Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97

97. fundur

Fundur haldinn      í  æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

21. febrúar 2008  kl. 17:05.

 Mætt voru:               Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi. Úr ungmennaráði Emil Morávek, Sædís Valdemarsdóttir og Jóhann Bergur Kiesel. Fjarverandi úr ungmennaráði voru Iðunn Tara Ásgrímsdóttir og Stefán Lárus Reynisson.

  

Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk og ungmennaráð velkomið.

 Gengið var til dagskrár:

 1.    Sameiginlegur fundur æskulýðs- og tómstundaráðs og Ungmennaráðs

    Hornafjarðar

Matthildur gaf Emil Morávek formanni ungmennaráðs orðið og fór hann yfir það sem ungmennaráð hefur verið að ræða t.d. mætingu í Þrykkjunni sem þarf að efla. Það horfir samt í rétta átt búið er að mála Þrykkjuna og lagfæra svið. Rætt var um að margir unglingar á þessum aldri í 8. til 10. bekk eru dugleg að sækja íþróttir. Þá var komið inn á að netið taki töluverðan tíma hjá þeim. Ungmennaráð vill að haldið verði unglingaþing. Emil sagði að almennt væri nemendur í FAS ánægðir með lífið og tilveruna og starf nemendaráðs. Líka kom fram að gott væri að hafa aðgang að húsnæði fyrir aldurshópinn 16 +. Jóhann Bergur sagði að í næstu viku yrði gerð könnun meðal nemenda FAS um áhuga þeirra á að fá ungmennahús og hvernig starfsemi og opnunartími yrði þar einning er tekið fram að ungmennahús er að sjálfsögðu vímuefnalaust. Bíómál bar á góma og var áhugi á að hafa hér bíó. Haukur sagði að von væri á breskum sérfræðingi til Senu kvikmyndafyrirtækis og er búið að óska eftir að sá sérfræðingur komi hingað og kíki á búnað varðandi kvikmyndasýningar. Matthildur þakkað ungmennaráði kærlega fyrir komuna.

 2. Skýrsla starfshóps um félagslíf grunnskólanema

Matthildur fór yfir greinagerð starfshóps um félagslíf grunnskólanema á Hornafirði. Var rætt um ýmsa þætti í greinagerðinni og var ráðið almennt ánægt með niðurstöðu starfshópsins. Ráðið vill að sem fyrst verði leitað að starfskrafti með menntun á svið tómstundafræða á landsvísu til að sjá um félagsmál grunnskólanemenda.  Æskulýðs – og tómstundaráð felur starfsmanni sínu að hefja undirbúning að ungmennaþingi um miðjan apríl.

 3.  Málþing ÆTH og Sindra.   Hvernig tókst til.

Málþing um íþrótta- og æskulýðsmál var haldið í Pakkhúsinu sunnudaginn 20.janúar. Margt forvitninlegt kom fram á þinginu  bæði frá foreldri og íþróttafólki. Hér stunda fleiri unglingar íþróttir en jafningjar þeirra annarsstaðar á landinu.

 4.      Forvarnir

Haukur sagði frá því að á miðvikudaginn voru 8. bekkingum afhent forvarnadagatöl sem þau hafa unnið að í forvarnavinnu sem var í gangi með fram að jólum.  Dagatölin eru líka send inn á heimili nemenda í 9. og 10. bekk. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir styrktu útgáfu dagatalsins. Auk Hauks sá Björn Sigfinnsson kennari um að aðstoða nemendur við forvarnavinnuna.

Haukur sagði frá stöðufundi í forvarnarmálum sem haldinn var á þriðjudaginn 19. febrúar.  

Á fundinn mættu 9 manns sem tengjast inn í nám og störf með börnum og ungmennum og var skipst á skoðunum um stöðu mála varðandi útivist, vímu- og fíkniefni. Voru menn á því að ástandið væri svipað og verið hefur, nokkuð gott. Næsti stöðufundur verður haldinn í lok mars.

 5.      Önnur mál

Spurt var um hvers vegna yfirbreiðsla í sundlaug væri ekki dregin yfir laugina. Lagði ráðið áherslu á að yfirbreiðslan verði notuð. Ráðið vill að endurskoðun á stefnu í æskulýðs- og íþróttamálum verði tekin til endurskoðunar og verði farið yfir hana á næsti fundi.

 Fundi slitið kl. 18:50.

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica