Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
12. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 4. júní 2004 kl. 14:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Reynir Arnarsson, Inga Jónsdóttir, Pálmi Guðmundsson og Sveinbjörn Imsland. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Refa- og minkaveiðar
Inga Jóna sagði frá tölvupósti sem sendur var til veiðistjóra þar sem spurt var um störf nefndar sem skipuð var til að til að fjalla um minkaveiðar og hvort hann telji að búast megi við því að ríkið setji aukið fjármagn til að standa við greiðslu 50% kostnaðar við refa- og minkaveiðar. Samkvæmt svari veiðistjóra er ekki ljóst hvað kemur út úr starfi nefndarinnar né heldur hvort ríkið muni auka fjárframlög til veiðanna.
Atvinnumálanefnd er sammála um að veiðilaun verði áfram einungis greidd til ráðinna veiðimanna. Að veiðitímabilinu loknu verði skoðaður fjöldi veiddra dýra og í framhaldi af því hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi veiðanna.
2. Hreindýraveiðar
Reynir fór yfir stöðuna. Búnaðarfélag Hofshrepps hefur sent áskorun til landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra þar sem óskað er eftir heimild til að fella þau dýr sem kunni að koma vestur yfir Jökulsá vegna þess að það ógni heilbrigði búfjár á svæðinu. Í bréfi frá Hreindýraráð kemur fram að ekki hafi verið hægt að skipuleggja veiðarnar á svæðum 8 og 9 í sýslunni m.a. vegna þess að bændur loka fyrir aðgang að jörðum sínum. Afleiðing þessa er fjölgun dýra sem leita í auknu mæli vestur yfir Kolgrímu.
Samkvæmt upplýsingum frá bæjarstjóra hefur verið óskað eftir viðræðum við landbúnaðarráðuneytið um málið. Atvinnumálanefnd tekur undir mikilvægi þess að teknar verði upp viðræður við ráðuneytið um málið og reynt að finna viðunandi lausn.
3. Staða atvinnumála í sveitarfélaginu
Samkvæmt upplýsingum frá Vökli Stéttarfélagi eru nú 31 einstaklingur án atvinnu í sveitarfélaginu og hefur þessi tala verið svipuð undanfarnar vikur.
Rætt var á fundinum við Gunnar Vignisson hjá Þróunarstofu Austurlands (var í símasambandi). Gunnar telur mjög mikilvægt að myndaður verði þverfaglegur hópur fólks úr sveitarfélaginu til að vinna með starfsmönnum Þróunarstofu að því að efla atvinnustarfsemi á svæðinu og leita nýrra tækifæra. Gunnar segir hornfirsk fyirtæki þurfa að útvíkka markaðssvæði sitt og brjótast inn á ný svæði. Hann ræddi um að menn þyrftu að vera vakandi fyrir þeim fjölmörgu viðskiptatækifærum sem væru að myndast á miðausturlandi í kjölfar stóriðjuframkvæmda þar.
Rætt var um að stefna að því að halda í haust málþing um stöðu sveitarfélagsins sem jaðarbyggðar þar sem skoðuð verði núverandi staða og hvar séu helstu sóknarfæri til framtíðar.
Fundi slitið kl: 15:30


