Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
7. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 5. maí 2003 kl. 17:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Reynir Arnarsson, Sveinbjörn Imsland, Pálmi Guðmundsson og Gísli Sverrir Árnasson. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
Ógreiddur hreindýraarður
Atvinnumálanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skiptingu hreindýraarðs á Mýrum árin 1997 ? 1999 og fellur frá því að greiða arðinn skv. eldri útreiknireglum. Núverandi tillaga er gerð í samráði við Hreindýraráð en þar er jörðum skipt í fjóra flokka eftir landstærð.
Beiðni frá landbúnaðarnefnd Alþingis um umsögn um frumvarp til ábúðalaga, 651.mál og frumvarpi til jarðalaga, 652. mál heildarlög.
Atvinnumálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvörpin.
Merkingar við Lónsafleggjara
Samþykkt var að fá Merkingu til að vinna tillögur að skilti/skiltum til að setja upp við Lónsafleggjarann.
Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl: 18:05
Reynir Arnarson Inga Jóna Halldórsdóttir
Gísli Sverrir Árnason
Sveinbjörn Imsland
Pálmi Guðmundsson


