Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 20
20. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 5. september 2005 kl. 16:00 í Ásgarði. Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Sveinbjörn Imsland, Þóra V. Jónsdóttir, Björn E. Traustason og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Erindisbréf atvinnumálanefndar
Nokkrar umræður urðu um erindisbréfið og hlutverk atvinnumálanefndar.
3. Dagbók atvinnumálanefndar veturinn 2005-2006
Gert er ráð fyrir farið verið yfir stöðu einstakra atvinnugreina á fundum nefndarinnar. Til dæmis verður fjallað um sjávarútveg og landbúnað á næsta fundi nefndarinnar og á þar næsta verður rætt um stöðu í iðnaði, ferðaþjónustu og verslun. Reynt verður að fá þau sem best þekkja til þeirra atvinnugreina sem verða til umfjöllunar hverju sinni á fundina.
4. Staða atvinnumála í sveitarfélaginu
Lagt fram yfirlit byggt á tölum frá Vinnumálastofnun. Í júní voru tíu atvinnulausir í sveitarfélaginu. Mikil umræða átti sér stað um atvinnumál og var m.a. rætt um skort á samkeppni á matvörumarkaði og nauðsyn þess að aðilar sem bjóða upp á afþreyingu fyrir ferðamenn lengi opnunartímann fram á haustið. Þá var rætt um atvinnuauglýsingar og skort á vinnuafli í ákveðnum atvinnugreinum. Atvinnumálanefnd beinir því til bæjarráðs að farið verði út í markvissa kynningu á hvað sveitarfélagið hafi upp á bjóða í atvinnumálum og opinberri þjónustu.
5. Gæðastýring í landbúnaði
Lagt fram bréf frá landsgræðslustjóra, dags. 22. ágúst 2005 og bréf Sævar Kr. Jónssonar, Vilborgar Jónsdóttur og Þorsteinar Sigjónssonar dags. 30. ágúst 2005.
Grétar Már Þorkelsson, ráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands, mætti á fundinn kl. 16.00 og fór yfir málið. Kom fram í máli hans að bændur í Nesjum hafi fengið upprekstrarheimild annar staðar en í Laxárdal og að gamlar upplýsingar hafi legið til grundvallar úttekt landgræðslunnar. Ennfremur sagði hann að Landgræðslan ætlaði að taka upp málið og vinna upp á nýtt á næstu dögum.
Töluverðar umræður sköpuðust um málið. Kom fram að ef bændur detta út úr gæðastýringu væri rekstrargrundvöllur sumra þeirra brostinn. Einnig kom fram að í framtíðinni gæti orðið erfitt fyrir bændur sem ekki eru í gæðastýringu að koma fé að til slátrunar.
Atvinnumálanefnd fagnar því að landgræðslan skuli gera nýja úttekt á landnýtingarþætti gæðastýringar í sauðfjárrækt hjá bændum sem eiga upprekstur í Laxárdal í Nesjum.
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að í þeirri vinnu verði vandað til verka og sem víðtækastra upplýsinga aflað.
Þá hvetur atvinnumálanefnd til að gerð verði landnýtingaráætlun í Skógey sem liggi til grundvallar frekari ákvarðunum um nýtingu á svæðinu.
Grétar Már vék af fundi kl. 16.50.
6. Vaxtarsamningur
Rætt um fund á Hótel Höfn í síðustu viku varðandi stofnun verkefnisstjórnar.
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að Hornfirðingar vinni sína heimavinnu vandlega í tengslum við gerð vaxtarsamnings og er tilbúið að koma að þeirri vinnu ef þess er óskað.
Þorbjörg vék af fundi kl. 17.40.
7. Önnur mál
Gerð grein fyrir stöðu í Norðurljósaverkefninu.
Þóra ræddi um háhraðatengingar og gagnaflutninga í dreifbýli í sveitarfélaginu og nauðsyn þess að bæta ástandið í þessum efnum.
Fundi slitið kl. 17.50


