Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð

Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85

85. fundur

Fundur haldinn     í  æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar mánudaginn 22. janúar 2007  kl. 17:05.

 Mætt voru:               Matthildur Ásmundardóttir formaður, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Lucí Bergsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs - og tómstundafulltrúi.

  Matthildur formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.

 Gengið var til dagskrár:

1. Styrkveiting

Farið var yfir umsóknir sem borist hafa ráðinu um styrkbeiðnir frá ýmsum félögum. Gengið var til afgreiðslu og voru styrkir til eftirtalinna félaga samþykktir:

 Sindri til almenns rekstrar kr. 2400.000.00.

Reiknuð húsaleiga í Íþróttahúsi Höfn kr. 3540.000.00.

Vegna leikjanámskeiða kr. 750.000.00.

Sunddeild Sindra (leiga á sundlaug) kr. 150.000.00.

 Umf. Máni.

Til íþróttastarfsemi kr. 250.000.00. Reiknuð húsaleiga í Mánagarði kr.200.000.00.

Umsókn um söguritun félagsins var vísað til bæjarráðs.

 Golfklúbbur Hornafjarðar

Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2200.000.00.

Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 425.000.00.

 Hestamannafélagið Hornfirðingur

Framlag vegna framkvæmdasamnings kr. 2290.000.00

Framlag vegna barna- og ungmennastarfs kr. 375.000.00.

 Umsókn Fimleikadeildar Sindra um styrk til áhaldakaupa var vísað til bæjarráðs.

Beðið var með ákvörðun um úthlutun á 100.000 kr.

 Sérsjóður

Framlag í hann kr. 270.000.00

Alls eru veittir styrkir að upphæð 12.950.000.00. kr.

2. Styrkveitingar til efnilegra íþróttamanna og sérverkefna úr Sérsjóði

Birt síðar

 3. Forvarnir

Haukur sagði frá forvarnavinnu sem er í gangi með 8. bekkingum í Heppuskóla.  Verið er að gera leiknar forvarnaauglýsingar og er komið að því að klippa það efni sem búið er að taka. Haukur sagði frá stöðufundi í forvarnarmálum sem haldinn var fyrr í þessum mánuði. Á þennan fund mættu 8 manns sem tengjast inn í nám og störf með börnum og ungmennum og var skipst á skoðunum um stöðu mála varðandi útivist, vímu- og fíkniefni. Voru menn á því að ástandið væri svipað og var í haust nokkuð gott. Næsti stöðufundur verður haldinn í mars. Á fundinum var lögð áhersla á að koma á fót ungmennahúsi fyrir ungmenni 16 ára +. Í desember voru birtar á vegum æskulýðs- og tómstundaráðs og félagsmálaráðs forvarnaauglýsingar á skjávarpinu til fjölskyldna um samveru fjölskyldna um jól og áramót. Þá birtust tvær forvarnasögur í jólablaði Eystrahorns sem hópar í forvarnavinnunni í 8. bekk sömdu. Haukur greini einnig frá könnun sem gerð var í febrúar og mars á síðastliðnu skólaári meðal 11.800 nemenda í 6.- 8. og 10. bekk á landinu þ.a.m. voru nemendur í þessum bekkjum á Hornafirði. Könnunin var gerð á vegum Lýðheilsustöðvar og bar nafnið Heilsa og lífskjör skólanema.  Í ár var veitt 600.000 kr. til forvarna frá sveitarfélaginu.

 4.  Ungmennahús

Haukur sagði frá því að í síðustu viku hefði hann fengið heimild til að skoða hvort möguleiki væri á að fá leigt húsnæði fyrir starfsemi ungmennahús. Nú liggur fyrir að eigendur Bugðuleiru 6 sem er Byggðastofnun er tilbúin að leigja húsnæðið. Sveitarfélagið er tilbúið að leggja fram ákveðna fjárupphæð sem gengi til reksturs þess húsnæðis. Rætt er um að leigja húsnæðið fram til vors. Þá er eftir að skoða aðkomu annarra að starfsemi hússins og verður það gert í vikunni. Ráðinu finnst að tíminn fram til vors frekar stuttur til að tilraun til starfrækslu ungmennahúss þjóni tilgangi sínum. Betra væri að byrja að fullum krafti 1.september í haust og vera með tilraunastarfsemina fram til 1.maí á næsta ári. En nota tímann fram til vors til að undirbúa starfsemina.

 

  Fundi slitið kl. 19:00.

 




Fundargerðir

Dag.grein
16.02.2012 Fundarplan nefnda 2012
19.05.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 100
22.04.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 99
27.03.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 98
21.02.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 97
17.01.2008 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 96
13.12.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 95
15.11.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
18.10.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 93
20.09.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 92
03.09.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 91
26.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 90
04.06.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 89
30.04.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 88
26.03.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 87
05.03.2007 Fundargerð æskulýðs og tómstundaráðs 86
22.01.2007 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
27.11.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 84
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
23.10.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 83
25.09.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 82
28.08.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 81
28.06.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 80
22.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 79
03.05.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 78
27.03.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 77
27.02.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 76
23.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 75
22.01.2006 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 85
05.12.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 74
10.11.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 73
24.10.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 72
26.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 71
21.09.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 70
23.05.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 69
25.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 68
06.04.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 67
28.02.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 66
24.01.2005 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 65
22.11.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 64
25.10.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 63
27.09.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 62
01.09.2004 Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 61
24.05.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 60
26.04.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 59
22.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 58
01.03.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 57
26.01.2004 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 56
04.12.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 55
20.10.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 54
22.09.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 53
25.08.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 52
26.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 51
05.05.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 50
24.03.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 49
24.02.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 48
27.01.2003 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs 47
17.12.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.11.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.10.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
23.09.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
26.08.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.05.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
22.04.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.03.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
25.02.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
28.01.2002 Fundargerð Æskulýðs- og tómstundaráðs
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica