Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
83. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
23. okt. 2006 kl. 17:00.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Maríanna Jónsdóttir, Björn Sigfinnsson, Helga Luci Bergsdóttir, Gestur Halldórsson og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Fjárhagsáætlun 2006
Farið var yfir fyrstu drög af fjárhagsáætlun þeirra stofnana sem heyra undir æskulýðs- og tómstundaráð
2. Lýðheilsumál
Haukur á sæti fyrir hönd æskulýðs- og tómstundaráðs í stýrihóp í verkefninu Allt hefur áhrif einkum við sjálf! Sem er samstarfsverkefni sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar. Markmið verkefnisins er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á hreyfingu og góða næringu. Stýrihópurinn hefur haldið 14 fundi og er Hulda Laxdal Hauksdóttir verkefnastjóri. Á næstunni mun stýrihópurinn skila tillögum að aðgerðaráætlun í þessum efnum til sveitarfélagsins sem síðan ákvarðar um framhaldið. Haukur fór yfir það helsta sem á daga stýrihópsins hefur drifið frá því hann tók til starfa 2004.
3. Staða íþróttamannvirkja
Að sögn Friðriks Ingvaldssonar formanns framkvæmdanefndar um íþróttamannvirki er staða mála nær óbreytt frá því hann var á fundi með ÆTH síðast. Malarpúðinn er enn að síga og meðan svo er er ekki hægt að taka efni úr honum til að setja á íþróttvallarsvæðið. Fundur verður mjög fljótlega í framkvæmdanefndinni.
4. Forvarnir, Maritafundur ofl.
Haukur greindi frá því sem gerst hefur í forvörnum og hvað er framundan.
Í ágúst var forvarnasíðan sett í Skjávarpið og látin rúlla um breytingar á útivistartímum og því var líka komið í Eystrahorn. Á forvarnasíðunni eru birtar stuttar áminningar til foreldra barna og unglinga um forvarnamál.
Um miðjan september fór Jón Garðar lögreglumaður í heimsókn til nemenda í 8. bekk og ræddi við þau um forvarnamál og ýmislegt annað sem varðar heill og hamingju ungs fólks.
Forvarnavinna í 8. bekk er í fullum gangi. Unnið er að undirbúningi að gerð auglýsingamynda um einelti, útivist, áfengi, tóbak og eiturlyf. Vinnan er einu sinni í viku á mánudögum fyrir hádegi. Fenginn var til liðs við verkefnið ungur kvikmyndagerðarmaður hér á Höfn, Hlynur Pálmason til að leiðbeina um handritagerð, klippingar, tökur og leikstjórn.
Maritaverkefnið “Hættu áður en þú byrjar” kemur hingað miðvikudaginn 1. nóvember. Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi verkefnisins verður með fundi með 9., og 10. bekkingum og forráðamönnum 8., 9., og 10. bekkinga. Á fundunum ræðir Magnús um þær hættur og afleiðingar sem fylgja notkun fíkniefna. Jón Garðar lögreglumaður og Jón Kristján félagsmálastjóri mæta á fundina.
Félgamálanámskeið var haldið í október á vegum Ums. Úlfljóts og Bændasamtakanna og sótti það fulltrúi úr Þrykkjuráði og starfsmaður Þrykkjunar.
Fimmtudaginn 28. október tóku nemendur í 9. bekk Heppuskóla þátt í forvarnardeginum sem haldinn var að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við félagasamtök, Reykjavíkurborg, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga og með stuðningi Actavis. Farið var í gegnum verkefni dagsins. Einnig kom Valdemar Einarsson frá Ungmannafélaginu Sindra og gerði grein fyrir starfi félagsins. Tókst þetta allt mjög vel. Þetta kemur fram á vefsíðu skólans.
Haukur kynnti verkefnið Flott án fíknar sem er forvarnaverkefni sem UMFÍ hefur ákveðið að taka upp og fylgja eftir að loknum Forvarnadeginum sem haldinn var 28.september að frumkvæði forseta Íslands. Flott án fíknar verkefnið tekur til þriggja þátta, neyslu tóbaks, áfengis og ólöglegra fíkniefna. Flott án fíknar er íslensk hugmynd sem verið hefur í þróun í fjögur ár í Lindarskóla í Kópavogi og reynst vel. Á næstu mánuðum verður haft samband og verkefnið boðið til frekari kynningar.
Næsta mánudag verður forvarnafundur hjá aðilum sem tengjast inn í nám og störft barna og unglinga.
Fundi slitið kl. 18:20.


