferðamennsku.  

 Ennfremur voru samgöngumál mikið rædd, bæði flugmál og sérleyfi í áætlunarakstri frá Reykjavík til Hafnar.  Atvinnumálanefnd leggur mikla áherslu á að þeir aðilar sem sinni flugi og sérleyfisakstri taki þátt í uppbyggingu á ferðaþjónustu á svæðinu og geri grein fyrir því hvernig þeir hyggist standa að þeim málum á meðan samningar eru í gildi.

 4.                  Atvinnulífssýning

Kom fram að þessi hugmynd hafi verið rædd á fundi menningarmálanefndar á síðasta fundi nefndarinnar.  Þar kom fram áhugi á að taka þátt í þessu verkefni.  Rætt um hvernig best sé að standa að þessari sýningu, m.a. með tilliti til kostnaðar og framkvæmdar.  Atvinnumálanefnd beinir því til bæjarráðs að móta framtíð þessa verkefnis, m.a. með því að gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun.

5.                  Önnur mál

Gauti spurðist fyrir um fjallskil og landnýtingarþátt gæðastýringar í sauðfjárrækt.  Gerð grein fyrir málefnum sauðfjárbænda varðandi gæðastýringu í sauðfjárrækt.  Atvinnumálanefnd samþykkir að taka landbúnaðarmál sérstaklega fyrir á næsta fundi nefndarinnar.  Þá yrði almenn kynning á málaflokknum og sérstök mál tekin fyrir, t.d. fjallskil.

Lilja ræddi um hádegisverðarfundi um eflingu atvinnulífs.  Umræða skapaðist um samstarf við Menningarmiðstöð og Jöklasetur um hádegisverðarfundi einu sinni í mánuði í vetur. 

Lilja ræddi um námskeið á vegum Iðntæknistofnunar.

 

Fundi slitið kl.  17.35




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica