Gamla - Atvinnumálanefnd
Fundargerð Atvinnumálanefndar 10
10. fundur
Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Hornafjarðar mánudaginn 27. janúar 2004 kl. 17:00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Reynir Arnarsson, Pálmi Guðmundsson, Inga Jónsdóttir, Sveinbjörn Imsland og Björn E. Traustason. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar, til kynninga
2. Atvinnuástand í sveitarfélaginu
Reynir dreifði tölum um fjölda einstaklinga á atvinnuleysisskrá. Nú í janúar voru 32 einstaklingar á skrá en á sama tíma í fyrra var talan 55. Ljóst er því að staðan hefur batnað talsvert frá síðasta ári. Atvinnumálanefnd ítrekar þó að ekki er hægt að sætta sig við viðvarandi atvinnuleysi.
3. Staðsetning upplýsingamiðstöðvar á Höfn
Varpað hefur verið fram hugmynd um að upplýsingamiðstöð verði rekin á ársgrundvelli til framtíðar í Menningarmiðstöðinni í Nýheimum. Atvinnumálanefnd telur mjög brýnt að festa komist á rekstur upplýsingamiðstöðvar í Sveitarfélaginu og að hún verði rekin í góðri samvinnu við Ferðamálaráð Íslands, Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu og aðra hagsmunaaðila. Nefndin felur starfsmanni að hafa samband við ofangreinda aðila og leita álits þeirra.
4. Refa- og minkaveiðar
Í bréfi frá Umhverfisstofnun sem sent var Sveitarfélaginu Hornafirði þann 4. desember s.l. er tilkynnt að miðað við fjárveitingu á fjárlögum 2003 til endurgreiðslu vegna refa- og minkaveiða muni endurgreiðsluhlutfallið lækka úr 50% í 30%.
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar samþykkir því að strax verði hætt greiðslu skotlauna fyrir eyðingu á mink og ref til annarra en ráðinna veiðimanna sveitarfélagsins. Verði ekki fundin viðunandi lausn á kostnaðarskiptingu vegna veiðanna til framtíðar er einnig ljóst að endurskoða verður samninga við ráðna veiðimenn og takmarka veiðarnar við skilgreind afmörkuð svæði.
5. Önnur mál
Rætt var um samræmdan kortaupplýsingavef fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi en Inter – Map á Íslandi ehf. hefur gert samning við Byggðastofnun og Samband Sveitarfélaga á Austurlandi um útfærslu hans. Samþykkt að fá kynningu á verkefninu.
Fundi slitið kl: 18:45


