Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
86. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 5. mars 2007 kl. 17:05.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
Styrkveiting
Styrkbeiðni hefur borist frá Heppuskóla vegna ferðar 9. bekkjar að Laugum í Sælingsdal þann 4. mars. Ráðið ákvað að veita úr vímuvarnarverkefninu 141.000 kr. vegna ferðarinnar sem er talin hafa mikið forvarnagildi. 39. nemendur fóru í ferðina. Þetta er í þriðja skipti sem slíka ferð er farin með 9. bekkinga.
2. Staða í uppbyggingu íþróttamannvirkja og undirbúningur ULM
Á fund ráðsins komu Friðrik Ingvaldsson formaður framkvæmdanefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja fór yfir teikningar og kynnt ráðsfólki stöðu mála. Valdemar Einarsson framkv.stj. Sindra og verkefnastjóri ULM og Ragnhildur Einarsdóttir formaður USÚ sögðu frá undirbúningi og framkvæmd íþróttakeppna fyrir og á Unglingalandsmótinu í sumar og dreifðu til fundarmanna plaggötum og auglýsingabæklingum um ULM.
3. Forvarnir
Haukur sagði að forvarnaverkefnið UMFÍ “Flott án fíknar” væri væntanlegt hingað á föstudaginn. Farið yrði með verkefnið í 8. – 10. bekk. Þetta verkefni nær til þriggja þátta ,neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra fikniefna. Það byggist á samningsbundnu klúbbastarfi og viðburðardagskrá þar sem unglingar skemmta sér saman á heilbrigðan og uppbyggilegan hátt. Verkefnið er unnið í samvinnu við Lýðheilsustöð.
Síðasti fundur í stýrihópi um lýðheilsumál var haldinn 7. desember. Á þeim fundi var ákveðið að senda drög að aðgerðaráætlun fyrir sveitarfélagið til Jórlaugar hjá Lýðheilsustöð og hún læsi þau yfir og kæmi síðan í heimsókn. Á fundunum var líka rætt um hvernig ætti að standa að skilum á aðgerðaráætluninni. Var ákveðið að kynna fyrir bæjarráði hugmyndir og aðgerðaráætlunina.
Á föstudaginn kemur verður haldið málþing á vegum Félags íþrótta, æskulýðs og tómstundafulltrúa sem nefnist Staða félags- og forvarnastarfs ungs fólks í sveitarfélögum. Á þinginu verður m.a. fjallað um ungmennahús, hagi og líðan ungs fólks , starfshætti lögreglu og Hagsmunafélag framhaldsskólanema kemur til þings. Aðallega verður sjónum beint að 16+ hópnum á þinginu. Vinna við forvarnaverkefnið með 8. bekkingum í Heppuskóla er á lokasprettinum.
4. Þrykkjan
Laugardaginn 17. febrúar hélt félagsmiðstöðin Þrykkjan Söngvakeppni SAMAUST (Samtök félagsmiðstöðva á Austurlandi). Alls mættu þátttakendur frá 11 félagsmiðstöðvum og komu með 16 söngatriði. Fór keppnin fram í Íþróttahúsinu á Höfn og á fjórða hundrað manns fylgdust með. Mjög vel tókst til og ber sérstaklega að nefna hversu unglingarnir okkar stóðu sig vel í öllum undirbúningi og frágangi á eftir. 30 unglingar úr 10. bekk fóru á föstudaginn var á Samféshátíðina sem er árlega haldin á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri ætluðu en veikindi settu strik í reikninginn. Tókst ferðin í alla staði mjög vel. Unglingar úr Heppuskóla tóku á fimmtudaginn þátt í Skólahreysti á Austurlandi og komu sáu og sigruðu og fara í úrslitakeppnina sem verður 26. apríl. Tvær ungmennahljómsveitir héðan eru búnar að skrá sig í Músiktilraunir sem fram fara síðla í þessum mánuði. Þá má geta þess að á laugardaginn fóru 9 stúlkur úr Sindra á úrtaksæfingu fyrir landslið 17 ára og yngra austur í Fjarðarbyggðahöll. Þannig að unglingarnir okkar eru að gera góða hluti.
5. Ungmennahús. Staðan
Athugað hefur verið um húsnæði en ekki verið tekin ákvörðun í þeim efnum. Stefnt er á að hefja starfsemi á haustdögum.
6.Fatlaðir hlauparar.
Erindi frá bæjarráði. Intergrative Meeting of Friends, bréf dags. 2. febrúar 2007, ósk um að taka á móti hópi fatlaðra hlaupara 11. júní n.k.
Samþykkti bæjarráð að koma til móts við þessar óskir, vísað til æskulýðs- og tómstundafulltrúa.
Æskulýðs- og tómstundaráð tók undir óskir bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 19:00.
Matthildur Ásmundardóttir Haukur H. Þorvaldsson.
Björn Sigfinnsson
Gestur Halldórsson
Helga Lucía Bergsdóttir
Helga Vilborg Sigjónsdóttir


