Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
34. fundur
Fundur haldinn í atvinnu- og ferðamálanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 25. febrúar 2002 kl. 17:10 í húsnæði Nýherjabúða við Krosseyjarveg.
Mættir voru: Þorbjörg Arnórsdóttir, Anna Egilsdóttir, Björn E. Traustason, Þóra V. Jónsdóttir og Jóhann Móravek. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Stefnumörkunin eftirfylgni
Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri mætti á fundinn til að taka þátt í umræðu um eftirfylgni við stefnumótun í atvinnumálum. Umræða um atvinnuástandið var tekin undir þessum lið. Þorbjörg dreifði nýjum upplýsingum frá verkalýðsfélaginu um fjölda atvinnulausra á Hornafirði nú, sem nú er 44. Fram kom að nýlokið er námskeiði
fyrir atvinnulausa sem Menntasmiðja Austurlands stóð fyrir. Námskeiðið þótti takast mjög vel. Nokkur umræða var um tækifæri varðandi frekari fullvinnslu afurða. Pálmi fór yfir stöðu KASK og hugmyndir um að skipta félaginu upp í eignarhalds, dóttur og hlutdeildarfélög. Pálmi fór yfir húsnæði í eigu félagsins, núverandi notkun og mögulega nýtingu. Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að vel verði staðið að kynningu á stefnumótun í atvinnumálum og náin samvinna verði milli allra fyrirtækja og stofnana sem að málinu geta komið.
2. Upplýsingamiðstöð
Meiri hluti atvinnumálanefnd telur að gera eigi þjónustusamning til 1. árs við rekstraraðila tjaldsvæðis um rekstur upplýsingamiðstöðvar en leggur áherslu á að í þeim samningi verði lögð rík áhersla á að rekstraraðilarnir gæti hlutleysis gagnvart öllum þjónustuaðilum sveitarfélagsins.
Þóra telur æskilegt að upplýsingamiðstöð verði staðsett á tjaldsvæði en hjá óðháðum aðilum.
3. Starfslýsing atvinnu og upplýsingafulltrúa
Atvinnu- og ferðamálanefnd ítrekar nauðsyn þess að atvinnu- og upplýsingafulltrúi verði ráðinn sem fyrst.
4. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl: 19:15
Þorbjörg Arnórsdóttir
Þóra V. Jónsdóttir
Jóhann Móravek
Björn E. Traustason
Anna Egilsdóttir


