Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
5. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 27. janúar 2003 kl. 17:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Reynir Arnarsson, Sveinbjörn Imsland og Inga Jónsdóttir. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Markaðssetning sveitarfélagsins
- Hvaða ímynd höfum við ? hvaða ímynd viljum við hafa
Talsverð umræða varð um hvaða ímynd sveitarfélagið hefur út á við og hvort það sé í samræmi við þá ímynd sem við viljum hafa. Rætt var um samstarf við Ferðamálafélagið um gerð auglýsingabæklings fyrir sveitarfélagið og voru nefndarmenn sammála um nauðsyn góðrar samvinnu. Fram kom að notast eigi við hugmyndina úr stefnumótun í atvinnumálum þar sem aðaláherslupunkturinn er Vatnajökull og þær perlur sem raða sé í kringum hann m.a. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli, Ingólfshöfði, Jökulsárlón og Lónsöræfi . Lögð var áhersla á að auglýsa þurfi Höfn upp sem miðstöð alhliða þjónustu í sveitarfélaginu.
- Meðfylgjandi er hluti skýrslunnar Auðlindin Ísland sem gefin var út af Ferðamálaráði í október 2002.
Í skýrslunni er rætt um mikilvægi þess að líta beri á Suðausturland frá Lóni vestur að Skaftafelli sem eitt markaðssvæði. Helstu tillögur skýrslunnar eru þær að áfram verði unnið að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og uppbyggingu Jöklaseturs á Höfn.
- Verkefni í ?Stefnu Hornafjarðar í atvinnumálum? sem atvinnumálanefnd er ætlað að hafa forgöngu um.
Samþykkt var að hafa samráð við Þróunarstofu Austurlands um hvernig best er að vinna með einstaklingum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu að aukinni markaðs- og vöruþróunarþekkingu og einnig hvernig hægt er að auka fræðslu um möguleika sem tengjast fiskeldi.
3. Styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana
Nefndin var sammála um að skoða möguleika á styrkjum til verkefna s.s. við gerð og lagfæringu göngustíga, merkingu gönguleiða og gerð upplýsingabókar um ýmsa þjónustu í sveitarfélaginu.
4. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl: 19:45
Reynir Arnarson Inga Jóna Halldórsdóttir
Inga Jónsdóttir
Sveinbjörn Imsland


