Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52

52. Fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 25. ágúst 2003 kl. 17:10 í fundarsal Ráðhúss.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Gunnar Ingi Valgeirsson, Þórgunnur Torfadóttir, Elsa S. Elísdóttir, Valdemar Einarsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.


Friðrik formaður setti funda og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

1. Starfsemi Þrykkjunnar.
Haukur greindi frá opnunartímum og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar í haust. Unnið er að ráðningu starfsmanns í rúmlega hálfa stöðu við félagsmiðstöðina. Gert er ráð fyrir opnun hennar föstudaginn 5.september. Skátastarf er í nokkurri óvissu.

2. Forvarnarátak í haust.
Rætt var um forvarnarmál og var ráðið sammmála um að sem fyrst verði kallaður sama hópur lykilaðila sem hafa þekkingu á þessum málum og farið yfir stöðu mála og lagðar línur um framhaldið í haust. Reynt verður að vinna eftir forvarnaráætluninni “Að allt árið “ sem hvetur til þessa að sem mest tengsl náist milli þeirra aðila sem með einhverjum hætti geta lagt hönd á plóg í starfinu. Haukur greindi frá fundi sem hann sótti á Breiðdalsvík þar sem verkefnið “Vertu til“ var kynnt en það er samstarfsverkefni Áfengis- og vímuvarnarráðs og Sambands Íslenskra sveitarfélaga í forvörnum. Verkefnisstjórar þess eru tilbúnir að koma í heimsókn til þeirra sem að forvarnarverkefnum vinna í sveitarfélögum þeim að kostnaðarlausu. Var hvatt til að fá þá hingað. Ráðið leggur til að núverandi forvarnastefna verði endurskoðuð og felur ráðið Hauki að koma með tillögur þar um á næsta fund ráðsins.

3. Íþróttamaður ársins.
Á formanna fundi U.S.Ú.sem haldinn var í júní voru teknar fyrir reglur og fyrirkomulag á vali á Íþróttamanni U.S.Ú. sem æskulýðs- og tómstundaráð hafði samþykkt í febrúar með fyrirvara um samþykki U.S.Ú. Fóru skoðanir formanna að nokkru leyti saman við tillögur ráðsins en eru ráðsmenn sammála um að halda sig við sína útgáfu. Munurinn felst m.a. í 2. gr. þar sem ÆTH vill að íþróttamaðurinn keppi fyrir hönd USÚ og 3. gr þar sem ákv. dagsetning er lögð til grundvallar.

4. Framkvæmdir á Sindravöllum.
Valdemar Einarsson greindi frá stöðu framkvæmda á Sindravöllum á vegum knd. Sindra. Samningur er um framkvæmdirnar á milli sveitarfélagsins og Sindra sem tekur til þriggja ára. Valdemar vonaðist til að þökulagningu yrði lokið í vikunni og þá væri bara eftir að gera við sár. Eftir er að leggja drenlagnir í völlinn. Einhverjar hugmyndir eru í gangi um smávægilegar breytingar í viðbót en hvað verður er óljóst. Ánægja er með þetta nýja svæði en þó er mikil bleyta á nýja svæðinu undir hólnum. Valdemar áréttaði enn og aftur að vallarstjórn væri ábótavant og samþykkti ÆTH að beina því til bæjarstjórnar að fyrir næsta sumar yrði skipuð vallarstjórn fyrir báða vellina þ.e.a.s. Sindra- og Mánavöll. Valdemar f.h. knd. Sindra ætlar að sækja um styrk til Íþróttasjóðs um áhöld og tæki omfl.


5. Opnunartími sundlaugar í haust.
Lagt var til að opnunartímar sundlaugar í vetur verði sem hér segir: virka daga frá kl. 07:00 – 09:00 og 16:00 – 20.00. Helgar opnun frá kl. 09:00 – 15:00. Tilraun með lengingu opnunrtíma í vetur um helgar skiluðu sáralítilli aukningu á aðsókn. Sér ráðið ekki ástæðu til að hafa opnun um helgar lengri eftir að hafa séð sundurliðun á aðsóknartölum um helgar eftir áramót í vetur. Þórgunnur lagði þó til að opnunartími um helgar yrði lengri í september og maí, þar sem ferðamannatímabilið væri að lengjast og oft gott veður á þessum tíma þó síðasti maímánuður væri kaldur. Þennan opnunartíma ætti þó að skoða í samhengi við helgarnýtinguna síðasta sumar.

6. Ungmennahús.
Staðan í nefnd sem er að móta og ræða um væntanlegt ungmennahús er sú að um síðustu helgi fór Jón Garðar Bjarnason formaður og Bergþóra Ágústsdótttir á fund sem nefndist "Þjóðvegur 2" sem er verkefni þeirra sem standa að ungmennahúsum. Er mikill áhugi á að halda starfinu áfram og reyna allt sem hægt er til að lenda því.

7. Framtíð Sindrabíós.
Ekki hafa verið kvikmyndasýningar í Sindrabæ frá því í vor. Þeir sem ráku þar kvikmyndasýningar eru hættir með starfsemina. Æskulýðs- og tómstundaráði finnst sjálfsagt að reyna að hafa bíóið áfram. Réttast væri því að auglýsa eftir aðila sem hefði áhuga á að reka það.

8. Íþróttanótt í september. Ísland á iði.
Haukur varpaði fram hugmynd um að halda íþróttanótt á Hornafirði í september þar sem yrði lögð stund á fjölbreyttar íþróttir í íþróttamannvirkjum Hornafjarðar. Ísland á iðið er heilsuátaks verkefni sem Í.S.Í. stendur fyrir og er vert að gefa því gaum.

9. Heimsókn í íþróttamannvirki.
Ráðið er ákveðið í því að heimsækja íþróttamannvirki við fyrsta tækifæri.


Fundi slitið kl. 18:50.

Friðrik Ingvaldsson
Þórgunnur Torfadóttir
Valdemar Einarsson
Elsa S. Elísdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson

Haukur H. Þorvaldsson.


Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica