Gamla - Atvinnumálanefnd

Fundargerð Atvinnumálanefndar 1

1. fundur

Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 16. september 2002 kl. 17:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.

Mættir voru: Reynir Arnarsson, Pálmi Guðmundsson og Sveinbjörn Imsland. Einnig Albert Eymundsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :

1. Erindisbréf atvinnumálanefndar

Farið var yfir helstu hlutverk og verksvið nefndarinnar. Nefndarmenn munu koma með athugasemdir og ábendingar um erindisbréfið á næsta fundi.



2. Umsókn um leyfi til grenjavinnslu

Atvinnumálanefnd kallar eftir upplýsingum um greidd veiðilaun til ráðinna veiðimanna síðustu 3 ár. Á þeim forsendum verða ráðningasamningar endurskoðaðir sem og fyrirkomulag veiðanna.



3. Önnur mál

Ítölubeiðni í Laxárdal
Á löggjafarþingi 2001 ? 2002 var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 6/1986, um afréttamálefni, fjallskil o.fl. með síðari breytingum. Frumvarpið var ekki afgreitt en mun væntanlega verða lagt fyrir aftur á komandi löggjafarþingi. Í athugasemdum með frumvarpinu segir:

?Lagt til að III. kafli um verndun beitilands og um ítölu verði styttur og öll umfjöllun um ítölu verði felld úr lögunum. Það hefur reynst mun erfiðara að koma á ítölu í beitilöndum en ætlað var með setningu laganna og nær ógerlegt hefur verið að framkvæma þær ítölur sem settar hafa verið hafi þær verið íþyngjandi fyrir búfjáreigendur. Frá því lögin voru sett árið 1969 hefur verið sett ítala í um tug afréttarsvæða og hafa þær ýmissa hluta vegna ekki leitt til umbóta í gróðurvernd þeirra beitilanda, það hefur gerst eftir öðrum leiðum.?

Einnig verða ný lög um landgræðslu lögð fyrir á næsta löggjafarþingi.

Í ljósi þessa telur atvinnumálanefnd eðlilegt að beðið verði með að fara út í svo kostnaðarsama aðgerð sem ítala er uns lagalegur grunnur liggur fyrir sem tryggir það að hægt sé að ná fram umbótum í gróðurvernd þegar þess er þörf.

Fjallskil

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu fjallskilamála í Nesjum.

Girðingalög
Inga Jóna sagði frá nýjum girðingalögum nr. 135/2001 sem tóku gildi 21. desember s.l. Fram kom það mat að á grundvelli 6. gr. þeirra laga sé ekki hægt að gera kröfu á sveitarfélagið þess efnis að því beri að greiða 80% kostnaðar í girðingu sem liggur milli afréttar og heimalanda heldur beri eigendum eða notendum afréttarins eða beitilandsins að greiða þann kostnað.



Lausaganga búfjár ? lokun vegsvæða
Inga Jóna sagði í undirbúningi að ganga frá samkomulagi við Vegagerðina um að gera vegsvæðið milli Almannaskarðs og Hornafjarðarfljóts fjárhelt. Samkomulag þetta mun verða háð því skilyrði að sveitarfélagið banni lausagöng búfjár á vegsvæðinu. Gert er ráð fyrir því að vinna við verkið hefjist í haust og ljúki næsta vor.

Atvinnumál í sveitarfélaginu ? samvinna við starfshóp um eftirfylgni við stefnu sveitarfélagsins í atvinnumálum
Nefndarmenn munu fara yfir skýrsluna um stefnu sveitarfélagsins í atvinnumálum fyrir næsta fund og taka málið fyrir aftur þá.



Fundi slitið kl: 18:50


Fundargerðir

Dag.grein
19.04.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 58
10.02.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 57
14.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 56
12.01.2010 Fundargerð atvinnumálanefndar 55
08.12.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 54
20.10.2009 Fudnargerð atvinnumálanefndar 53
01.09.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 52
20.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 50
18.05.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 51
20.03.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 49
19.02.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 48
29.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 47
21.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 46
13.01.2009 Fundargerð atvinnumálanefndar 45
26.11.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 44
16.10.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 43
18.09.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 42
18.08.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 41
26.06.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 40
22.05.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 39
14.04.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 38
13.02.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 37
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
30.01.2008 Fundargerð atvinnumálanefndar 36
13.12.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 35
02.11.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 34
21.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 33
08.08.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 32
26.03.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 31
19.02.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 30
15.01.2007 Fundargerð atvinnumálanefndar 29
21.11.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 28
16.10.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 27
18.09.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 26
21.08.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 25
05.07.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 24
24.05.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 23
21.02.2006 Fundargerð atvinnumálanefndar 22
07.11.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 21
22.09.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 20
23.05.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 19
18.04.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 18
14.03.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 17
15.02.2005 Fundargerð atvinnumálanefndar 16
20.12.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 15
23.11.2004 Fundargerð atvinnumálanefndar 14
28.10.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 13
04.06.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 12
01.03.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
27.01.2004 Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
01.12.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 9
29.09.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 8
05.05.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 7
05.03.2003 Fundargerð atvinnumálanefndar 6
27.01.2003 Fundargerð Atvinnumálanefndar 5
18.11.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 4
21.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 3
14.10.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 2
16.09.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 1
22.04.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 35
05.03.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 6
25.02.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 34
08.01.2002 Fundargerð Atvinnumálanefndar 33
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica