Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
95. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn
13. desember 2007 kl. 17:05.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir, Helga Lucia Bergsdóttir, Björn Sigfinnsson, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Gestur Halldórsson og Haukur H. Þorvaldsson, æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Samningur við Sindra (breyttur)
Ráðið fór yfir samning við Umf. Sindra til þriggja ára. Helstu breytingar frá áðurgerðum samningi var að lagt er til að umsjón valla færist til sveitarfélagsins og að starfsstyrkur til Sindra hækki um 2,5 milljónir og er þá litið til þess að félagið beri aukna ábyrgð á félags-, íþrótta og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu. Ráðinu fannst rétt að breyta lið 1.6 þannig að Sunddeild Sindra fær afnot af sundlaug eins oft og hún getur nýtt hana. Afnot sunddeildar af sundlaug verði endurskoðuð með tilkomu nýrrar sundlaugar. Eins er ráðið hlynnt því að vallarstjórn sjái um áhöld sem tilheyra íþróttaiðkun á Sindravöllum. Að öðru leiti var ráðið samþykkt framkomnum breytingum á samning við Sindra. Varðandi tímafjölda Umf. Sindra í íþróttahúsum er ljóst að félagið hefur íþróttahúsið á Höfn eftir að skóla líkur á daginn og fram til 23:00 á kvöldin og um helgar frá kl. 09:00 til 19:00 á laugardögum og frá kl. 10:00 til kl. 19:00 á sunnudögum. Þá er í einstökum tilfellum að íþróttahópar frá Sindra eru við æfingar í íþróttahúsinu í Mánagarði, aðallega er um blaktíma að ræða.
2. Málþing
Hugmyndir hafa komið upp um að halda málþing um æskulýðsmál og nota tækifærið til að kynna samning Sindra og skrifa undir hann og eins erindisbréf ungmennaráðs ofl. Ráðið mælir með að málþing verði haldið með þátttöku þeirra sem koma að íþrótta- og félagsstarfi með börnum og unglingum sem fyrst á nýju ári. Samþykkti ráðið að veita einstaklingi / einstaklingum heiðursverðlaun sem hefur unnið ötult starf í þágu æskulýðs- og tómstundamála á Hornafirði. Verður sú athöfn felld inn í dagskrá málþingsins. Ákveðið var að halda málþingið föstudaginn 18. janúar 2008. Hauki falið að undirbúa það og leita eftir samvinnu við aðra sem málið varða um framkvæmd þess.
3. Skautasvell
Starfsmenn Umhverfis- og tæknideildar ásamt Hauk fóru í vettvangsferð um Höfn til að skoða aðstöðu fyrir skautasvell. Svæði sem komu til greina var bakvið Gömlu búð og austan við Hrossó á Leirusvæðinu og sennilega er það svæði besti kosturinn. Þar var á mánudaginn komið álitlegt svell og voru menn á því að þar þyrfti að setja upp ljóskastara og bekki og eins að ganga úr skugga um að svæðið sé öruggt iðkendum. Líka að auglýsa það upp.
4. Ungmennaráð Hornafjarðar
Búið er að senda öllum fulltrúum sem sæti taka í Ungmennaráði Hornafjarðar erindisbréf. Í ráðinu eru: Emil Morávek formaður Nemendaráðs FAS, Jóhann Bergur Kiesel tilnefndur af Umf. Sindra, Iðunn Tara Ásgrímsdóttir formaður Nemendaráðs Grunnskóla Hornafjarðar, Stefán Lárus Reynisson formaður Þrykkjuráðs og Sædís Ösp Valdemarsdóttir sem kemur úr atvinnulífinu. Ungmennaráðið verður boðað til fyrsta fundar fimmtudaginn 10. janúar á næsta ári.
5. Kvikmyndasýningar í Sindrabæ
Ráðið ræddi um kvikmyndasýningar í Sindrabæ. Haukur hefur verið að skoða kostnað og breytingar á sýningartækni. Í stöðunni er að setja textalesara við núverandi sýningarvél og fara yfir hljóð og vélina sjálfa. Kostnaður er áætlaður um 2,5 til 3 milljónir króna. Sauðkræklingar settu textalesar í vél hjá sér í ágúst og var kostnaður á svipuðu róli.
Í viðtali við starfsmann hjá Senu sem m.a. rekur Sambíóin segir hann 4 til 5 ár í að stafræna tæknin verði almennt komin í kvikmyndahús. Ráðið mælir að fenginn verði aðili til að gera úttekt á þeim búnaði sem fyrir er s.s. sýningarvél og hljóðkerfi og gera tillögu í framhaldi af því þannig að hægt verði að hefja hér kvikmyndasýningar sem allra fyrst.
Fundi slitið kl. 18:45.
Haukur H. Þorvaldsson.
Matthildur Ásmundardóttir
Helga Lucia Bergsdóttir
Björn Sigfinnsson
Helga Vilborg Sigjónsdóttir
Gestur Halldórssson


