Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 21
21. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 7. nóvember 2005 kl. 16:00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Sveinbjörn Imsland og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
· Til kynningar.
2. Staða og horfur í landbúnaði (Grétar Már Þorkelsson ráðunautur mætti á fundinn undir þessum lið).
Kom fram að horfur í kúabúskap eru góðar. Greiðslumark í mjólk hefur staðið í stað allra síðustu ár en hefur vaxið um tæplega miljón lítra frá 2002-2003. Mikil eftirspurn er eftir mjólk og því er það er vaxandi vandamál hversu kálfadauði er mikill og að hlutfall nautkálfa er hærra en kvíga. Einnig er vöntun á nautakjöti og gjaldskrá til bænda hefur hækkað.
Þá kom fram að meðalverð fyrir sauðfjárafurðir hefur aldrei verið hærri hér í sýslunni og aldrei hefur fleira sauðfé verið slátrað hér.
Þá gerði Grétar grein fyrir vinnu sem hefur farið fram varðandi gæðastýringu og málefni Skógeyjar og telur að þau mál sé í föstum og góðum farvegi.
Grétar gerði grein fyrir einstaklingsmerkingum í sauðfé sem yfirdýralæknir hefur farið fram á að verði gert. Það veldur aukinni vinnu hjá búfjáreftirlitsmanni sem kostaður er af sveitarfélaginu. Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að kanna þetta nánar hjá yfirdýralækni og Sambandi íslenskra Sveitarfélaga.
Aðspurður um sitt starf segir Grétar að það hafi breyst mikið í kjölfar samstarfs við Búnaðarsamband Suðurlands. Hann telur að breytingarnar hafi orðið til góðs og bændur séu almenn sáttir.
3. Staða í atvinnumálum
Í samtali við Vökul þann 7. nóvember kom fram að tíu eru á atvinnuleysiskrá.
4. Lausaganga búfjár
Gerð grein fyrir stöðu mála hvað þetta varðar, m.a. í Mýrdalshreppi og þeirri vinnu sem fram fer í Samgönguráðuneytinu. Kom fram að samgönguráðherra hafi ákveðið að leggja 127 miljónir króna í girðingamál á landinu öllu til að reyna að friða þá vegkafla þar sem flest slys eru vegna lausagöngu. Þá kom fram að rætt hafi verið við Vegagerðina á Höfn um stöðu í girðingarmálum þar sem fram kemur að fjárheld girðing er að komast upp í næsta nágrenni Hafnar og stefnt er að því að bæta við girðingakaflann smám saman. Atvinnumálanefnd telur að lausaganga búfjár sé ekki á ábyrgð sveitarfélaga þar sem málið varðar öryggi vegfaranda á þjóðvegum landsins. Því eigi ríkið að standa undir kostnaði við eftirlit, uppbyggingu girðinga og viðhald þeirra.
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að kannað verði með lausagöngu stórgripa og hvernig þeim málum var háttað fyrir sameiningu sveitarfélaga.
Atvinnumálanefnd telur brýnt að ýtt verði á að ríkið auki fjárveitingar til girðinga meðfram þjóðvegum í sveitarfélaginu.
5. NEST verkefnið
Gerð grein fyrir vinnuferð til Finnlands í október.
Að NEST verkefninu standa auk Hornfirðinga og Skaftárhrepps, aðilar frá Svíþjóð, Finnlandi og Skotlandi. Kom fram að ferðin hafi verið gagnleg þar sem fjallað var um uppbyggingu ferðaþjónustu í tengslum við þjóðgarða. Fyrirhuguð er ráðstefna í janúar n.k. í tengslum við NEST verkefnið. Þar er fyrirhugað að ræða um uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Þá er fyrirhuguð vinnuferð til Svíþjóðar í maí n.k. og fundur verður á Íslandi næsta haust.
Mikil umræða skapaðist um uppbyggingu þjóðgarðs sunnan Vatnajökuls.
6. Önnur mál
o Reynir ræddi um jarðhitaleit.
Þorbjörg upplýsti að líklega hafi um 60°C heitt vatn fundist við Hala á 450 metra dýpi.
Atvinnumálanefnd telur mikilvægt að tilraunaborunum við Hoffell ljúki í nóvember.
Fundi slitið kl. 17.35


