Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 25
25. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 21. ágúst 2006 kl. 17:00 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Lilja Hrund Harðardóttir, formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Eyjólfur Guðmundsson og Gauti Árnason.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Fundargerð síðasta fundar.
Lögð fram fundargerð frá 5. júlí til kynningar.
2. Staða í atvinnumálum.
Ekki náðist í Vökul til að kanna stöðu á atvinnuleysisskrá. Hjalti gerði grein fyrir að von væri á starfsfólki svæðisvinnumiðlunar Austurlands á næstu vikum til fundar.
3. Fjallskil
Hjalti gerð grein fyrir fyrirkomulagi vegna fjallskila. Atvinnumálanefnd sammála um að halda fyrirkomulagi vegna fjallskila óbreyttu fyrir haustið en fara vandlega yfir fjallskilamál fyrir haustið 2007. Stefnt að því að taka málið á dagskrá í nóvember.
4. Áætlun atvinnumálanefndar um eflingu atvinnulífs í sveitarfélaginu.
Lilja Hrund fór yfir glærukynningu þar sem lýst er hugmyndum um hvernig efla skuli atvinnulíf í sveitarfélaginu. Farið yfir ýmsa tölfræði er varða fólksfjölda, aldursdreifingu og atvinnuleysi í sveitarfélaginu. Þá var farið yfir líkan af uppbyggingu atvinnulífs og hagþróun.
Í kjölfarið skapaðist mikil umræðu um atvinnuþróun og nýsköpun atvinnulífs á Hornafirði og hlutverki atvinnumálanefndar í þessu umhverfi. Nefndin er sammála um að draga upp mynd af umhverfi í atvinnuþróun og nýsköpun. Ennfremur er nefndin sammála um að mikilvægt sé að þróa mælikvarða þannig að hægara sé að fylgjast með þróun atvinnumála á Hornafirði.
5. Önnur mál
· Lilja Hrund spurðist fyrir um stöðu í girðingarmálum meðfram þjóðvegum. Kom fram að óskað hafi verið eftir fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar.
· Gunnar Ingi spurðist fyrir um lokun Sundlaugar um helgina. Hjalti útskýrði ástæður þess að grípa þurfti til lokunar.
Fundi slitið kl 18:45


