Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 23
23. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarson og Björn Emil Traustason. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Sveinbjörn Imsland boðaði forföll á síðustu stundu. Þorbjörg Arnórsdóttir boðaði forföll og varamaður hennar gat heldur ekki mætt á fundinn.
Fundurinn var því ekki löglegur.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Staða og horfur í atvinnumálum
Samkvæmt upplýsingum frá svæðisvinnumiðlun Austurlands voru 18 á atvinnuleysisskrá. Starfsmaður gerði grein fyrir samtali við starfsfólk svæðisvinnumiðlunar sem hafði áhyggjur af stöðu þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Starfsfólk svæðisvinnumiðlunar er væntanlegt á næstunni til þess að ræða málefni þessara einstaklinga.
3. Mikligarður
Starfsmaður dreifði drögum að skýrslu um uppbyggingu Miklagarðs. Fundarmenn ræddu um framtíð Miklagarðs og möguleika á nýtingu hússins. Einnig ræddu menn framkvæmdaþáttinn varðandi enduruppbyggingu
4. Staða í klasaverkefninu
Gerð grein fyrir þeirri vinnu sem starfsfólk menningarmiðstöðvar og Frumunnar hafa innt af hendi síðan í febrúar. Nú liggja fyrir allar helstu upplýsingar um ferðaþjónustu á svæðinu þannig að næstu skref í klasavinnunni ættu að ganga hraðar fyrir vikið. Næsta skref er að ljúka gerð markaðsáætlunar fyrir svæðið og eins hefja markvissa vöruþróun í ferðaþjónustu.
5. NEST verkefnið
Lagt fram minnisblað um vinnuferð til Svíþjóðar. Undir þessum lið var nokkuð rætt um gæðamál í ferðaþjónustu, uppbyggingu ferðaþjónustu í grennd við þjóðgarða og mikilvægi góðra samgangna fyrir ferðaþjónustu.
6. Önnur mál
Fundi slitið kl. 17:00


