Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
88. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
30. apríl 2007 kl. 17:05.
Mætt voru: Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Gestur Halldórsson, Miralem Haseta og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Helga Lucia varaformaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Friðrik Ingvaldsson formaður framkvæmdanefndar um íþróttamannvirki kynnti fyrir ráðsfólki stöðuna á uppbyggingu íþróttavalla og tilboði í sundlaugina.Aðeins eitt tilboð barst. Vinna við íþróttavöllinn gengur samkvæmt áætlun og er hönnuður vallarins er væntanlegur á næstu dögum. Aðeins eitt tilboð barst í sundlaug sem var mun hærra en kostnaðaráætlun sagði til um. Verið er að leggja mat á tilboðið. Ráðið leggur áherslu á að neti verði komið fyrir við gervigrasvöllinn til að hindra að bolti fari út af vellinum sem skapar slysahættu þeirra sem þurfa að ná í hann og truflar framkvæmdaaðila.
2. Vinnuskólinn. Staða.
Haukur Ingi framkvstj. umhverfis- og tæknisviðs og Haukur Helgi farið yfir ýmis atriði varðandi starf skólans t.d. námskeið með fagfólki í upphafi starfstíma skólans ætluð flokkstjórum og nemendum, ráðningarmál ofl. Gert er ráð fyrir því að skólinn hefjist í vikunni 11. til 16. júní og hefur umsóknaeyðublöðum verið komið upp í Heppskóla. Bjarni Ólafur Stefánsson verður yfirmaður skólans eins og í fyrra. Ljóst er að einhver ungmenni verði í humarvinnu og annari vinnu sem þeim býðst. Í fyrra voru 49 ungmenni skráð við störf í vinnuskólanum. Í upphafi voru þau 30. Nokkrar umsóknir hafa borist í störf flokkstjóra og í slátturhópa. Þá hefur einnig borist umsókn um að sjá um skólagarðana. Ekki hefur enn verið gengið frá félagsþætti skólans og eru menn að ræða ýmsar hugmyndir þar um.
3. Lýðheilsumál - Hjólað í vinnuna – forvarnir í 8.bekk.
Eins og fram hefur komið á fundi ÆTH um skýrslu stýrihóps um lýðheilsu þá vill ráðið hvetja til þess að ýmsu sem þar er bent á verði komið í framkvæmd og er ráðið reiðubúið að taka að sér umsjón með ákveðnum verkefnum sé þess óskað.
Haukur sagði frá því að hann hefði auglýst verkefni ÍSÍ “Hjólað í vinnuna” á skjávarpinu og eins vakið athygli á því á vefnum hornafjordur.is og horn.is.Eins hafa verið settar inn auglýsingar um aukna hreyfingu bæjarbúa á Skjávarpið. Forvarna vinnu með 8. bekk lýkur formlega með foreldrafundi miðvikudaginn 2.maí. Áður hafa 8. bekkingar kynnt verkefnið fyrir sínum samnemendum.
4. Mánavöllur
Á dögunum var var samþykkt í bæjarstjórn að gera samkomulag við Umf. Mána um eignarhald á landi því sem íþróttavellir við Mánagarð standa á og um mannvirki á íþróttavöllum við Mánagarð. Í væntanlegu samkomulagi telst sveitarfélagið eigandi þess lands sem Mánagarður, íþróttahús og íþróttavellir standa á. Hinsvegar teljast mannvirki á íþróttavöllum sameign Umf. Mána og sveitarfélagsins. Samkomulagið nær ekki til þeirra húseigna sem eru á vallarsvæðinu.
5. Sumaropnun sundlaugar
Rætt var um sumaropnun sundlaugar og verður hún opin frá 1.júni og til loka ágústs frá kl. 07:00 til 20:30 virka daga og frá kl. 09:00 – 18:00 um helgar.
Ráðið var samþykkt ofangreindum opnunartímum.
6. Sumarbæklingur 2007
Búið er að óska eftir tilboðum í prentun og uppsetningu sumarbæklings ÆTH. Stefnt er að útkomu hans fimmtudaginn 24.maí.
7. 17. júni 2007
Ungmennafélagið Sindri óskar eftir því að fá að sjá um hátíðarhöldin á 17. júní eins og í fyrra gegn hæfilegri þóknun. Ráðið samþykkir að fela Sindra að halda utan um hátíðarhöld á 17.júni.
Fundi slitið kl. 18:45.


