Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
87. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
26. mars 2007 kl. 17:05.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Vinnuskólinn í sumar
Að venju verður starfræktur vinnuskóli í sumar. Vinnuskólinn er samstarfsverkefni Umhverfis ? og tæknisviðs og æskulýðs- og tómstundaráðs. Æskulýðs- og tómstundaráð hvetur til þess að stjórnendur og aðrir starfsmenn vinnuskólans fái svipaða fræðslu og var viðhöfð í upphafi starfstímans í fyrra. Einnig leggur ráðið áherslu á að inn í vinnuskólann verði fléttað félagslegum verkefnum meira en verið hefur undanfarið. Eitt af verkefnum gæti verið að koma á laggirnar götuleikhúsi sem kæmi t.d. fram á Humarhátíð og unglingalandsmóti í sumar. Frú Norma?atvinnuleikhús á Austurlandi bíður upp á að vinna með ákveðnum vinnuhópum í tvo daga gegn ákveðinni þóknun til að koma af stað götuleikhúsi. Seinni dagurinn á skila sér í lifandi götumynd. Menningarmiðstöð Hornafjarðar er til í að skoða aðkomu að slíku verkefni. Þá hefur Valdemar framkv.stj. Sindra sýnt þessu áhuga.
2. Uppbygging íþróttamannvirkja
Haukur greindi frá því að gengið hefði verið til samninga við verktaka hér heima um jarðvegsskipti við sundlaug. Þá verða útboðsgögn í byggingu sundlaugar tilbúin til afhendingar þeim sem vilja bjóða í verkið fimmtudaginn 29. mars nk.
3. Forvarnir
Nú hefur stýrihópur um samstarfsverkefni sveitarfélagsins og Lýðheilsustöðvar
?Allt hefur áhrif einkum við sjálf ? skilað verkefninu til sveitarfélagsins.
Hulda Laxdal Hauksdóttir sem veitti stýrihópnum forystu fór á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir afrakstri af vinnu starfshópsins sem skilað hefur ?Hugmyndabanka? um málefnið fyrir sveitarfélagið. Nokkur umræða sköpðust um hver bera muni ábyrgð á framkvæmd verkefnisins.
Bæjarráðið fagnaði framkomnum hugmyndabanka starfshópsins og telur brýnt að sveitarfélagið auki áherslur sínar um bætta lýðheilsu í sveitarfélaginu. Bæjarráð hvetur framkvæmdastjóra og forstöðumenn stofnana að kynna sér vandlega hugmyndabanka hópsins og innleiða áherslur í starf stofnana sem bætt geta almennt heilsu íbúanna. Enn fremur vísar bæjarráð hugmyndunum til skólanefndar, heilbrigðis- og öldrunarráðs, æskulýðs- og tómstundaráðs og menningarmálanefndar til umfjöllunar. ÆTH tekur undir með bæjarráði og fagnar þessu framtaki og hvetur til aðgerða og horfir til þeirra málaflokkum sem falla undir það. ÆTH hvetur til að íþróttafélögunum sé send skýrsla stýrihópsins.
Haukur sótti málþing á vegum Félags íþrótta, æskulýðs og tómstundafulltrúa sem nefnist ?Staða félags- og forvarnastarfs ungs fólks í sveitarfélögum? og haldið var í Kópavogi. Var sjónum aðallega beint að 16+ hópnum. Fjallað var um ungmennahús, hagi og líðan ungs fólks , starfshætti lögreglu og fulltrúar Hagsmunafélags framhaldsskólanema kom til þings. Dreifði Haukur minnispunktum til ráðsmanna frá þinginu. Ráðið leggur til að sem fyrst verði tekin ákvörðun um húsnæði fyrir ungmennahús sem verði tekið í notkun í haust og gerð tilraun til rekstrar þess fram á vor 2008.skoðað. Stefnt er að því að ljúka vinnu í forvarnaverkefninu með 8. bekkingum í Heppuskóla fyrir páskafrí og kynna það fljótlega eftir páska.
4. Breyting á vaktaðstöðu í íþróttahúsi á Höfn
Í minnispunktum eftir heimsókn ÆTH í íþróttahúsið á Höfn í haust kom fram nauðsyn þess að breyta vaktaðstöðu starfsmanna. Hinkrað var með að breyta aðstöðunni í fyrra þar sem ýmsar vangaveltur voru uppi um samtengingu nýrrar sundlaugar við íþróttahúsið. Eins og framkvæmdir horfa nú við er ljóst að af samtengingu verður ekki í bráð. Kostirnir við breytinguna eru augljósir, betur er hægt að fylgjast með iðkendum íþrótta og eins að búa starfsmönnum betri starfsskilyrði. Forstofa íþróttahússins er mikið notuð af ungum íþróttaiðkendum til að bíða í og eru dæmi um að mætt sé allt upp í tveimur tímum áður en tími hefst. Þetta veldur óróleika og truflun og gefur tilefni til eineltis. Búið er að koma ábendingum um þetta til Sindramanna. Hvetur ÆTH til að sem fyrst verði farið í breytingu á vaktaðstöðunni.
5. Þrykkjan
Þrjár ungmennahljómsveitir héðan tóku nú þátt í Músiktilraunir í Reykjavík. Nutu þær styrks frá Þrykkjunni vegna þess. Fengu sveitirnar góða dóma þrátt fyrir að þær kæmust ekki áfram í úrslitakeppnina og haft var á orðið í blöðum að mikil rokkgróska væri á Hornfirði. Ný æskulýðslög voru samþykkt á Alþingi á lokadögum þess. Lögin miðast við æskulýðsstarf fyrir börn og ungmenni , einkum á aldrinum 6 ? 25 ára. Æskulýðssjóður er innan laganna og veitir Alþingi fé í hann árlega og einning er tekið við frjálsum framlögum í hann. Inn í lögin eru komið ákvæði um að óheimilt er að ráða til starfa hjá aðilum sem sinna starfi með börnum og ungmennum undir 18. ára aldri í æskulýðsstarfi , einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna brota á XXII. kafla hegningalaga. Sama gildir um þá sem hlotið hafa refsidóma fyrir brot gegn lögum um ávana ? og fíkniefni á síðastliðnum fimm árum. Ákvæði þetta nær einning til þeirra sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðastarfs. Þá er í lögunum að sveitastjórnir hlutist til um að stofnuð séu ungmennaráð. Hlutverk þeirra er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarstjórnir setja nánari reglur um hlutverk og val í ungmennaráð. Æskulýðs- og tómstundaráð fagnar framkomnum æskulýðslögum og hvetur til þess að sveitarstjórn beiti sér fyrir stofnun ungmennaráðs hið allra fyrsta.
Starfsmaður í félagsmiðstöð Steindór Sigurjónsson lætur af störfum um næstu mánaðarmót og náðs hefur samkomulag við Birgi Fannar Reynisson að taka við starfinu amk. fram á vor.
6. Iðkendafjöldi í íþróttum 1.sept. -15.mars.
Lagt var fram samantekt sem starfsmenn íþróttamannvirkja hafa tekið saman um iðkendafjölda í íþróttum á tímabilinu 1.september 2006 til 15. mars í ár. Samtals eru iðkendur í Íþróttahúsinu á Höfn 486 í Íþróttahúsinu í Mánagarði 89 og Sundlaug Hafnar 35 eða samtals 610. Ljóst er að alltof fáir 16 ára og eldri stunda íþróttir. Brottfallið er því mikið. Þó er alltaf einhverjir á þessum aldri sem stunda líkamsrækt utan íþróttafélaga.
7. Æfingagjöld
Farið var yfir samantekt á æfingagjöldum hinna ýmsu deilda Sindra. Matthildur ræddi um hvort hægt væri að skoða möguleika á að lækka þátttökugjöld hjá íþrótta- og tómstundafélögum með aðkomu sveitarfélagsins. Þetta er á svipuðum nótum og fram kemur í skýrslu stýrihóps um lýðheilsumál. Ákveðið að skoða þessi mál betur á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 19:35


