Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
85. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn
22. janúar 2007 kl. 17:05.
Mætt voru: Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucia Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Styrkveiting
Farið var yfir umsóknir sem borist hafa ráðinu um styrkbeiðnir frá ýmsum félögum.
Gengið var til afgreiðslu og voru styrkir til eftirtalinna félaga samþykktir:
Sindri til almenns rekstrar kr. 2400.000.00.
Reiknuð húsaleiga í Íþróttahúsi Höfn kr. 3540.000.00.
Vegna leikjanámskeiða kr. 750.000.00.
Sunddeild Sindra (leiga á sundlaug) kr. 150.000.00.
Umf. Máni.
Til íþróttastarfsemi kr. 250.000.00.
Reiknuð húsaleiga í Mánagarði kr.200.000.00.
Umsókn um söguritun félagsins var vísað til bæjarráðs.
Golfklúbbur Hornafjarðar
Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2200.000.00.
Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 425.000.00.
Hestamannafélagið Hornfirðingur
Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2290.000.00
Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 375.000.00.
Umsókn Fimleikadeildar Sindra um styrk til áhaldakaupa var vísað til bæjarráðs.
Beðið var með ákvörðun um úthlutun á 100.000 kr.
Sérsjóður
Framlag í hann kr. 270.000.00
Alls eru veittir styrkir að upphæð 12.950.000.00. kr.
2. Styrkveitingar til efnilegra íþróttamanna og sérverkefna úr Sérsjóði.
Ákvað ráðið að veita frjálsíþróttafólkinu Sveinbjörgu Zophoníasdóttur, Fannari Blæ Austar Egilssyni og Hilmari Guðjónssyni körfu-blakmanni öllum styrk að upphæð kr. 25.000 kr. til æfinga og keppnisferða. Arnari Guðjónssyni körfu og blakmanni styrk að upphæð 30.000 kr.til að auka færni sína í þjálfun í körfu og krakkablaki.
Ákveðið var að gefa út sumarbækling ÆTH 2007 í vor og styrkja útgáfuna um 60.000 kr.
3. Forvarnir
Haukur sagði frá forvarnavinnu sem er í gangi með 8. bekkingum í Heppuskóla. Verið er að gera leiknar forvarnaauglýsingar og er komið að því að klippa það efni sem búið er að taka. Haukur sagði frá stöðufundi í forvarnarmálum sem haldinn var fyrr í þessum mánuði. Á þennan fund mættu 8 manns sem tengjast inn í nám og störf með börnum og ungmennum og var skipst á skoðunum um stöðu mála varðandi útivist, vímu- og fíkniefni. Voru menn á því að ástandið væri svipað og var í haust nokkuð gott. Næsti stöðufundur verður haldinn í mars. Á fundinum var lögð áhersla á að koma á fót ungmennahúsi fyrir ungmenni 16 ára +. Í desember voru birtar á vegum æskulýðs- og tómstundaráðs og félagsmálaráðs forvarnaauglýsingar á skjávarpinu til fjölskyldna um samveru fjölskyldna um jól og áramót. Þá birtust tvær forvarnasögur í jólablaði Eystrahorns sem hópar í forvarnavinnunni í 8. bekk sömdu. Haukur greini einnig frá könnun sem gerð var í febrúar og mars á síðastliðnu skólaári meðal 11.800 nemenda í 6.- 8. og 10. bekk á landinu þ.a.m. voru nemendur í þessum bekkjum á Hornafirði. Könnunin var gerð á vegum Lýðheilsustöðvar og bar nafnið Heilsa og lífskjör skólanema. Í ár var veitt 600.000 kr. til forvarna frá sveitarfélaginu.
4. Ungmennahús.
Haukur sagði frá því að í síðustu viku hefði hann fengið heimild til að skoða hvort möguleiki væri á að fá leigt húsnæði fyrir starfsemi ungmennahús. Nú liggur fyrir að eigendur Bugðuleiru 6 sem er Byggðastofnun er tilbúin að leigja húsnæðið. Sveitarfélagið er tilbúið að leggja fram ákveðna fjárupphæð sem gengi til reksturs þess húsnæðis. Rætt er um að leigja húsnæðið fram til vors. Þá er eftir að skoða aðkomu annarra að starfsemi hússins og verður það gert í vikunni. Ráðinu finnst að tíminn fram til vors frekar stuttur til að tilraun til starfrækslu ungmennahúss þjóni tilgangi sínum. Betra væri að byrja að fullum krafti 1.september í haust og vera með tilraunastarfsemina fram til 1.maí á næsta ári. En nota tímann fram til vors til að undirbúa starfsemina.
Fundi slitið kl. 19:00.


