Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 11
11. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 1. mars 2004 kl. 17:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Reynir Arnarsson, Inga Jónsdóttir, Björn E. Traustason og Sveinbjörn Imsland. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Heimsókn Ara Þorsteinssonar – staða Klasaverkefnisins
Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri frumkvöðlaseturs Austurlands mætti á fundinn. Hann hefur verið í samstarfi við Impru varðandi klasaverkefni en þar er nú unnið að gerð handbókar og útgáfu kynningarefnis um málið. Þegar það liggur fyrir mun frumkvöðlasetrið kynna málið fyrir fyrirtækjum og einstaklingum í sveitarfélaginu.
2. Heimsókn Grétars Más Þorkelssonar starfsmanns Búnaðarsambands Austur-Skaftafellssýslu
Grétar Már mætti á fundinn og fór yfir hvernig samstarf við Orf líftæknifyrirtæki hefur þróast. Kornfélagið hefur sótt um styrk til Impru og mun í samstarfi við Orf, Rala og landeigendur í sveitarfélaginu koma upp tilraunareitum þar sem gerð verður tilraun með ræktun korns af sama yrki og erfðabreytta kornið sem hugsanlega verður síðar hægt að rækta í sveitarfélaginu.
3. Önnur mál
Bæjarstjóri mætti á fundinn og ræddi um kvikmyndagerð sem fyrirhuguð er í sveitarfélaginu í haust.
Fundi slitið kl: 19:00


