Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
91. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar þriðjudaginn 03. september 2007 kl. 17:05 í kaffistofu Ráðhúss.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir, Helga Lucía Bergsdóttir, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson og Haukur H. Þorvaldsson, æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Unglingalandsmótið. Hvernig tókst til ?
Ráðið lýsir yfir ánægju með framkvæmd og framgang Unglingalandsmóts UMFÍ um verslunarmannahelgina og þakkar UMFÍ og USÚ fyrir auk þess að þakka bæði íbúum á Hornafirði og þeim góðu gestum sem komu til móts og höfðu það eitt að markmiði láta helgina takast sem allra best.. Gaman var að sjá hve mörg Hornfirsk ungmenni tók þátt í flestum þeim greinum sem keppt var í og var frammistaða þeirra mjög góð. Hvetur ráðið USÚ til að líta til þess að fá hingað mót t.d. eitthvað af meistaramótum Íslands í frjálsum íþróttum á næstunni. Því var varpað fram á fundinum hvort endurvekja ætti íþróttaleg samskipti grunnskólanna í Vestur- og Austur-Skaftafellssýslum. Hér áður var þetta árlegur viðburður og keppt í fjölmörgum greinum íþrótta auk þess sem krakkarnir skemmtu sér saman á léttu nótunum.
2. Vinnuskólinn og skólagarðar 2007
Farið var yfir skýrslu sem verkstjórar Vinnuskólans Bjarni Ólafur Stefánsson og Björn Pálsson tóku saman að loknu sumarstarfi skólans. Ráðið þakkar þeim sem stóðu að vinnuskólanum og skólagörðunum í sumar gott starf.
3. Umsjón íþróttamannvirkja.
ÆTH leggur til að með tilkomu nýja vallarsvæðisins verði umhirða og umsjón þess tekin til ítarlegrar endurskoðunar sem allra fyrst. Samkvæmt samning við UMF. Sindra á félagið að sjá um umhirðu vallarsvæðisins.
4. Forvarnir: Flott á fíknar. Framhald forvarnavinnu m/ 8. bekkingum.
Haukur greindi frá því að 19. september kæmi hingað í heimsókn á vegum forvarnaverkefnisins “Hættu áður en þú byrjar” en það er samstarfsverkefni lögreglunnar í Reykjavík, Reykjavíkurborgar, Marita á Íslandi og forvarnasviðs Samhjálpar. Fræðslufulltrúi frá Marita á Íslandi er aðalfyrirlesarinn en auk hans taka þátt fulltrúar frá lögreglu og félagsþjónustu á staðnum. Haldnir verða fundir með nemendum í 8., 9., og 10. bekk ásamt foreldrafundi. Undanfarin ár hefur heimsókn frá þessum aðilum komið hingað. Þá er búið að ráðgera heimsókn læknanema í grunnskólann til að fræða nemendur 8.- 10. bekkjar um kynlíf, kynheilbrigði, kynsjúkdóma, getnaðarvarnir ofl. Flott án fíknar verkefni UMFÍ hefur verið komuið á fót hér og hafa yfir 20 unglingar undirritað samning um að neyta ekki vímuefna. Á ULM var haldinn fundur með verkefnisstjóra Flott án fíknar og voru unglingarnir í tjaldi á mótinu að kynna verkefnið og eins buðu unglingarnir hér öðrum klúbbfélögum og foreldrum í siglingu út fyrir Ós með viðkomu í Hellinum á heimleið. Byrjað er að skoða hvernig forvarnavinnu með 8.bekkingum verður háttað í vetur í samstarfi við grunnskólann. Þá verður reynt að koma á stofn VÁ- horn hópi sem kemur saman og gerir stöðumat á ástandi mála hér og leggur til leiðir í forvörnum ef þurfa þykir.
5. Þrykkjan byrjar. Ungmennahús og ungmennaráð.
Á miðvikudaginn kemur hefst vetrarstarf Þrykkjunnar með kynnigarfundum með 8. -10. bekkingum. Opið verður tvö kvöld í viku fyrir 8. – 10. bekk, auk þess sem nemendum FAS verður boðið upp á að nýta eitt kvöld. Þá verður opið annan hvern þriðjudag fyrir 6. og 7. bekkinga. Kosið verður í ráð Þrykkjunnar á föstudaginn og hafa þau starfstíma á miðvikudögum auk þess sem hljómsveitum er ætlaður æfingatíma tvisvar í viku. Starfsmaður amk. fram að áramótum verður Birgir Fannar Reynisson. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um starfrækslu ungmennahús en möguleiki er á að fá húsnæði Bugðuleirunnar til afnota. Æskulýðs- og tómstundaráð hvetur bæjarstjórn til að skipa í ungmennaráð sem allra fyrst samkvæmt nýjum æskulýðslögum. Það er mikilvægt að hafa slíkt ráð í sveitarfélaginu sem kemur reglulega saman og fjallar um það sem brennur hér á unga fólkinu hverju sinni og að bæjarráð og æskulýðs- og tómstundaráð fundi reglulega með slíku ráði.
6. Lýðheilsumál.
Ráðið vill taka upp umræðu um skýrslu þá er lýðheilsuhópurinn skilaði af sér í vor. Hvetur ráðið til að ákveðnir þættir verði skilgreindir þar og ýmsum ábendingum í skýrslunni komið í réttann farveg. Ljóst er að ef hrinda á í framkvæmd ýmsum því sem þar kemur fram kostar það fjármuni.
7. Skipan í starfshóp um úttekt og tillögur varðandi félagslíf grunnskólanema.
Ráðið tilnefnir af sinni hálfu Matthildi Ásmundadóttir formann æskulýðs- og tómstundaráð til að taka sæti í starfshópnum.
Næsti fundur ráðsins verður haldinn fimmtudaginn 20. september.


