Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100

100. fundur

Fundur haldinn      í  æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss fimmtudaginn 15. maí 2008  kl. 17:05.

 Mætt voru:               Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

                              Úr Ungmennaráði Hornafjarðar mætti: Emil Morávek formaður.

 Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk og formann ungmennaráðs velkomin.

  1.    Ungmennþing sunnudaginn 18. maí.

Formaður Ungmennaráðs Hornafjarðar greinir frá Ungmennaþingi. Ungmennaþingið veður haldið sunnudaginn 18. maí í Nýheimum og endar í Pakkhúsinu þar sem verður boðið upp á pizzu og tónlist. Farið var yfir dagskrá þingsins og framkvæmd. Ungmennaráð og æskulýðs- og tómstundaráð sjá um að halda utan um þingið. Tilfallandi kostnaður vegna þingsins verður greiddur úr Sérsjóði ÆTH.

 2.    Vinnuskólinn í sumar.

Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs gat ekki komið á fund en veitti starfsmanni ráðsins upplýsingar um stöðu mála hvað varðar vinnuskólann í sumar. Halldór Steinar Kristjánsson verður yfirflokkstjóri. Flokkstjórar og fólk í slátturhóp hefur verið ráðið. Umsóknareyðublöð um störf liggja frammi í grunnskólanum og geta 8. til 10. bekkingar sótt um vinnu. Flokkstjórar hefja vinnu nú eftir helgi og skólinn hefur starfsemi sína í byrjun júní. Skólagarðar verða starfræktir að venju og umsjón með þeim hefur Sólveig Runólfsdóttir.

 3.  Framkvæmdir við sundlaug og knattspyrnuhús.

Gestur Halldórsson ráðsmaður og nefndarmaður í nefnd um íþróttamannvirki sagði frá framkvæmdum við sundlaug. Haukur Helgi gaf þær upplýsingar að verið væri að senda Skipulagsstofnun ríkisins deiliskipulagið varðandi staðsetningu knattspyrnuhúss sem fyrirhuguð er við austurenda Sindravalla, að því loknu fer það í íbúakynningu. Ekki er búið að ákveða gerð knattspyrnuhússins. 

 4.   Fjölskyldustefna sveitarfélagsins.

Matthildur formaður greindi frá vinnu við fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.

 5.  Sameining nefnda. Hjalti Þór.

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri upplýsti ráðsmenn um breytingu á nefndarskipan sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar og fer aftur til seinni umræðu í bæjarstjórn. Breytingin felur í sér að æskulýðs- og tómstundaráðs rennur saman við menningarmálanefnd og mun heita Menningar- og tómstundanefnd. Íþróttamálin og umsýsla íþróttamannvirkja munu heyra undir skólanefnd. Umf. Sindri mun sjá um lýðheilsumál samkvæmt samningi. Forvarnamál munu heyra undir félagsmálaráð.

 6. Önnur mál.

Æskulýðs- og tómstundaráð lýsir áhyggjum sínum yfir lokun Sporthallarinnar þar sem  boðið  hefur verið upp á líkamsrækt fyrir almenning. Ráðið leggur áherslu á að aðstaða til líkamsræktar verði ávallt til staðar í sveitarfélaginu.

 

Fundi slitið kl. 18:30.

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica