Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83

83. fundur

Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn

23. okt. 2006  kl. 17:00.

 Mætt voru:  Matthildur Ásmundardóttir formaður, Maríanna Jónsdóttir, Björn Sigfinnsson,  Helga Luci Bergsdóttir, Gestur Halldórsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

 Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

Gengið var til dagskrár:

 1.      Fjárhagsáætlun 2006

 Farið var yfir fyrstu drög af fjárhagsáætlun þeirra stofnana sem heyra undir æskulýðs- og tómstundaráð

 2.  Lýðheilsumál

 Haukur á sæti fyrir hönd æskulýðs- og tómstundaráðs í stýrihóp í verkefninu Allt hefur áhrif einkum við sjálf! Sem er samstarfsverkefni sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar. Markmið verkefnisins er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á hreyfingu og góða næringu. Stýrihópurinn hefur haldið 14 fundi og er Hulda Laxdal Hauksdóttir verkefnastjóri. Á næstunni mun stýrihópurinn skila tillögum að aðgerðaráætlun í þessum efnum til sveitarfélagsins sem síðan ákvarðar um framhaldið. Haukur fór yfir það helsta sem á daga stýrihópsins hefur drifið frá því hann tók til starfa 2004. 

 3.  Staða íþróttamannvirkja

 Að sögn Friðriks Ingvaldssonar formanns framkvæmdanefndar um íþróttamannvirki er staða mála  nær óbreytt frá því hann var á fundi með ÆTH síðast. Malarpúðinn er enn að síga og meðan svo er er ekki hægt að taka efni úr honum til að setja á íþróttvallarsvæðið. Fundur verður mjög fljótlega í framkvæmdanefndinni.

 4. Forvarnir, Maritafundur ofl.

 Haukur greindi frá því sem gerst hefur í forvörnum og hvað er framundan.

Í ágúst var forvarnasíðan  sett í Skjávarpið og látin rúlla um breytingar á útivistartímum og því var líka komið í Eystrahorn. Á forvarnasíðunni eru birtar stuttar áminningar til foreldra barna og unglinga um forvarnamál.

Um miðjan september fór Jón Garðar lögreglumaður í heimsókn til nemenda í 8. bekk og ræddi við þau um forvarnamál og ýmislegt annað sem varðar heill og hamingju ungs fólks.

 Forvarnavinna í 8. bekk er í fullum gangi. Unnið er að undirbúningi að gerð auglýsingamynda um einelti, útivist, áfengi, tóbak og eiturlyf. Vinnan er einu sinni í viku á mánudögum fyrir hádegi. Fenginn var til liðs við verkefnið ungur kvikmyndagerðarmaður hér á Höfn, Hlynur Pálmason til að leiðbeina um handritagerð, klippingar, tökur og leikstjórn.

Maritaverkefnið  ?Hættu áður en þú byrjar? kemur hingað miðvikudaginn 1. nóvember. Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi verkefnisins verður með fundi með 9., og 10. bekkingum og forráðamönnum 8., 9., og 10. bekkinga. Á fundunum ræðir Magnús um þær hættur og afleiðingar sem fylgja notkun fíkniefna.  Jón Garðar lögreglumaður og Jón Kristján félagsmálastjóri mæta á fundina.

Félgamálanámskeið var haldið í október á vegum Ums. Úlfljóts og Bændasamtakanna og sótti það fulltrúi úr Þrykkjuráði og starfsmaður Þrykkjunar.

Fimmtudaginn 28. október tóku nemendur í 9. bekk Heppuskóla þátt í forvarnardeginum sem haldinn var að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við félagasamtök, Reykjavíkurborg, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga og með stuðningi Actavis. Farið var í gegnum verkefni dagsins. Einnig kom Valdemar Einarsson frá Ungmannafélaginu Sindra og gerði grein fyrir starfi félagsins. Tókst þetta allt mjög vel. Þetta kemur fram á vefsíðu skólans.

Haukur kynnti verkefnið Flott án fíknar sem er forvarnaverkefni sem UMFÍ hefur ákveðið að taka upp og fylgja eftir að loknum Forvarnadeginum sem haldinn var 28.september að frumkvæði forseta Íslands. Flott án fíknar verkefnið tekur til þriggja þátta, neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra fíkniefna. Flott án fíknar er íslensk hugmynd sem verið hefur í þróun í fjögur ár í Lindarskóla í Kópavogi og reynst vel. Á næstu mánuðum verður haft samband og verkefnið boðið til frekari kynningar.

Næsta mánudag verður forvarnafundur hjá aðilum sem tengjast inn í  nám og störft barna og unglinga.

 

 

Fundi slitið kl. 18:20.

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica