Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
96. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
17. janúar 2008 kl. 17:05.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Styrkveiting
Farið var yfir umsóknir sem borist hafa ráðinu um styrkbeiðnir frá ýmsum félögum. Gengið var til afgreiðslu og voru styrkir til eftirtalinna félaga samþykktir:
Sindri til almenns rekstrar kr. 2.400.000
Framlag til þróunar íþrótta- og æskulýðsstarfs kr. 5.000.000
Reiknuð húsaleiga í Íþróttahúsi Höfn kr. 3.540.000
Vegna leikjanámskeiða kr. 750.000.00.
Sunddeild Sindra (leiga á sundlaug) kr. 150.000.00.
Umf. Máni.
Til íþróttastarfsemi kr. 300.000.00. Reiknuð húsaleiga í Mánagarði kr.150.000.00.
Golfklúbbur Hornafjarðar
Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2.567.000
Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 425.000.00.
Hestamannafélagið Hornfirðingur
Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2.588.000
Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 425.000.00.
Akstursíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu kr. 100.000
Sérsjóður
Framlag í sérsjóð kr. 405.000
Alls eru veittir styrkir að upphæð 18.800.000.00. kr.
2. Styrkveitingar til efnilegra íþróttamanna og sérverkefna úr Sérsjóði.
Ákvað ráðið að veita frjálsíþróttafólkinu Sveinbjörgu Zophoníasdóttur, Fannari Blæ Austar Egilssyni, Jóni Snorra Þorsteinssyni styrk að upphæð kr. 30.000 kr. hverju til æfinga og keppnisferða.
Styrkur vegna Málþings ÆTH 20.janúar kr. 50.000
Styrkur vegna ferðar tveggja knattspyrnuflokka á alþjóðlegt knattspyrnumót í Noregi í júlí. kr.120.000
Ákveðið var að gefa út sumarbækling ÆTH 2008 í vor og styrkja útgáfuna um 70.000 kr.
3. Ungmennaráð Hornafjarðar
Fyrsti fundur í Ungmennaráði Hornafjarðar var haldinn fimmtudaginn 10. janúar. Farið var yfir erindisbréf ráðsins og kosið í embætti, var Emil Örn Morávek kjörinn formaður og Sædís Ösp Valdemarsdóttir ritari. Auk ráðsins sátu fundinn Helga Lucia Bergsdóttir varaformaður æskulýðs- og tómstundaráðs sem jafnframt stjórnaði fundinum og Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Í upphafi fundar bauð Stefán Ólafsson staðgengill bæjarstjóra ungmennin velkomin til starfa og óskaði þeim velfarnaðar. Næsti fundur ungmennaráðsins verður 25.janúar og síðan verður sameiginlegur fundur 21. febrúar með æskulýðs- og tómstundaráði og ungmennaráði.
4. Málþing ÆTH og Sindra
Málþing um íþrótta- og æskulýðsmál verður haldið í Pakkhúsinu sunnudaginn 20.janúar. Á málþinginu verður m.a. skrifað undir samstarfssamning milli sveitarfélagsins og Umf. Sindra til þriggja ára og heiðraðir verða tveir einstaklingar fyrir öflugt og farsælt starf að íþrótta- og tómstundamálum á Hornafirði um langt árabil.
5. Forvarnir
Haukur sagði frá forvarnavinnu sem er í gangi með 8. bekkingum í Heppuskóla. Haukur sagði frá stöðufundi í forvarnarmálum sem haldinn var síðla í nóvember.
Á fundinn mættu 9 manns sem tengjast inn í nám og störf með börnum og ungmennum og var skipst á skoðunum um stöðu mála varðandi útivist, vímu- og fíkniefni. Voru menn á því að ástandið væri svipað og fyrr í haust, nokkuð gott. Næsti stöðufundur verður haldinn í lok janúar. Í desember voru birtar á vegum æskulýðs- og tómstundaráðs og félagsmálaráðs forvarnaauglýsingar á skjávarpinu til fjölskyldna um samveru fjölskyldunnar og áfengislaus jól og áramót.
6. Skautasvell
Búið er að kaupa ljós og kapal til að setja upp lýsingu á skautasvellið við Hrossabithaga. Verður það sett upp á næstu dögum. Eins verður komið fyrir bekkjum og borðum þar. Þetta svæði virðist henta vel vegna þess að hægt er að stjórna vatnsfyllingu nokkuð á því og þar með svellmyndun. Þá hefur komið til tals að útbúa svæði í miðbænum milli Nettó og Sandbakkavegar í sumar svo koma megi þar upp skautasvelli.
Fundi slitið kl. 18:50.


