Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð atvinnumálanefndar 14

14. fundur

Fundur haldinn atvinnumálanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 23. nóvember 2004 kl. 17:00 í ráðhúsi.

Mætt voru: Reynir Arnarson, Þóra V. Jónsdóttir og Inga Jónsdóttir.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson, starfsmaður nefndarinnar, Sigurlaug Gissurardóttir, Ari Þ. Þorsteinsson og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1.      Staða atvinnumála í sveitarfélaginu

Samkvæmt upplýsingum frá Vökli voru 17 á atvinnuleysisskrá í síðustu viku.  Lagt var fram línurit sem lýsir atvinnuástandi frá febrúar 2000 til október 2004.  Verst var ástandið seinni hluta ársins 2002 og fram á haustið 2003.   Ástandið í haust er nokkuð betra en undanfarin ár.

Hjördís Þóra greindi frá því að nokkuð jöfn skipting er á milli kynjanna á atvinnuleysisskrá.  Aldurskiptingin er þannig að á aldrinum 16 ? 20 ára eru þrír á skrá, á aldrinum 20-30 eru þrír, 30-40 eru fjórir, 40-50 er einn, 50-60 er einn og á aldrinum 60-70 eru 4, þ.a. eru þrír 61 árs.  Þeir aðilar sem eru á skrá koma ekki úr einni atvinnugrein frekari en annarri.

2.      Eftirfylgni við málþing um klasa

Klasa málþingið sem haldið var 12. nóvember s.l. heppnaðist vel, góð mæting var og líflegar umræður sköpuðust um þau tækifæri sem eru til staðar í ferðaþjónustu, nýstofnuðum þjóðgarði, matvælaframleiðslu og uppbyggingu þekkingariðnaðar svo dæmi séu tekin. Niðurstaða málþingsins var að hægt er að þróa ýmsa klasa í byggðarlaginu til að efla atvinnulífið.

Reynir velti því fyrir sér hvernig nýta megi málþing eins og þetta til lengri tíma litið.

Sigurlaug fór í gegnum þá stefnumótunarvinnu sem hún hefur tekið þátt í gegnum tíðina og taldi að ýmislegt hefði áunnist í kjölfar þeirrar vinnu.  Hún telur þó að eftirfylgni hefði getað verið markvissari þannig að stefnumótunarvinnan nýttist betur.  Þá taldi hún klasa hugmyndina nýtt hugtak yfir gamla hluti.

Ari ræddi um næstu skref.  Hann taldi nauðsynlegt að skilgreina verkefnið betur með hagsmunaaðilum, ræða fjármögnunarmöguleika og fá aðila sem sinna byggðaþróun á landsvísu með í verkefnið þegar fyrir liggi skýr afstaða heima í héraði hvort eigi að byggja upp klasa.

Hjördís taldi að auka þyrfti framboð á hornfirskum afurðum í verslunum í sveitarfélaginu.

Þóra ræddi um frumkvöðlafræðsluna sem fram fór síðasta vetur.  Hún lýsti yfir ánægju með það starf en velti fyrir sér hvernig hægt væri að ná til nýrra einstaklinga til að vinna að eflingu atvinnulífsins.

Sigurlaug velti því upp að auka þyrfti kynningu á þeirri matvælaframleiðslu sem fram fer í héraðinu og hvetja fólk til að kaupa hornfirskt.

Inga taldi að Hornfirðingar gætu haft jákvæðan stuðning til eflingar ferðaþjónustu frá hinum ýmsu aðilum ef þeir leggja áherslu á sína sérstöðu.

Sigurlaug tók undir orð Ingu en taldi að Hornfirðingar yrðu að vinna heimavinnu sína vel. Hún lagði áherslu á að Hornfirðingar sýndu frumkvæði í þróun ferðaþjónustuiðnaðar í héraðinu.

Atvinnumálanefnd lýsir ánægju sinni með málþingið og  leggur til að unnið verði áfram að klasaverkefni fyrir  Hornafjörð og óskar eftir að Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. leiði verkefnið.  

Atvinnumálanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að taka saman greinargerð um að hvaða þáttum í stefnu Hornafjarðar í atvinnumálum til ársins 2007 hefur verið unnið að.  Greinargerðinni skal skilað fyrir næsta fund nefndarinnar.

3.      Fjárflutningar á milli Hafnar og Djúpavogs

Málið varðar fjárflutninga og upprekstur fjár frá Hornafirði til Álftafjarðar.  Landeigendur í Álftafirði hafa mótmælt því og hafa undir höndum þinglýst skjal þess efnis að upprekstur sé þar ekki heimill nema með leyfi landeigenda.  Málið hefur verið tekið fyrir í sveitarstjórn Djúpavogs og leitað hefur eftir samráði og samvinnu við Hornfirðinga um að setja reglur sem gilda um fjárflutninga milli svæðanna.  Einnig hefur verið haft samband við dýralækna um málið og umsagnar þeirra leitað.

Atvinnumálanefnd leggur til að samráð verði haft við sveitarstjórn Djúpavogs um mótun reglna í samræmi við gildandi lög og reglugerðir um fjárflutninga á milli svæða og felur starfsmanni að vinna að málinu.

4.      Lengjum háönnina í ferðaþjónustu, bréf samtaka ferðaþjónstunnar, dags. 3. nóvember 2004.

Frestað til næsta fundar.

5.      Hagvöxtur á heimaslóð

Til kynningar.

Verkefnið er leitt af Útflutningsráði en í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar, Impru, Mími-símenntun, LandsMennt, Ferðamálasetur Íslands og Byggðastofnun.  Verkefnið miðar að því að aðstoða ferðaþjónustuaðila til að markaðssetja sig erlendis.  Aðstoðin snýr að því að innleiða skipulögð og árangursrík vinnubrögð við markaðsetningu, stjórnun og vöruþróun og nýta betur þau tækifæri sem fyrir hendi eru í ferðaþjónustu. 

Umræðu frestað til næsta fundar.

6.      Önnur mál

Starfsmaður greindi frá samtali sínu við starfsmann Hreindýraráðs um hreindýraveiðar í sveitarfélaginu.  Mál Flateyjar á Mýrum er til umfjöllunar í landbúnaðarráðuneytinu þar sem fyrirspurn um málið liggur frammi.  Málið er brýnt einkum í ljósi þess að dýrin færa sig vestar og vestar.  Í samtali starfsmanns við Fjölni Torfason á Hala hefur hreindýrum í fjöllunum við Hala fjölgað á undanförnum árum og að hans mati líða ekki mörg misseri þar til þau færi sig yfir Breiðamerkurjökul.

Starfsmaður kynnti skýrsluna Samfélagsandi og nýsköpunarstarf sem Byggðarannsóknarstofnun Háskóla Íslands gerði um tengsl hugarfars og virkni nýsköpunar.

Inga ræddi um umræður sem farið hafa fram um samstarf ferðaþjónustuaðila á Hornafirði og á Austurlandi.  Hún ræddi þá hugmynd að ýta á Ferðamálaráð að skilgreina Suðausturland sem sérstakt svæði í ferðamennsku í stað þess að starfa undir hatti Austurlands.  Hún áréttaði þó að góð samvinna ætti sér áfram stað.  Þóra benti á að ferðaþjónustuaðilar í héraðinu hefðu efasemdir um áframhaldandi samstarf með Austfirðingum. 

Fundi slitið kl:  19.25

 

Í bréfinu kemur fram að íslensk ferðaþjónusta hafi vaxið töluvert utan háannar, þó sérstaklega í Reykjavík.  Samfara þessari auknu ferðaþjónustu hefur ekki verið gætt nægjanlega vel að skerða ekki þjónustuna um of utan háannar og draga úr afþreyingarmöguleikum.  Að lokum er það áréttað í bréfinu að ekki ekki sé hægt að markaðsetja Ísland utan háannar nema að ferðaþjónustuaðilar leggist ekki á eitt með að halda þjónustunni gangandi yfir vetrarmánuðina.

 

Atvinnumálanefnd vill eindregið beina því til ferðaþjónustuaðila að kynna sér efni bréfsins og taka tillit til þeirra ábendinga sem þar koma fram.  Jafnframt beinir atvinnumálanefnd því til bæjarráðs að það fyrir sitt leyti stuðli að því að sú þjónusta sem sveitarfélagið sinnir við ferðamenn verði sniðinn að eftirspurn á hverjum tíma og á þar m.a. við upplýsingagjöf til ferðamanna og rekstur safna og sýninga.

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica