Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
35. fundur
Fundur haldinn í atvinnu- og ferðamálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 22. april 2002 kl. 17:10 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Þorbjörg Arnórsdóttir, Magnús Guðjónsson, Björn E. Traustason, Þóra V. Jónsdóttir, Valgeir Hjartarson og Þorkell Kolbeins. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Ráðning atvinnu- og upplýsingafulltrúa / þróunarfulltrúa
Eyjólfur Guðmundsson formaður Fagráðs var gestur fundarins ásamt
Gunnari Vignissyni sem var í fjarfundasambandi. Gunnar sagði frá umsókn sem send hefur verið til Impru - Átak til atvinnusköpunar, þar sem leitað er eftir fjármagni til að manna stöðu starfsmanns við frumkvöðlasetur Nýherjabúða. Rætt var um hvort og þá hvernig tengja megi starfsemi frumkvöðlasetursins annars vegar og starf upplýsingafulltrúa hins vegar. Þóra sagði Ferðamálasamtök A-Skaftafellssýslu hafa áhuga á að koma beint að ráðningu starfsmanns í tengslum við ferðamálin. Hún taldi ráðningu á nýjum starfsmanni í frumkvöðlasetrið verða á höndum nýrrar bæjarstjórnar. Unnið er að samningi við rekstraraðila tjaldsvæðis um upplýsingagjöf til ferðamanna í sumar og fram á haust. Þorbjörg mun hafa samband við forsvarsmenn ferðaþjónustunnar varðandi hugsanlega aðkomu samtakanna að ráðningu starfsmanns. Í ljósi ofangreindra upplýsinga er ljóst að talsverð gerjun er í málunum og rétt að bíða niðurstöðu umsóknarinnar til Impru og viðræðna við Ferðamálafélagið.
2. Humarbærinn Hornafjörður, raunverulegt aðdráttarafl fyrir ferðamenn
Atvinnu- og ferðamálanefnd telur mikilvægt að kalla saman aðila í verslun, veitingarrekstri og seljendur humars á Höfn og kanna möguleika á samstarfi þessara aðila til að hrinda af stað átaki til að auglýsa staðinn upp sem humarbæ. Starfsmanni falið að koma á fundi með ofantöldum aðilum.
3. Stefnumörkun í atvinnumálum, næstu skref
Þorbjörg sagði frá myndun starfshóps til að fylgja stefnumótuninni í atvinnumálunum eftir. Gunnar ítrekaði mikilvægi eftirfylgni við stafnumörkunina. Hann telur ákveðna möguleika á tengslum við frumkvöðlasetur í Nýheimum varðandi ýmsar hugmyndir í stefnumótuninni.
4. Önnur mál
Þorkell Kolbeins sagði frá stöðunni í atvinnumálum á Hornafirði. Nú eru u.þ.b. 30 einstaklingar atvinnulausir hér. Þorkell sagði unnt að sækja um átaksverkefni og reynsluráðningar. Það er unnt þegar um er að ræða ákveðin verkefni eða starfsemi sem ekki er í samkeppni við þá starfsemi sem fyrir er. Björn telur æskilegt að meiri tengsl verði á milli atvinnu- og ferðamálanefndar og verkalýðsfélagsins. Í framhaldi af umræðu um atvinnuástand og atvinnuleysi í sveitarfélaginu harmar atvinnu- og ferðamálanefnd sölu á aflakvóta úr byggðalaginu án þess að heimamönnum sé gefinn kostur á að ganga inn í kaupin.
Fundi slitið kl: 19:05
Þorbjörg Arnórsdóttir
Þóra V. Jónsdóttir
Þorkell Kolbeins
Björn E. Traustason
Valgeir Hjartarson
Magnús Guðjónsson


