Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð atvinnumálanefndar 19
19. fundur
Atvinnumálanefnd 19. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 23. maí 2005 kl. 17:00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Björn E. Traustason og Inga Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð 18. fundar frá 18. apríl til kynningar.
2. Staða atvinnumála í sveitarfélaginu
Lagðar fram upplýsingar um stöðuna. Kom fram að í apríl 2005 voru 26 skráðir atvinnulausir skv. vef vinnumálastofnunar. Staða í atvinnumálum hefur verið viðunandi síðan um mitt ár 2003.
3. Vaxtarsamningur Hjalti gerði grein fyrir vinnu varðandi vaxtarsamning. Kom m.a. fram að kynningarfundur er fyrirhugaður á mið-Austurlandi um málið. Nokkrar umræður sköpuðust um málið en fundarmenn höfðu áhyggjur af því að stjórn verkefnisins hafi ekki verið skipuð.
4. Uppbygging vetrarferðamennsku
Lagt fram uppkast að uppbyggingu rannsóknarverkefnis um málið. Verkefnið er unnið í samvinnu sveitarfélagsins og Háskólasetursins. Hjalti gerði grein fyrir markmiðum rannsóknarinnar sem er að greina hvað ráði árstíðarbundnum sveiflum í ferðaþjónustu, hvernig svæði á Norðlægum slóðum hafa aðlagað sig að þessum sveiflum og kortleggja leiðir til að efla ferðamennsku utan háannar. Í samanburði á ferðaþjónustu hér á landi og öðrum svæðum verður einkum horft til norður-Kanada og norður-Skandinavíu.
5. Markaðssetning svæðisins
Umræður áttu sér stað um markaðsetningu. Kom fram að þetta hafi áður komist til tals. Rætt um markaðssetningu á Jöklasýningu og ferðaþjónustu á svæðinu. Umræður sköpuðumst um möguleika á samstarfi við Flugleiðir vegna framlags þeirra til Jöklasýningar.
6. Önnur mál
o Ari Þ. Þorsteinsson mætti á fundinn og gerði grein fyrir álaverkefninu. Kom fram að RF hefur samþykkt þátttöku í verkefninu. Auk þess hafa lykilaðilar í vísindasamfélaginu og aðilar sem þekkja til eldis ákveðið að taka þátt í verkefninu. Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur veitt styrk til þróunar veiðiaðferða á ál og undirbúning eldis. Hornafjörður er ákjósanlegur staður til álaeldis að flestu leyti en forsenda er að heitt vatn sé til staðar. Miklar umræður spunnust um málið og voru fundarmenn afar jákvæðir gagnvart verkefninu. Rætt var um leiðir til fjármögnunar og gerði Ari grein fyrir hugmyndum sínum í þeim efnum. Atvinnumálanefnd fagnar verkefninu og styður það heilshugar. Atvinnumálanefnd beinir því til bæjarráðs að þrýsta á að jarðhitaleit verði lokið sem fyrst þannig að úr verði skorið hvort raunhæft sé að koma á fót álaeldi hér um slóðir.
o Rætt um boð um hlutafjáraukningu í NorðurÍs. Skiptar skoðanir voru um hvort sveitarfélagið ætti að taka þátt í boðinu.
Fundi slitið kl. 18.50


