Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
53. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
22. september 2003 kl. 17:10 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Elsa S. Elísdóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Framtíðar starfsemi í Sindrabæ.
Ráðinu hefur borist bréf frá Gísla Sverri Árnasyni forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem óskað er eftir því að ráðið sendi a.m.k. einn fulltrúa til fundar til að taka þátt í skoðanaskiptum um framtíðaruppbyggingu Sindrabæjar. Var Friðrik tilnefndur á fundinn. Fulltrúinn hefur fullt umboð á fundinum til að taka þátt í skoðanaskiptum um málið og tjá hug síns umbjóðanda til hugmyndar um framtíð hússins. Ráðið vill taka skýrt fram að ef uppbygging Sindrabæjar verður að veruleika sem meningarhúss verði húsnæði til staðar til að taka við starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar sem nú er til húsa í Sindrabæ. Fundurinn verður haldinn í Sindrabæ miðvikudaginn 1.október nk.
2. Endurskoðun forvarnastefnu. Forvarnafundur.
Farið var yfir forvarnastefnu sveitarfélagsins með það fyrir augum að gera á henni breytingar. Haukur lagði til breytingu í stefnunni þar sem talað er um verkefnið “Ungt fólk í öndvegi” það verði öflugt fjárhagslegt bakland þeirra sem að forvörnum starfa. Þetta verkefni er ekki lengur til. Í stað þess komi, að sveitarfélagið verði öflugt fjárhagslegt bakland þeirra sem að forvörnum starfa í sveitarfélaginu. Þá þarf að breyta áherslum og niðurlagi stefnunnar.
Einnig þarf að vinna að markmiðssetningu í tengslum við forvarnastefnuna til að ná stefnu hennar fram og tímasetningum ef ákveðin verkefni verða sett í gang.
Haukur greindi frá fundi sem haldinn var um forvarnamál miðvikudaginn 10.september með lykilaðilum í forvörnum. Fundinn sátu skólastjórar Heppu- og Hafnarskóla, lögregla, formaður nemendaráði FAS, starfsmaður Þrykkjunnar, sóknarpresturinn, fulltrúi frá FAS., ásamt Stefáni Ólafssyni og Hauki Helga. Gestur fundarins var Svanhvít Nína Jónsdóttir verkefnastjóri fyrir forvarnaverkefninu “Vertu til “ sem er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Áfengis – og vímuvarnaráðs. Áttu þessir aðilar saman góðan fund þar sem reynt var að varpa ljósi á ástandið í núinu og horfa til framtíðar. Voru fundarmenn nokkuð sammála um að of mikil unglingadrykkja væri viðhöfð hér og var reynt að leita skýringa og að leiðum til úrbóta. Farið var yfir forvarnaverkefnið “Að allt árið “ sem Haukur vann sem verkefni í KHÍ. en það hvetur til þessa að sem mest tengsl náist milli þeirra aðila sem með einhverjum hætti geta lagt hönd á plóg í forvarnastarfinu.
Leist fundarmönnum nokkuð vel á þetta verkefni og er spurningin hvort og með hvaða hætti er hægt að hleypa því af stokkunum.
Haukur og Svanhvít Nína heimsóttu nemendur í 8. bekk í Heppuskóla og áttu með þeim skoðanaskipti um forvarnir. Að þeirra mati var þetta greinilega vel stemndur hópur sem virtist vera ákveðinn í að standa sig og láta hvorki áfengi eða tóbak hafa áhrif á lífsstíl sinn. Þarna virðist vera góður jarðvegur til að virkja til átaka og breytinga með þátttöku þeirra. Reynt verður að biðja þau að vinna tillögur um hvernig þau sjá fyrir sér að hægt er að bregðast við áreitni þeirra sem reykja og drekka. Vinna síðan áfram með þeim bæði í skóla og félagsmiðstöð. Hauki falið að vinna áfram að þessum málum og leita liðsinni anarra með þekkingu á þeim. Þá var lögð áhersla að áfram yrði haldið með að koma ungmennahúsi á laggirnar.
3. Orkuátak Latabæjar ehf.
Lögð voru fram plögg um Orkubókar átakið sem Latibær , mörg sveitarfélög , ráðuneyti , landlæknir og ýmis fyrirtæki eru nú komin á fullt skrið með. Átakið stendur frá 1.október til 1. nóvember. Markmiðð er að taka þátt í heilbrigðari lífsstíl fyrir komandi kynslóðir sem sjaldan hefur verið eins mikil þörf á og nú.Orkubókin er send til allra barna á landinu sem fædd eru á árunum 1996 – 1998 þann 1.október.
Í þessu átaki eru einhverjir þættir sem snúa að æskulýðs- og tómstundaráði s.s.frítt í sundlaug og að vekja athygli á gönguleiðum og hreyfingu almennt. Skólaskrifstofan hefur ákveðið að taka þátt í þessu verkefni.
4. Kynning á starfsemi ÆTH og henni tengdri.
Friðrik lagði til að kynning fari fram á starfsemi félaga sem heyra undir æskulýðs- og tómstundaráð og njóta styrkja frá því, þau gefi út bæklinga eða koma saman á fjölsóttum stað þar sem kynningin fer fram. Hauki falið að kanna þetta meðal félaganna.
5. Sindrabíó.
Í framhaldi af umræðum í ráðinu um stöðu Sindrabíós var auglýst eftir aðila til að reka bíóið. Ein umsókn barst. Það er því nokkuð ljóst að ekki líður langur tími þar til bíósýningar hefjast að nýju í Sindrabæ.
6. Heimsókn í íþróttamannvirki.
Ráðið ákvað að heimsækja íþróttamannvirki á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 19:10.
Friðrik Ingvaldsson
Valdemar Einarsson
Elsa S. Elísdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson
Haukur H. Þorvaldsson.


